Laila Mollerup skrifaði:
Jeg strikker på pind 3,5 for at strikkeprøven passer men jeg får kun 40 cm i bredden i stedet for 48 cm i str. S - der kan vel ikke være fejl i opskrift eller målskema. Jeg har købt Flora Beige Mix hos YarnLiving, men de kan ikke hjælpe med opskriften. Og jeg har købt 4 nøgler men nu kommer jeg jo så nok til at mangle 2 - og jeg kan ikke være sikker på at få samme parti...
20.09.2023 - 20:49DROPS Design svaraði:
Hej Laila, du har 232 masker deler med 24m(på 10 cm) = 96 cm (omkreds) deler med 2 = 48 cm.
26.09.2023 - 15:17
Nikol skrifaði:
What does it mean that you "work back and forth" ?
09.09.2022 - 16:07DROPS Design svaraði:
Dear Nikol, this means that you work back and forth in straight rows, i.e. you do not join the row in the round (circle), but work right side (RS) and wrong side (WS). Happy knitting!
10.09.2022 - 16:12
Maria Carla Minelli skrifaði:
Per favore potrei avere le spiegazioni per fare il Modello n° fl-064 con i ferri diritti e non circolari? Grazie Maria Carla Minelli
25.04.2022 - 08:10DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria Carla, può lavorare il modello in piano aggiungendo 1 maglia di vivagno per lato per la cucitura. Buon lavoro!
25.04.2022 - 13:20
Maja skrifaði:
Hvad er jeres målskema for str. s-m-ll osv.. På forhånd tak.
04.03.2022 - 09:26DROPS Design svaraði:
Hei Maja. Du finner målskisse til hver plagg nederst på siden. mvh DROPS Design
07.03.2022 - 14:25
Kolbrun skrifaði:
Hvem er jeg
01.11.2021 - 07:07
Kolbrun skrifaði:
Hva heter jeg
01.11.2021 - 07:06
Sharon skrifaði:
Am now doing the armholes of this sweater. What tur of decreased should be used here? Would like a nice professional look instead of a homemade look. S
10.10.2021 - 17:44DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, you can find the suggested decreases at the beginning of the pattern, under "explanations for the pattern". Happy Stitching!
10.10.2021 - 22:09
Eli Kleppe Madsen skrifaði:
Hei, hvor bestiller jeg denne strikkepakken?
28.09.2021 - 16:04
Lilli Østergård Jacobsen skrifaði:
Hej igen Forstår ikke. Strikkefasthed i opskrift 24×32 Men det garn jeg har siger 22× 28 Så kan ikke få strikkefasthed til at passe. Skal jeg så en strikkepind op? Mvh Lilli
21.05.2021 - 08:53DROPS Design svaraði:
Hej Lilli, for at få målene i opskriften skal du have samme strikkefasthed som der står i opskriften (24 masker på 10 cm). Hvis du har for få masker på 10 cm, så skal du prøve med en tyndere strikkepind. Det letteste er at bruge det garn som står i opskriften :)
21.05.2021 - 10:16
Lilli Østergård Jacobsen skrifaði:
Hej kan jeg strikke den i akrylgarn i Stedet.? 22 m. På 10 cm. 28 10×10
19.05.2021 - 08:42DROPS Design svaraði:
Hei Lilli. Du kan fint strikke den i et akrylgarn, men strikkefastheten som står i oppskriften må overholdes slik at målene vil stemme. mvh DROPS design
19.05.2021 - 10:34
Abby Vest#abbyvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-42 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 280 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 48) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 2 lykkjur. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli og kantur í kringum handveg á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 280-300-324-352-384-424 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist ca 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið sléttprjón og fækkið um 48-52-56-60-64-72 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 232-248-268-292-320-352 lykkjur – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir næstu 116-124-134-146-160-176 lykkjum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fellt er af fyrir handveg. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir handveg, byrjið 3 lykkjum á undan fyrra prjónamerkinu. Fellið af 6 lykkjur (prjónamerkið situr mitt í þessum lykkjum), prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af næstu 6 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum) og prjónið út umferðina. Héðan er nú framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir isg. FRAMSTYKKI: = 110-118-128-140-154-170 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, 1 lykkja í hvorri hlið 8-9-12-14-18-24 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 86-92-96-100-106-110 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, setjið miðju 22-22-26-26-28-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, fækkið um 1 lykkju 3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-2 = 23-26-26-28-30-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman). Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 110-118-128-140-154-170 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum innan við 2 lykkjur, 1 lykkja í hvorri hlið 8-9-12-14-18-24 sinnum = 86-92-96-100-106-110 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 38-38-42-42-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 23-26-26-28-30-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stykkið mælist nú 24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 124 til 140 lykkjur (meðtaldar 22-22-26-26-28-28 lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt op í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Notið stuttan hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 140 til 168 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í kringum handveg á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #abbyvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.