Pia Anderberg skrifaði:
HALSVÄRMARE: Efter att man stickat resår i 12 cm står det: " Nu sätts det 4 markörer i arbetet, varje markör sätts i en rätmaska, och markörerna sätts i arbetet utan att maskorna stickas." Vad betyder det att "markörerna sätts i arbetet UTAN ATT MASKORNA STICKAS."?
16.05.2025 - 22:22DROPS Design svaraði:
Hej Pia. Det betyder bara att när du sätter ut markörerna så stickar du inte det varvet utan du sätter bara markörerna i arbetet. Mvh DROPS Design
20.05.2025 - 10:08
Veroni skrifaði:
Habe bei nochmaligem Durchlesen verstanden wie es geht. Mütze ist fertig und sieht toll aus. Viele Grüße und gutes Gelingen Veroni
27.01.2024 - 17:43
Veroni skrifaði:
Hallo, Ich verstehe es nicht, wenn ich bei 72 Maschen jeweils zwei zusammenstricke komme ich auf die Hälfte und zwar 36 Maschen. Wie kommt man denn auf 54 Maschen in der ersten Runde, wie angegeben? Danke und viele Grüsse
26.01.2024 - 10:05DROPS Design svaraði:
Liebe Veroni, bei der 1. Abnahmenrunde stricken Sie insgesamt 18 Mal * 1 Rechtsmasche und 1 Linksmasche links zusammenstricken, 1 Masche rechts, 1 Masche links *, (diese 4 Maschen x 18 = 78), so wird man nur 18 Maschen abnahmen und es sind 54 Maschen übrig. Vie Spaß beim stricken!
29.01.2024 - 11:10
Marianne Rafen skrifaði:
Kan kun give Gill Rosendahl, ret i, at der må være en fejl i række 3 på huen. 3.OMGANG: * 1 vrang, 2 ret sammen *, strik fra *-* Det må da give: 1 ret og 2 vrang sammen?
25.08.2023 - 09:58DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Når du har strikket ferdig 1. omgang har du 1 vrang (1 rett maske og 1 vrangmaske som blir strikket vrang) + 1 rett + 1 vrang, så gjentas dette. Da blir det slik omgang rundt: 1 vrang + 1 rett + 1 vrang + 1 vrang + 1 rett + 1 vrang + 1 vrang + 1 rett + 1 vrang osv. Så strikker man 1 omgang rett over rett og vrang over vrang. Når man da skal strikke 3. omgang strikkes første maske vrang og de 2 neste maskene rett sammen, (selv om det er 1 rett og 1 vrang maske). Når 3. omgang er ferdigstrikket er det 1 vrang + 1 rett + 1 vrang + 1 rett omgangen rundt. mvh DROPS Design
04.09.2023 - 13:46
Elżbieta skrifaði:
Dodawać oczka co dwa okrążenia tzn.: między rzędami , w których dodajemy oczka są dwa rzędy bez dodawania czy jeden?
05.01.2023 - 13:27DROPS Design svaraði:
Witaj Elu, gdy dodajemy co na okrążenia, to znaczy że dodajemy w jednym okrążeniu, a nie dodajemy w następnym, itd. Czyli jest 1 okrążenie bez dodawania oczek między okrążeniami z dodawaniem oczek. Pozdrawiamy!
05.01.2023 - 21:20
Roberta Stewart skrifaði:
I feel that much is lost in the translation of this pattern. As an experienced English knitter the instructions make no sense to me. I think you need the help of an English speaking knitter to help you describe the steps needed to knit this pattern. I believe am able to make up my own pattern to complete something similar .
06.02.2022 - 05:41DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Stewart, should you need any assistance with this pattern, please feel free to ask your question here, so that we will be able to help you. Happy knitting!
07.02.2022 - 11:25
Debbie skrifaði:
Kan u die patroon vertaal na Afrikaans
07.12.2021 - 20:58
Gill Rosendahl skrifaði:
Hej, Här tänker jag att var 3 på mössan är fel. Det är, efter varv 1, övervikt av aviga maskor, så jag tänker att varv 3 bör stickas två aviga samman och en rät.
17.09.2021 - 10:24DROPS Design svaraði:
Hej Gill. Det är lite otydligt skrivet, men du stickar 2 maskor tillsammans räta (det är en maska avig och en rät som stickas tillsammans). Mvh DROPS Design
22.09.2021 - 09:10
Soft Snuggles#softsnugglesset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hipsterhúfa og hálsskjól með axlarsæti fyrir börn úr DROPS Melody. Húfan er prjónuð í stroffprjóni og hálsskjólið er prjónað í stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 40-35 |
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um axlarsæti á hálsskjóli): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 60-64-68-72 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 24-25-26-27 cm frá uppfitjunarkanti (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Fækkið nú lykkjum þannig: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið er prjónað brugðið saman, prjónið 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 45-48-51-54 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 30-32-34-36 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 15-16-17-18 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: Prjónið 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn (í stærð 2 og 6/9 ára endar umferð með 1 sléttri lykkju) = 8-8-9-9 lykkjur. Klippið þráðinn, notið nál og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið að og festið enda. Húfan mælist alls 28-29-30-31 cm. Brjótið upp neðri kantinn á húfunni ca 8 cm að réttu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar útaukning fyrir axlarsæti er lokið, fellið lykkjur af á hvorri öxl. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig að loka máli. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 52-56-60-64 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – byrjun á umferð er á hægri öxl að aftan þegar hálsskjólið er mátað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið, hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu sléttu lykkju í umferð, hoppið yfir 9-11-13-15 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 15-15-15-15 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 9-11-13-15 lykkjur (= öxl) og setjið 4. prjónamerki í næstu sléttu lykkju. Nú eru 15 lykkjur eftir á bakstykki eftir 4. prjónamerki. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Í næstu umferð er aukið út fyrir axlarsæti JAFNFRAMT er prjónað stroffprjón eins og áður á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur tilheyra framstykki og bakstykki og eru prjónaðar í sléttprjóni, fjöldi axlalykkja verður sá sami). Aukið svona út í hverri umferð alls 7-9-11-12 sinnum = 80-92-104-112 lykkjur. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir öxl og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki, byrjið við 1. prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið lykkjum með 1. prjónamerki slétt, setjið 1 auka þráði DROPS Melody og fellið af næstu 9-11-13-15 lykkjur (þetta er gert til að kanturinn verði teygjanlegur, þessi auka þráður er einungis notaður við affellingu). Takið frá auka þráðinn og prjónið sléttar lykkjur til og með lykkju með 3. prjónamerki, setjið aftur 1 auka þráð DROPS Melody og fellið af næstu 9-11-13-15 lykkjur. Takið frá auka þráðinn og prjónið sléttar lykkjur til og með lykkju með 1. prjónamerki í. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað áfram hvort fyrir sig með 1 þræði DROPS Melody. BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI: Framstykkið og bakstykkið eru alveg eins, setjið annað stykkið á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hitt stykkið eins og útskýrt er að neðan: Nú eru 31-35-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 1½-1½-1½-2 cm (mælt þar sem stykkið skiptist) nú á að fækka lykkjum innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir og prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið úrtöku frá réttu með ca 1½-1½-1½-2 cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 4-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 23-27-31-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 8-9-10-11 cm (mælt frá skiptingu). Prjónið 1 umferð frá röngu og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 27-31-35-37 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir afgang af lykkjum. Prjónið þar til stroffið mælist ca 4 cm. Sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING og fellið af í næstu umferð frá réttu. Klippið þráðinn og festið enda. Prjónið hinn hlutann á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softsnugglesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.