Liubov Vorotyntseva skrifaði:
Przytulny sweter
25.08.2021 - 19:01
Britta Sørensen skrifaði:
Jeg kan ikke printe opskriften på City Stride Sweater ud, jeg kan fint printe billederne, men det hjælper lige som ikke på opskriften. Hjælp mig please. Britta Sørensen
24.08.2021 - 13:49DROPS Design svaraði:
Hej Britta, Vi kan fint skrive opskriften ud. Hvis vi kan få mere information, så kan vi prøve at regne ud hvad der er galt... Hvilken weblæser bruger du, har du prøvet en anden...? Har du prøvet at starte om? Klikker du på "Skriv ud" knappen som ligger på selve opskriften?
24.08.2021 - 14:50
Deb Carpenter skrifaði:
I don't think the cost of this sweater given in the instrctions is correct, it's actually double as the put up of the yarn is 25g not 50g 😊
24.08.2021 - 10:54
June DEINHART skrifaði:
Coffeetime
11.08.2021 - 16:24
Ekaterina skrifaði:
Model "Crazy alpaca" or "Funny alpaca"
06.08.2021 - 11:55
Barbara skrifaði:
Love this sweater! Classic, comfy and timeless. The color is most delicious. I can almost taste a Hazelnut Latte. :) I adore the look of stockinette, yet have noticed an influx of designs centered around the garter stitch. :( Can't wait to make this sweater!
05.08.2021 - 07:35
Else Karin Jegteberg skrifaði:
Lilli chocolate
04.08.2021 - 22:15
Lena skrifaði:
Classic cosy brown
03.08.2021 - 20:25
City Stride Sweater#citystridesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffprjóni í útaukningu í laskalínu, háum kraga og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 7 lykkjur (= A.1) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hár kragi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. HÁR KRAGI: Fitjið upp 96-96-104-104-120-128 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan einungis með 1 þræði. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja snúin slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 10-10-12-12-16-18 lykkjur, A.1 (= 7 lykkjur), * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12 lykkjur, prjónið 1 lykkju snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-20-24-24-32-36 lykkjur, 1 lykkja snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 12 lykkjur, prjónið 1 lykkju snúin slétt, A.1, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir síðustu 10-10-12-12-16-18 lykkjur. Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið þannig: Sléttar lykkjur yfir fyrstu 11-11-13-13-17-19 lykkjur og fækkið um 2-1-1-1-2-2 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 9-10-12-12-15-17 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 13 lykkjur og fækkið um 3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-25-25-33-37 lykkjur og fækkið um 3-1-1-1-3-3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 18-20-24-24-30-34 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir næstu 13 lykkjur og fækkið um 3 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur), A.1, sléttar lykkjur yfir síðustu 10-10-12-12-16-18 lykkjur og fækkið um 1-0-0-0-1-1 lykkjur yfir þessar lykkjur (= 9-10-12-12-15-17 lykkjur) = 84-88-96-96-108-116 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð, alls 16-18-20-22-25-26 sinnum = 212-232-256-272-308-324 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 32-35-39-41-47-50 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-78-82-94-100 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 32-35-39-41-47-50 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-168-180-204-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. BAKSTYKKI: = 70-76-84-90-102-110 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 77-83-93-99-113-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka, en 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. FRAMSTYKKI: = 70-76-84-90-102-110 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir = 77-83-93-99-113-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka, en 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. ERMI: Setjið til baka 42-46-50-54-60-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-62-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 7-4-3½-2½-1½-1½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-10 sinnum = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-26-24-23-20-18 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Klippið þráðinn frá og festið. Ermin mælist ca 40-38-36-35-32-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #citystridesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.