Katleen skrifaði:
Hallo, ik brei maat s. Na de eerste meerdering moet ik 1 steek meerderen. Na de tweede meerdering 1 steek minderen. Kan ik deze meerdering/ mindering niet gewoon weglaten want het aantal steken voor het lijf blijft idem ? Indien niet, waar moet ik de meerdering/ mindering doen ? Thanks.
06.03.2024 - 19:44DROPS Design svaraði:
Dag Kathleen,
Nadat je meerdering 1 hebt gebreid, brei je 1 naald recht waarbij je 1 steek meerdert. Dit wordt gedaan om later goed uit te komen met het aantal steken (aantal herhalingen van het telpatroon) als je meerdering 2 gaat breien.
06.03.2024 - 21:50
Diana Cleary skrifaði:
In the pattern after you pick up stitches for the sleeves it says to start knitting from the marker which is in the middle of the picked up stitches. How can you start there when your yarn is at the end of the picked up stitches?
17.03.2022 - 00:02DROPS Design svaraði:
Hi Diana, You can begin your round (before knitting up stitches under the sleeve, in the middle of these stitches or you can work round the sleeve before starting the next round at the marker. Happy knitting!
17.03.2022 - 06:48
Anonymous skrifaði:
In the diagram A1, do you knit one, increase one, knit one, increase one, and knit two, and then knit six stitches, or do you just ignore the top row? Thanks
23.08.2021 - 19:17DROPS Design svaraði:
Dear Anonymus, A.1 pattern starts out as a 4 stitch repeat, it has 2 yo in the 1st row, so in the SECOND row, it is 6 stitches. Our lesson on how to read knitting diagrams HERE might help you making sense of diagrams. Happy Stitching!
24.08.2021 - 03:25
Alessia skrifaði:
Ma secondo il Diagramma A.1 per lavorare su 4 maglie la legenda è : 1 dritto, 1 gettato doppio e 3 dritti? non riesco a capire il disegno. Mi potete aiutare per favore? grazie mille
16.03.2021 - 19:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Alessia, il 1° ferro di A.1 si lavora così: 1 diritto, 1 gettato, 1 diritto, 1 gettato, 2 diritti. Buon lavoro!
16.03.2021 - 21:22
Jane skrifaði:
What is a twisted knit stitch? Is it knitting into the back of the stitch?
09.03.2021 - 23:22DROPS Design svaraði:
Hi Jane, Yes that is correct, to twist the stitch you work in the back of the stitch. Happy knitting!
10.03.2021 - 07:28
Mel Be skrifaði:
I agree; Frappé.
14.01.2021 - 03:15
Anja skrifaði:
Frappé
08.01.2021 - 20:47
Mee Q skrifaði:
Beautiful figure flattering design on top of sweater! Love it!
07.01.2021 - 17:26
Crushed Walnuts Sweater#crushedwalnutssweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-15 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. (mynsturteikning A.3 til A.4 á við um stærð XL, XXL og XXXL). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 18. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 18. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 17. og 18. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-75-81-84-87-93 lykkjur á hringprjón 4 með Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt saman, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-5-7-8-13-15 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 76-80-88-92-100-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu og aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) alls 19-20-22-23-25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 114-120-132-138-150-162 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 115-120-135-140-150-165 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L, XL, XXXL aukið út 1-3-2-3 lykkjur og í stærð M og XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út) – munið er eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm aukið út þannig: ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 23-24-27-28-30-33 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 161-168-189-196-210-231 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 160-170-190-198-210-234 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 1 lykkju, í stærð M, L, XL og XXXL er aukið út um 2-1-2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15-16-16-18 cm, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Prjónið nú mynstur og aukið út þannig: ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 32-34-38 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 224-238-266 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20-22-24 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið nú mynstur og aukið út þannig: ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) alls 33-35-39 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 264-280-312 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 266-280-314 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð XL og XXXL er aukið út um 2-2 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-21-24 cm, prjónið þannig: FJÓRÐA ÚTAUKNING: Prjónið * 22-13-21 lykkjur slétt, prjónið A.4 yfir næstu 7 lykkjur *, prjónið frá *-* 9-14-11 sinnum, endið með 5-0-6 lykkjur slétt. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 284-308-336 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 26-28-30 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 224-238-266-284-308-336 lykkjur. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 32-34-38-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-69-76-83-90-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 32-35-38-42-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-158-172-186-200-220 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-13-17-18-19-20 lykkjur jafnt yfir = 156-171-189-204-219-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-57-59-64-70 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-67-69-74-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi (= 4-5-5-5-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-5-2-2-1½-1 cm millibili alls 4-4-7-7-8-10 sinnum = 48-52-53-55-58-62 lykkjur. Prjónið í sléttprjóni þar til ermin mælist 25-24-22-20-19-17 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-1-2-1-1-2 lykkjur jafnt yfir = 48-51-51-54-57-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 28-27-25-23-22-20 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crushedwalnutssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.