White Water |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-25 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Axlirnar eru prjónaðar fram og til baka hvor fyrir sig. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram öxlum og síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur, jafnframt því sem aukið er út fyrir ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-90-94-106-110-110 lykkjur á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: A.1 yfir fyrstu 15-15-15-18-18-18 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 (= ca hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlalykkjur), setjið eitt prjónamerki hér, A.1 yfir næstu 30-30-30-36-36-36 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlalykkjur), setjið eitt prjónamerki hér, A.1 yfir síðustu 15-15-15-18-18-18 lykkjur (= ca hálft bakstykki). Haldið svona áfram hringinn í 3 cm. Klippið þráðinn. Nú skiptist stykkið fyrir bakstykki, framstykki og axlarsæti. Setjið fyrstu 17-17-17-20-20-20 lykkjur á þráð (= ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), setjið næstu 32-32-32-38-38-38 lykkjur á þráð (= framstykki), hoppið yfir næstu 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= axlarsæti), setjið síðustu 15-15-15-18-18-18 lykkjur á þráð (= ca hálft bakstykki). Nú eru axlarsætin prjónuð í hvorri hlið, hvort fyrir sig. AXLARSÆTI: = 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Prjónið fram og til baka yfir axlalykkjur í annarri hlið á hringprjón 3 þannig: Fitjið upp 1 lykkju á prjóninn (= kantlykkja), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur í mynstri eins og áður, jafnframt þar sem allar 1 lykkja brugðið er aukið út til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 (= 6-6-7-7-8-8 lykkjur fleiri), fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 21-21-24-24-27-27 lykkjur. Nú er prjónað mynstur (1 klukkuprjónslykkja, 2 lykkjur brugðið) fram og til baka þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm frá þar sem allar 1 lykkja brugðið var aukið út til 2 lykkjur brugðið – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Setjið lykkjurnar á þráð. Prjónið hitt axlarsætið á sama hátt. Prjónið nú framstykki, bakstykki og axlalykkjur inn á sama hringprjón 5, jafnframt því sem lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsæti. Prjónið frá réttu þannig: Byrjið ca mitt að aftan og prjónið sléttar lykkjur yfir 17-17-17-20-20-20 lykkjur á hálfu bakstykki og aukið jafnframt út 5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 22-22-22-25-25-25 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á axlarsæti, prjónið 1 lykkju slétt * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri = 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 32-32-32-38-38-38 lykkjur á framstykki og aukið jafnframt út 9-9-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir (= 41-41-41-47-47-47 lykkjur), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hlið á hinu axlarsætinu, prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt í fremri og aftari lykkjubogann á næstu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 18-18-21-21-24-24 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju, prjónið 1 lykkju slétt (= 37-37-43-43-49-49 lykkjur fleiri = 58-58-67-67-76-76 lykkjur á axlarsæti), prjónið upp 16-16-16-20-20-20 lykkjur innan við kantlykkju meðfram hinni hliðinni á axlarsæti, prjónið sléttar lykkjur yfir 15-15-15-18-18-18 lykkjur á ca hálfu bakstykki og aukið jafnframt út 4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir (= 19-19-19-22-22-22 lykkjur). Nú eru 262-262-280-308-326-326 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki ca mitt að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú mynstur og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Prjónið A.3 yfir fyrstu 35-35-35-42-42-42 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjurnar í A.3, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (= hálft bakstykki). Annað prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju (= hægri ermi). Þriðja prjónamerki: Prjónið A.3 yfir næstu 70-70-70-84-84-84 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.3, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju (= framstykki). Fjórða prjónamerki: Prjónið sléttprjón yfir næstu 56-56-65-65-74-74 lykkjur, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju (= vinstri ermi). Prjónið A.3 yfir síðustu 35-35-35-42-42-42 lykkjur (= hálft bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Haldið áfram hringinn með mynstri svona (lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni), JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar ÚTAUKNING FYRIR ERMAR og ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI, aukið út eins og útskýrt er að neðan: ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón á ermum. JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út á ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-10-7-9-6-8 sinnum. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI (á við um framstykki og bakstykki): Prjónið mynstur eins og áður á framstykki og bakstykki. JAFNFRAMT í næstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir berustykki þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út á framstykki og bakstykki og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-7-7-7-14-21 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 290-330-336-372-406-442 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 42-45-47-52-59-66 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-87-91-101-115-129 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-78-77-85-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 39-42-44-49-56-63 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-186-198-222-250-278 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður, en yfir 14-6-12-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp + 4-0-2-0-0-0 lykkjur hvoru megin við þessar lykkjur) prjónið sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 19-19-18-18-17-17 cm frá skiptingu. Stillið af að síðasta umferð sem er prjónuð sé 2., 4., 6. eða 8. umferð í mynsturteikningu A.3 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið mynstur eins og áður, en hoppið yfir uppsláttinn í hverri mynstureiningu A.3 (= það er fækkað um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.3), jafnframt er aukið út um 4-3-6-5-5-5 lykkjur jafnt yfir 14-6-12-10-10-10 lykkjur slétt í hvorri hlið (= 20-24-24-28-32-36 lykkjur færri og 8-6-12-10-10-10 lykkjur fleiri í umferð) = 162-168-186-204-228-252 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjurnar í A.1, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 – klukkuprjónslykkjan í A.1 á að passa yfir sléttar lykkjur í A.3. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 64-78-77-85-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 70-84-85-95-98-102 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 21-20-19-15-14-13 cm frá skiptingu – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú er eftir ca 9 cm stroff að loka máli), fækkið um 28-42-40-47-47-51 lykkjur jafnt yfir = 42-42-45-48-51-51 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 30-29-28-24-23-22 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (66)
Jonna Mellin Askling wrote:
Flot
08.01.2021 - 10:08Ruth wrote:
'Rita'
08.01.2021 - 00:36Aina wrote:
Othelia
07.01.2021 - 23:44ANA wrote:
Me encanta este jersey el dibujo y las mangas
07.01.2021 - 22:23Mandy Horan wrote:
Love it, so elegant.
07.01.2021 - 17:08Ilona Teššeny wrote:
It so beautiful, I would like to knit it.
07.01.2021 - 16:27