White Water Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-26 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem fækka/auka á út í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8-8½-9-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Axlir eru prjónaðar fram og til baka hvor fyrir sig. Síðan eru allar lykkjur settar á sama hringprjón jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram axlarsætum. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir ermum og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-102-106-106-110-122 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 12-15-15-15-15-18 lykkjum, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í A.1, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstra axlarsæti), prjónið A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli axlarsæti og bakstykkis), prjónið A.1 yfir næstu 30-30-30-30-30-36 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar í A.1, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægra axlarsæti), prjónið A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægra axlarsæti og hægra framstykki), prjónið A.1 yfir næstu 12-15-15-15-15-18 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 3 cm, klippið þráðinn frá. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Setjið fyrstu og síðustu 19-22-22-22-22-25 lykkjurnar á sitt hvorn þráðinn (= framstykki), hoppið yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur í hvorri hlið (= axlalykkjur), setjið miðju 32-32-32-32-32-38 lykkjurnar á þráð (= bakstykki). Prjónið nú axlarsætin hvort fyrir sig. AXLARSÆTI: = 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir axlalykkjur í annarri hlið á hringprjón 3 þannig: Fitjið upp 1 lykkju á prjóninn (= kantlykkja), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukið út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Nú er prjónað mynstur (1 klukkuprjónslykkja, 1 lykkja brugðið) fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið var aukið út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt. Prjónið nú framstykki, bakstykki og axlalykkjur inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsæti. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir 14-17-17-17-17-20 lykkjur og aukið jafnframt út 1-5-5-8-8-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 15-22-22-25-25-32 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti, prjónið 1 lykkju slétt * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann, 1 lykkja slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og það eru nú 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 32-32-32-32-32-38 lykkjur á bakstykki og aukið jafnframt út 9-9-9-15-15-9 lykkjur jafnt yfir (= 41-41-41-47-47-47 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsætinu, prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, 1 lykkja slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri og nú eru 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 14-17-17-17-17-20 lykkjur og aukið jafnframt út 1-5-5-8-8-12 lykkjur jafnt yfir (= 15-22-22-25-25-32 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Nú eru 261-275-293-321-339-353 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan - HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú mynstur og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 28-35-35-42-42-49 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= hægra framstykki). Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= hægri ermi). Þriðja prjónamerki: Prjónið A.3 yfir næstu 70-70-70-84-84-84 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= bakstykki). Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= vinstri ermi). Prjónið A.3 yfir næstu 28-35-35-42-42-49 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= vinstra framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Haldið áfram fram og til baka með mynstri svona (lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni) JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar ÚTAUKNING FYRIR ERMAR og ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI, aukið út eins og útskýrt er að neðan: ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón á ermum. JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út á ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-10-7-9-6-8 sinnum. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður á framstykki og bakstykki. JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út á framstykki og bakstykki og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-7-7-7-14-21 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 289-343-349-385-419-469 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-50-52-57-64-78 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-87-91-101-115-129 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 40-50-52-57-64-78 lykkjur eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-199-211-235-263-305 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður, en yfir 14-6-12-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp + 4-0-2-0-0-0 lykkjur hvoru megin við þessar lykkjur) prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 19-19-18-18-17-17 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 eins og áður yfir næstu 31-45-45-52-59-73 lykkjur, en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3 = 4-6-6-7-8-10 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14-6-12-10-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út 4-3-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 73-87-87-101-115-129 lykkjur en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3 = 10-12-12-14-16-18 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14-6-12-10-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út 4-3-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 31-45-45-52-59-73 lykkjur, en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3 = 4-6-6-7-8-10 lykkjur færri), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 163-181-199-217-241-277 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 2 síðustu lykkjurnar í A.1, síðan er prjónað A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – klukkuprjónslykkjan í A.1 á að passa yfir sléttar lykkjur í A.3. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir garðaprjóns lykkjur og klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 64-78-77-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 70-84-85-95-98-102 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 22-20-18-16-15-12 cm frá skiptingu – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú er eftir ca 9 cm stroff að loka máli), fækkið um 28-42-40-47-47-51 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-48-51-51 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 31-29-27-25-24-21 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Sareith wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas la partie les brins relever 16-16-16-20-20-20 mailles à 1 maille lisière du bord le long du côté de l'épaule, tricoter 1 maille endroit, *1 maille endroit dans le brin avant et dans le brin arrière de la maille suivante, 1 jeté *, Avez vous une video ?
04.03.2021 - 19:34DROPS Design answered:
Bonjour Mme Sareith, tout à fait, cette vidéo montre comment tricoter une maille d'abord dans le brin avant, puis dans le brin arrière. Bon tricot!
05.03.2021 - 07:29Mette wrote:
I størrelse M har man 275 masker på pinden efter at have strikket skuldrene og samlet arbejdet. Ifølge opskriften er efterfølgende fordeling 5 (kantmasker h side), 38 m (h forstykke), 56 m (h ærme), 73 m (bagstk), 56 m (v ærme), 38 m (v forstykke), 5 m (kantmasker v side). Dette giver kun 271 masker, så jeg ender ud med 4 masker for meget, idet der er 175 (ikke 171) masker på pinden. Er det ikke en fejl, eller misforstår jeg noget?
01.03.2021 - 07:44DROPS Design answered:
Hej Mette, forstykke 5+35+3+1=44, ærme 56+1=57, bagstykke 70+3+1=74, ærme 56+1=57, forstykke 35+3+5=43 ialt 275 masker. God fornøjelse!
08.03.2021 - 12:00Desiree wrote:
Vielen Dank für die schnelle Rückmeldung. Bei der Sattelschulter verstehe ich nicht ganz das Muster. Schlage ich in jeder Hin- und Rückrunde am Anfang und am Ende eine Masche (also eine neue Randmasche) an? Oder nur in der Hinrunde oder nur einmalig? Und wie stricke ich die neue entstanden Maschen, wenn die vorherigen "Randmaschen" dann keine mehr sind? Vielen Dank für die Rückmeldung.
18.02.2021 - 17:34DROPS Design answered:
Liebe Desiree, die Randmaschen werden nur bei der 1. Reihe über diese Maschen angeschlagen/zugenommen, dh 1 Rand-Masche beidseitig anschlagen, und gleichzeitig (auch nur) bei der 1. Reihe wird 1 linke Masche in jedem Link-Bereich zugenommen = 21-24-27 M auf der Nadel. So stricken Sie diese Maschen weiter mit der 1. Masche in A.2 und 2 linke Maschen dazwischen bis die Schulter 7-8 cm nach den Zunahmen misst. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2021 - 07:29Desiree wrote:
Und noch eine zweite Frage. Welche Randmaschen könnt Ihr für die Strickarbeit empfehlen?
16.02.2021 - 19:08DROPS Design answered:
Liebe Desiree, bei A.1 muss man mit den 2 ersten Maschen enden, dh die 96 Maschen stricken Sie so: 5 Blenden-Maschen, A.1 (12 M), die ersten 2 Maschen von A.1, Markierer, A.2 (= 13 M), Markierer, A.1 (30 M), die ersten 2 Maschen von A.1, Markierer, A.2 (=13 M), Markierer, A.1 (12 M), die ersten 2 Maschen von A.1, 5 Blenden-Maschen. Da waren sicher die fehlende 6 Maschen. Die Randmaschen schlagen Sie nicht extra, die sind hier inbegriffen. Viel Spaß beim stricken!
17.02.2021 - 07:52Desiree wrote:
Hallo, ich möchte die Größe S Stricken. Bei der Halsblende habe ich 96 Maschen angeschlagen. Zählt zu der Blende (mit den 5 Maschen) auch eine Randmasche, oder ist diese zusätzlich? Zudem ist es so, wenn ich die zweite Reihe anschlage, dass ich bei 5+12+13+30+13+12+50 = 90 Maschen komme. Was passiert mit den restlichen 6 Maschen (bzw. 4 Maschen wenn die zwei Randmaschen nicht in der Blende enthalten sind)? Habe ich einen Denkfehler oder etwas übersehen? Vielen Dank für Eure Rückmeldung.
16.02.2021 - 19:04Cara wrote:
Thank you for the quick response! unfortunately it's still a little unclear for me. i understand how to cast on extra stitches at the beginning and end of each row, but would i then work the newly cast on stitches in the same pattern as the rest of the shoulder portion? or am i slipping the stitches in order to create a selvedge? i appreciate the help very much!
15.02.2021 - 09:47DROPS Design answered:
Dear Cara, you can work them in stocking stitch or in garter stitch, you will later pick up stitches inside these edge stitches. We are used to work the edge stitches in garter stitch, but you can choose another way as you rather. Happy knitting!
15.02.2021 - 10:41Cara wrote:
Hello there! during the saddle shoulder portion, what does it mean to cast on 1 stitch on row? and how would you then work it afterwards?
15.02.2021 - 04:12DROPS Design answered:
Dear Cara, you are working with a new yarn/ball: cast on 1 stitch on needle, then work the 13-15-17 stitches for shoulder (do not forget to increase as explained) and cast on one stitch at the end of the row (as shown in this video). Continue working as explained. These stitches are the edge stitches for the shoulders but will be kepd then later on piece (they won't be decreased/cast off). Happy knitting!
15.02.2021 - 09:23Eileen Di Cenzo wrote:
Summer Breeze
13.01.2021 - 19:29Evelyn wrote:
Love this pattern - hopefully it will come online soon
11.01.2021 - 19:12Rosemary wrote:
Jeg elsker denne cardiganen!!!
08.01.2021 - 23:39