SANDRINE Lequin skrifaði:
Bonjour doit-on tricoter uniquement avec les aiguilles circulaires n° 3 ou on tricote que les côtes avec les aiguilles n°3 et le jersey avec les aiguilles n°5 merci
11.01.2022 - 12:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lequin, l'échantillon doit se réaliser avec les aiguilles 5, les aiguilles 3 seront utilisées pour les côtes. Bon tricot!
11.01.2022 - 14:24
Raquel Cuadra Sonera skrifaði:
Pone que hay una rectificacion del cuello, pero en el patrón pone exactamente lo mismo que en la rectificación. ¿ Está mal la rectificacion o el patrón? gracias!
30.12.2021 - 13:08DROPS Design svaraði:
Hola Raquel, el patron esta rectificado tambien. Saludos!
30.12.2021 - 13:41
Raquel Cuadra skrifaði:
La muestra de 10cmx 10cm está hecha con agujas de 3mm o con las de 5mm?
30.12.2021 - 10:27DROPS Design svaraði:
Hola Raquel, la muestra está hecha on agujas de 5mm. Saludos!
30.12.2021 - 13:39
Anna skrifaði:
Hello. Is it possible there is a mistake in the pattern? Before the yoke starts there are 240 stitches (size S) yet in the yoke section only 236 stitches are worked at the beginning (31+56+62+56+31). Should there be 58 stitches on the shoulders rather than 56?
08.12.2021 - 11:06DROPS Design svaraði:
Dear Anna, you are missing 4 sts, these 4 stitches are the ones where you should insert a marker in, ie: 31 sts, 1 st with a marker, 56 sts, 1 st with a marker, 62 sts, 1 st with a marker, 56 sts, 1 st with a m arker, 31 sts = 31+1+56+1+62+1+56+1+31=240 sts. Happy knitting!
08.12.2021 - 13:34
Sara skrifaði:
When this pattern is available in Finnish?
29.11.2021 - 07:47DROPS Design svaraði:
Dear Sara,o our translators work around the clock to bring you these patterns as soon as possible, but we cannot tell just exactly when the translation will be available. Please check back in a few days. Happy Stitching!
30.11.2021 - 03:19
CANTELOUVES MURIEL skrifaði:
Bonjour, Une chose m'échappe, dans les explications du modèle, vous dites qu'il se fait en point mousse alors que sur la photo du modèle, c'est du jersey, le rendu ne sera pas identique ? Bien cordialement, Muriel
18.11.2021 - 16:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Muriel, ce pull se tricote effectivement en jersey et côtes, seules les mailles lisières des épaules seront tricotées au point mousse, pouvez-vous m'indiquer où vous avez trouvé cette information pour qu'elle soit corrigée? Merci d'avance.
18.11.2021 - 17:30
Nina Hamre Bjørklund skrifaði:
Er det noe feil i beskrivelsen under A1, den svarte prikken? Burde det stått følgende: «stikk høyre pinne inn i masken under neste maske. Ta masken over på venstre pinne og strikk de to maskene sammen»
12.11.2021 - 20:05DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Nei, det skal strikkes slik det er forklart til den sorte prikken. Se gjerne videoen: Hvordan strikke 1 rett i masken fra forrige omgang Det er et annet diagramikon som er brukt, det er kun 1 vrangmasken mellom patentmaskene og forrige rad er vrang, men teknikken der høyre pinne stikkes gjennom masken under neste maske og det strikkes 1 maske rett og deretter slippes maskene det ble strikket i av venstre pinne, er den sammen. mvh DROPS Design
15.11.2021 - 10:14
Kitty skrifaði:
Når jeg har taget i d fra 120 til 102 og strikker mønstret, får jeg masker i overskud. Er der en fejl i opskriften?
11.11.2021 - 00:09
Haouder Malika skrifaði:
Bonjour J’ai commencé à tricoter ce modèle quand j’ai compté pour le premier rang après 16 cm du col j’ai trouvé qu’il me reste 2 mailles en plus
24.10.2021 - 23:00
Rikke skrifaði:
Hej, jeg må melde mig i koret over folk, der ikke forstår A1.. Strik 2 vrang(tjek), normalt ville jeg så her i patent strikke således: slå om, tag maske løst af og næste række ville jeg med en retmaske strikke omslag og den løse maske sammen. Forstår ikke hvad dette betyder: stik højre pind gennem masken under næste maske, strik 1 maske ret og slip masken der blev strikket i af venstre pind ? Kan I forklare på anden måde?
19.10.2021 - 11:56DROPS Design svaraði:
Hej Rikke, i denne video kan du se hvordan du strikker selve patentmasken: Se her hvordan du strikker patentmasken
21.10.2021 - 09:19
Falling Water Sweater#fallingwatersweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsætum, puffermum og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-39 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 6,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6.og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 5. hver og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á UNDAN LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður með 2 þráðum. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Axlarsætin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan er framstykkið, bakstykkið og axlarsætin sett inn á sama hringprjón, jafnframt því sem lykkjur eru teknar upp meðfram hliðum á axlarsætum. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. KRAGI: Fitjið upp 120-120-132-132-150-150 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið mynstur A.1 hringinn í 16 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-18-20-20-22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 102-102-112-112-128-128 lykkjur. Nú er stykkinu snúið þannig að prjónað er áfram í hring í gagnstæða átt. Þetta er gert til að réttan á stykkinu snúi út þegar fyrsti hlutinn af kraganum er brotinn niður þar þegar stykkið er tilbúið. Haldið áfram í stroffprjóni þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 18-18-21-21-24-24 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 36-36-39-39-45-45 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 18-18-18-18-21-21 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1. Haldið áfram svona hringinn í 8 cm (kraginn mælist alls 24 cm frá uppfitjunarkanti) – stillið af að næsta umferð sé á sléttri tölu í umferð í mynsturteikningu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 18-18-21-21-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 1-0-2-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-38-41-41-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-2-3-1-5-5 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 20-20-20-20-23-23 lykkjur og fækkið jafnframt um 3-2-1-0-2-2 lykkjur jafnt yfir (= bakstykki). Nú eru 94-98-106-110-118-118 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. það eru 34-36-38-40-42-42 lykkjur á framstykki/bakstykki og 13-13-15-15-17-17 lykkjur á hvoru axlarsæti. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan fram og til baka yfir hvort axlarsætið. Látið þær lykkjur sem eftir eru hvíla á prjóni eða setjið þær á þráð. AXLARSÆTI: Stykkið er prjónað fram og til baka með byrjun frá réttu yfir lykkjur fyrir axlarsæti í annarri hlið á hringprjón 3 og með 2 þráðum DROPS Kid-Silk þannig: Fitjið upp 1 lykkju (= kantlykkja), prjónið, prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri A.2 eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukin út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með þetta mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukin út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt. Nú er framstykkið, bakstykkið og axlarsætin sett inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar meðfram hliðum á axlarsætum. Stillið af að byrjun á umferð sé mitt aftan á bakstykki. HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 17-18-19-20-21-21 lykkjur á hálfu bakstykki, prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti. AXLARSÆTI: Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti). FRAMSTYKKI: Prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttprjón yfir næstu 34-36-38-40-42-42 lykkjur á framstykki, prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á hinu axlarsætinu. AXLARSÆTI: Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti). HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 17-18-19-20-21-21 lykkjur á hálfu bakstykki. Nú eru 240-244-266-274-296-296 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 31-32-33-35-36-36 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= hálft bakstykki). Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= hægri ermi). Þriðja prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 62-64-66-70-72-72, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= framstykki). Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= vinstri ermi). Prjónið sléttprjón yfir næstu 31-32-33-35-36-36 (= hálft bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, lykkjur eru auknar út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning á ermum og á berustykki: Aukið er út jafnóðum, en í stærð L, XL, XXL og XXXL heldur útaukning á berustykki áfram eftir að útaukningu á ermum er lokið. Aukið út eins og útskýrt er í kaflanum hér að neðan: Í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar og 4 lykkjur fyrir berustykki. Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð), þannig: ÚTAUKNING ERMAR: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-9-6-9-6-8 sinnum = 72-76-79-85-88-92 lykkjur á ermum (meðtalin 1 lykkja með prjónamerki í hvorri hlið á ermi). ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-9-11-12-16-21 sinnum = 76-82-88-94-104-114 lykkjur á framstykki og 76-82-88-94-104-114 lykkjur á bakstykki. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, eru 296-316-334-358-384-412 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 38-41-44-47-52-57 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 72-76-79-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-94-104-114 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-76-79-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-41-44-47-52-57 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Haldið áfram fram hringinn í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 29 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Nú er aukið út um 37-40-42-47-51-55 lykkjur jafnt yfir = 201-216-234-255-279-303 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú A.1 hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkju og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 72-76-79-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 78-82-87-95-98-102 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-6-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við það. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Úrtöku í stærð S og M er nú lokið (= alls 1-1 lykkjur færri). Í stærð L, XL, XXL og XXXL er úrtakan endurtekin með ca 8-2½-2-2 cm millibili alls 1-3-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 2-4-5-5 lykkjur færri). Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 76-80-83-87-88-92 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til ermin mælist 27-25-25-23-22-21 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 9 cm að loka máli). Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 34-38-38-42-40-41 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-45-48-51 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 36-34-34-32-31-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fallingwatersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.