Marie-France ALTMAYER skrifaði:
Bonjour L'échantillon est il exécuté avec deux fils ?? si oui les deux fils seraient juste utilisés pour le rang de montage du col ?? Merci
13.10.2021 - 15:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Altmayer, ce gilet se tricote avec 1 seul fil DROPS Brushed Alpaca Silk, seul le montage se fait avec 2 fils pour qu'il soit suffisamment souple/élastique (cf cette vidéo) - on coupe ensuite un des deux fils pour continuer avec 1 seul fil. Bon tricot!
13.10.2021 - 16:37
Jannie Wouters skrifaði:
In het patroon staat dat aan elke kant van A1 tussen de overgangen van lijf en mouwen een steek gemeerderd moet worden. Dat zijn volgens mij 4 steken meerderen en er staat 8 per naald. Of moet er ook aan weerszijden van A1 , op de rug ook gemeerderd worden, dan zouden het wel 8 steken per naald zijn. Maar… op de rug moet er toch geen raglanmeerdering komen?
05.10.2021 - 10:35DROPS Design svaraði:
Dag Jannie,
Er moet inderdaad aan weerszijden van A.1 gemeerderd worden, dus aan weerzijden van alle 4 raglanlijnen, dan kom je op 8 steken per meerdernaald.
07.10.2021 - 11:13
Susanne skrifaði:
Hej - ved dobbelt halskant. Skal alle vrang pinde strikkes vrang over alle masker?
03.10.2021 - 16:44DROPS Design svaraði:
Hej Susanne. Nej det ska de inte. Du stickar så att mönstret fortsätter på samma sätt (dvs vridd ribb och A1). Mvh DROPS Design
04.10.2021 - 13:58
Betty Van Kruining skrifaði:
Bij de dubbele hals staat er dat ik 107 st. moet opzetten, (inclusief 5 voorbiessteken aan elke kant). Dit moet volgens mij exclusief de voorbiessteken zijn. Als ik alle st. optel kom ik op 117 steken.
23.09.2021 - 21:26
Bärbel Angueira Rey skrifaði:
Hallo, ich kann die Beschreibung der Halsblende nicht richtig verstehen . Es spasst immer die Maschen zahl nicht Was mache ich falsch :( :(
22.09.2021 - 21:06DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rey, welche Größe stricken Sie? so kann man Ihnen die genaue Beschreibung geben; danke im voraus!
23.09.2021 - 08:38
Laura skrifaði:
Bello pratico
12.08.2021 - 17:18
City Stride#citystridecardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með laskalínu. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og stroffprjóni í útaukningu í laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-2 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 9,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm eftir kant í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-9-9-9 cm millibili. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 7 lykkjur (= A.1) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið skiptist fyrir klauf og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 107-107-115-115-129-133 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan einungis með 1 þræði. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu og miðju að framan. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja snúin slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10-12-12-16-16 lykkjur, A.1 (= 7 lykkjur), * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 12 lykkjur, prjónið 1 lykkja snúin slétt, A.1 * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-20-24-24-30-34 lykkjur, 1 lykkja snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 12 lykkjur, prjónið 1 lykkja snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10-12-12-16-16 lykkjur, 1 lykkja snúin slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Síðar á að brjóta uppá kant í hálsmáli tvöfalt og við frágang þá verður kanturinn ca 6 cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir næstu 11-11-13-13-17-17 lykkjur og fækkið um 2-1-1-1-2-0 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 9-10-12-12-15-17 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 13 lykkjur og fækkið um 3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-25-25-31-35 lykkjur og fækkið um 3-1-1-1-1-1 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 18-20-24-24-30-34 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 13 lykkjur og fækkið um 3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 11-11-13-13-17-17 lykkjur og fækkið um 2-1-1-1-2-0 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 9-10-12-12-15-17 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 94-98-106-106-118-126 lykkjur eftir í umferð. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu), alls 16-18-20-22-25-26 sinnum = 222-242-266-282-318-334 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 37-40-44-46-52-55 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 42-46-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-78-82-94-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 37-40-44-46-52-55 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-178-190-214-230 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu – endið eftir umferð frá röngu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 40-43-47-50-56-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 44-48-52-56-62-66 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 5 kantlykkjur við miðju að framan og 2 lykkjur í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkja snúin slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Frá röngu er stroffið prjónað þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja snúin brugðið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja snúin brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 40-43-47-50-56-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 44-48-52-56-62-66 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 5 kantlykkjur við miðju að framan og 2 lykkjur í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkja snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. BAKSTYKKI: = 70-76-84-90-102-110 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 77-83-93-99-113-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka, en 2 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. ERMI: Setjið til baka 42-46-50-54-60-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-62-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 7-4-3½-2½-1½-1½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-10 sinnum = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-26-24-23-20-18 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið þráðinn frá og festið. Ermin mælist ca 40-38-36-35-32-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #citystridecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.