Helene skrifaði:
"lakeside"
11.01.2021 - 22:54
Anne skrifaði:
Klassiker som garantert blir en favoritt! Går aldri av moten.
10.01.2021 - 20:42
Ina skrifaði:
Superschön und hoffentlich ein Gewinner
09.01.2021 - 20:33
Sylvaine skrifaði:
My sweat
09.01.2021 - 13:03
Sabine skrifaði:
Audrey
08.01.2021 - 19:25
Nastassia skrifaði:
"Deep Waters"
08.01.2021 - 14:13
Marlena skrifaði:
Classic chic
08.01.2021 - 13:51
Alexandra M skrifaði:
Pistachio Ice Cream
08.01.2021 - 08:41
Laura skrifaði:
”C'est Chic”
07.01.2021 - 18:26
Helena skrifaði:
Classic! I’m getting a 1960-s vibe!
07.01.2021 - 18:07
Sweet Sea#sweetseasweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hin prjónamerkin (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-136-140-152-164-168 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Alpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram þar til stroffið mælist ca 8-9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Byrjun á umferð = mitt að aftan. Teljið 19-23-23-26-28-29 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerkið hér (= á milli bakstykkis og ermi). Teljið 22-22-24-24-25-25 lykkjur og setjið 2. prjónamerki hér (= ermi). Teljið 38-46-46-52-57-59 lykkjur (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki hér. Teljið 22-22-24-24-25-25 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Það eru 19-23-23-26-29-30 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 26-28-32-36-40-44 sinnum = 328-360-396-440-484-520 lykkjur í umferð. Prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, byrjið mitt að aftan og prjónið að 2-1-1-1-3-5 lykkjum fram hjá 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-76-86-94-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Prjónið næstu 94-104-112-126-143-157 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-76-86-94-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin frá í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-222-238-266-300-328 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-22-22-23-23-23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 26-26-26-30-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð = 228-248-264-296-330-360 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-76-86-94-99-103 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-93-101-106-110 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-13-16-20-21-23 sinnum = 53-57-61-61-64-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-34-33-31-29-28 cm frá skiptingu – eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-1-1-1-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-64 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður, það er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur og að ekki sé saumuð lykkja fyrir lykkju – gerðu aðeins lengri og lausara spor. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetseasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.