DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Falling Water

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsætum, puffermum og háum kraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-40
DROPS Design: Mynstur ks-179
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
275-300-325-350-375-425 g litur 37, norðursjór

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 7 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3.og 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Á UNDAN LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu f umferð frá réttu þar sem framstykkin, bakstykkið og axlarsætin eru prjónuð inn á sama prjón. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappgötum með ca 9½-9½-10-10-8½-9 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður með 2 þráðum.
Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Axlarsætin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru framstykkin, bakstykkið og axlarsætin sett inn á sama hringprjón, jafnframt því sem lykkjur eru teknar upp meðfram hliðum á axlarsætum. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 114-114-127-127-143-143 lykkjur á hringprjón 3 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 yfir næstu 24-24-27-27-30-30 lykkjur, A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, A.1 yfir næstu 36-36-39-39-45-45 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, A.1 yfir næstu 24-24-27-27-30-30 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka svona í 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 7 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 7 lykkjur í kanti að framan hafa nú verið fækkaðar til 5 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-18-21-21-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 1-0-2-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-38-41-41-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-2-3-1-5-5 lykkjur jafnt yfir (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-18-21-21-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 1-0-2-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 7 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (= 7 lykkjur í kanti að framan hafa nú verið fækkaðar til 5 lykkjur). Nú eru 104-108-116-120-128-128 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. það eru 17-18-19-20-21-21 lykkjur í hvoru framstykki, 34-36-38-40-42-42 lykkjur fyrir bakstykki og 13-13-15-15-17-17 lykkjur fyrir hvort axlarsæti.

Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu, en prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu og síðustu 5 lykkjur í umferð (= kantur að framan) og prjónið mynstur eins og áður yfir 13-13-15-15-17-17 lykkjur fyrir axlarsæti í hvorri hlið.
Prjónið síðan fram og til baka yfir hvort axlarsæti. Látið þær lykkjur sem eftir eru hvíla á prjóni eða setjið þær á þráð.

AXLARSÆTI:
Stykkið er prjónað fram og til baka með byrjun frá réttu yfir lykkjur fyrir axlarsæti í annarri hlið á hringprjón 3 og með 2 þráðum DROPS Kid-Silk þannig: Fitjið upp 1 lykkju í hlið (= kantlykkja), prjónið, prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri A.2 eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukin út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með þetta mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukin út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt.

Nú eru framstykkin, bakstykkið og axlarsætin sett inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar meðfram hliðum á axlarsætum. Byrjið frá réttu og á vinstra framstykki þannig:
VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 17-18-19-20-21-21 lykkjur á vinstra framstykki, prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti.
AXLARSÆTI: Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti).
BAKSTYKKI: Prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttprjón yfir næstu 34-36-38-40-42-42 lykkjur á bakstykki, prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á hinu axlarsætinu.
AXLARSÆTI: Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti).
HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp 14-14-14-15-15-15 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 17-18-19-20-21-21 lykkjur á hægra framstykki, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Nú eru 250-254-276-284-306-306 lykkjur í umferð.

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki innan við kant að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Fyrsta prjónamerki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 31-32-33-35-36-36 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= framstykki).
Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi).
Þriðja prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 62-64-66-70-72-72, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= bakstykki).
Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= ermi).
Prjónið sléttprjón yfir næstu 31-32-33-35-36-36 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, lykkjur eru auknar út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning á ermum og á berustykki:
Aukið er út jafnóðum, en í stærð L, XL, XXL og XXXL heldur útaukning á berustykki áfram eftir að útaukningu á ermum er lokið. Aukið út eins og útskýrt er í kaflanum hér að neðan:

Í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar og 4 lykkjur fyrir berustykki. Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð), þannig:
ÚTAUKNING ERMAR:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-9-6-9-6-8 sinnum = 72-76-79-85-88-92 lykkjur á ermum (meðtalin 1 lykkja með prjónamerki í hvorri hlið á ermi).
ÚTAUKNING BERUSTYKKI:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-9-11-12-16-21 sinnum = 38-41-44-47-52-57 lykkjur (+ 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) á framstykki og 76-82-88-94-104-114 lykkjur á bakstykki.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð, eru 306-326-344-368-394-422 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 19-21-22-24-25-27 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 43-46-49-52-57-62 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 72-76-79-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-94-104-114 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-76-79-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 43-46-49-52-57-62 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 174-186-202-218-238-258 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 29 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli).
Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 38-41-43-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 212-227-245-266-290-314 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið nú kant frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.3 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 72-76-79-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 78-82-87-95-98-102 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-6-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Úrtöku í stærð S og M er nú lokið (= alls 1-1 lykkjur færri).
Í stærð L, XL, XXL og XXXL er úrtakan endurtekin með ca 8-2½-2-2 cm millibili alls 1-3-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 2-4-5-5 lykkjur færri).
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 76-80-83-87-88-92 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 27-25-25-23-22-21 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 9 cm að loka máli). Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 34-38-38-42-40-41 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-45-48-51 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Ermin mælist ca 36-34-34-32-31-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunni sem prjónað var í af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Peters wrote:

Jeg kan ikke helt gennemskue, hvordan man kommer i gang med mønsteret på kraven, når man skal starte A3 med at stikke pinden gennem masken under næste maske (patentmaske). Der er jo ingen maske under opslaget?

13.01.2024 - 19:25

country flag Emmanuel wrote:

Bonjour, Deux tailles d'aiguilles sont recommandées : n°5 et n°3. Pour quelle taille d'aiguille la dimension de l'échantillon est-elle prévue ? Merci par avance,

05.11.2023 - 09:43

DROPS Design answered:

Bonjour Emmanuel, tricotez l'échantillon en jersey avec les aiguilles 5 (ou bien celles qui vous seront nécessaires pour avoir les bonnes dimensions). Bon tricot!

06.11.2023 - 08:24

country flag Vera Kristensen wrote:

Kan man strikke almindelig rib i halsen, og forkorte den? I så fald, skal man så skifte pindestr og maskeantal?

10.04.2023 - 18:57

DROPS Design answered:

Hej Vera, jo da, det bestemmer du jo selv :)

13.04.2023 - 12:04

country flag Gunnel Mohme wrote:

Jag funderar på att sticka "Falling Water" koftan. Men eftersom jag har några nystan Baby Merino över funderar jag på att kombinera en tråd Kid Silk med en tråd Baby Merino. Det borde väl fungera?

17.10.2022 - 11:09

DROPS Design answered:

Hei Gunnel. Ja, det skal fungere. Både DROPS Baby Merino og DROPS Kid-Silk tilhørere samme garngruppe (A). Men husk å dobbelsjekke strikkefasthet din med det som står i oppskriften. Og husk: vaske etter vaskeanvisning til den kvaliteten som er mest følsom (i dette tilfelle Kid-Silk). mvh DROPS Design

17.10.2022 - 13:31

country flag Rebekka Sundt wrote:

Hei igjen... om man skulle strikket en XS hvordan reduseres maskeantallet proporsjonert?

21.09.2022 - 12:32

DROPS Design answered:

Hej Rebekka, det kommer helt an på hvor stor du vil at XS skal være, vi kan desværre ikke hjælpe dig med at skrive opskriften om. :)

22.09.2022 - 14:42

country flag Rebekka Sundt wrote:

Hei! Angående lengden på armene i de ulike str, er det riktig at M skal være 25 cm og XXL 21 cm?

11.09.2022 - 22:12

DROPS Design answered:

Hei Rebekka. Ja, det stemmer. Det er kortere mål i de større størrelsene pga bredere skuldervidde. Når ermene strikkes ovenfra og ned, er det veldig praktisk å kunne prøve plagget på, slik at man kan måle og få den lengden man selv måtte ønske :) mvh DROPS design

12.09.2022 - 14:21

country flag Sylvie wrote:

Bonjour , pour le Col on demande de monter 114 mailles mais après quand on fait le compte des mailles à tricoter nous avons 1-24-12-36-12-24 et 1 mailles soit 110 mailles. Il y en a donc 4 non utilisées. Merci

20.02.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, votre décompte n'est pas tout à fait exact, pour que A.2 soit symétrique, on termine chaque section tricotée en A.2 par la 1ère m de A.2 et de même avec les 2 premières m de A.1, autrement dit: on tricote A.2 sur 12 mailles + la 1ère maille de A.2 = 13 mailles au total; et A.1 sur 36 mailles + les 2 premières mailles de A.1 = 38 mailles, vous avez retrouvé ainsi vos 4 mailles manquantes. Bon tricot!

21.02.2022 - 10:08

country flag Ulla wrote:

Mönster 227-40. Stickar storlek L . När man stickar ihop på stickor nr 5 har man 5+19+14+67(ärm)+14+38+14+67(ärm)+14+19+5=276maskor. När man sen skall sätta markörerna har man 5+33+65(ärm)+66+65(ärm)+33+5=272maskor. Jag antar att det skall vara 67m på vardera ärmen. Om detta sen får konsekvenser för maskantalet längre fram i beskrivningen vet jag inte eftersom jag inte kommit längre än. Mvh Ulla

07.02.2022 - 15:05

country flag Carmen wrote:

Collo: devo lavorare solo la 1^maglia di A2 e poi La sequenza di A1lavorare la 1° maglia di A.2, A.1 sulle 36 maglie? oppure solo le prime maglie di A2 e A1 in sequenza?

08.01.2022 - 22:28

DROPS Design answered:

Buonasera Carmen, deve lavorare la 1° maglia di A.2, poi 36 maglie in A.1, la prime 2 maglie di A.1 e 12 maglie di A.2 e così via. Buon lavoro!

08.01.2022 - 23:06

country flag Sabina Wouters wrote:

De 8 cm van de schouder trekt helemaal samen als je langs beide kanten 14 steken moet oprapen. Komt dat in orde als je verder breit

27.12.2021 - 13:25

DROPS Design answered:

Dag Sabina,

Bij een stekenverhouding van 17 steken = 10 cm kom je ongeveer op 14 steken over een lengte van 8 cm, dus het aantal steken zou wel moeten kloppen. Misschien moet je de steken iets losser opnemen?

28.12.2021 - 19:04