Franziska wrote:
Guten Tag, In der passe stebt, nach a3 kommt A380. Dann x Maschen auf der Nadel und im Muster wie zuvor weiterstricken, bis die Arbeit eine Länge von 18cm hat. Welches Muster ist denn nun hier gemeint? A3a und a3b sind doch nun fertig… Und mir ist ein Fehler unterlaufen.. ich habe beim ersten Mal a1b, a2b und a4b direkt raufgesetzt. Kann ich nun wie beschrieben nur a1a etc stricken oder fällt der Fehler zu sehr auf und ich muss meine Arbeit neu machen? Was meinen Sie?
18.03.2024 - 20:55Cait wrote:
When working from diagram, e.g. A1, k1, p2, inc., p2, k1. This is row 1. Is the next row on the diagram row 2, wrong side, the return row or row 3, the right side?
05.03.2024 - 08:26DROPS Design answered:
Dear Cait, diagrams show all rows, the RS and the WS rows; rows from WS are read from the left towards the right, so that, on row 2 in A.1 work; P1, K2, P3, K2, P1. Happy knitting!
05.03.2024 - 09:23Cait wrote:
What does the symbol that looks like 0 between two squares mean
01.03.2024 - 12:57DROPS Design answered:
Dear Cait, this symbol is for a yarn over, see 6th and 7th symbol under diagram text; the 6th symbol = white 0 will be worked in the front loop of stitch on next row to make a hole; the 7th symbol = black 0 will be worked twisted on next row to avoid a hole. Happy knitting!
01.03.2024 - 14:31Stefanie wrote:
Hallo, ich habe nun die Blende gestrickt und würde bei der passe anfangen, allerdings frage ich mich, wie die rückreihe geht. Ich bin in der ersten Reihe von A1, die Hin Reihe ist klar, aber stricke ich den Teil, wo ich die drei Maschen gestrickt habe und zwei zugenommen habe, in der Rückreihe rechts?
20.02.2024 - 10:30DROPS Design answered:
Liebe Stefanie, die Rückreihe werden auch im Diagram gezeichnet, die lesen Sie aber links nach rechts, so bei der 2. Reihe A.1 stricken Sie: 1 M links, 2 M rechts, 3 M links, 2 M rechts, 1 M links. Viel Spaß beim stricken!
20.02.2024 - 15:39Diana wrote:
Hola, estoy haciendo un modelo talla L. No me queda claro cuántas veces hay que hacer los aumentos del raglán para llegar a los 401 puntos.
30.08.2023 - 04:11DROPS Design answered:
Hola Diana, en la primera fila de los diagramas A.1, A.2 y A.4 aumentas 2 puntos en cada repetición. Por lo tanto, partes de 137+8 aumentos de A.1, 4 aumentos de A.2 y 4 aumentos de A.4 en total en la vuelta = 153 puntos. Aparte de esto, tienes 12 aumentos en el diagrama A.3a en total en cada repetición, a medida que vas trabajando el diagrama. Con esto tendrías: 153 + 24 = 177 puntos. A estos puntos les sumas las 28 filas con 8 aumentos para el raglán en cada (224). 224+ 177 = 401 puntos.
03.09.2023 - 19:13Bernadette Durandiere wrote:
Bonjour, n'y a-t-il pas un oubli de maille sur votre graphique A4 b ? il y a une augmentation à la 9ème ligne du diagramme mais elle n'apparaît pas au dessus contrairement au diag. A2 b en haut à gauche ? je ne suis pas encore arrivée à ce niveau (commencé avant-hier) mais je voudrais en avoir le coeur net. Merci
04.05.2023 - 16:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Durandiere, il semble effectivement qu'il manque une maille dans A.4b après l'augmentation - cette maille doit se tricoter à l'endroit, comme l'augmentation de A.2b, merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier et corriger cela le plus vite possible. Bon tricot!
05.05.2023 - 07:57Anni wrote:
200 g garn til str. L er for lidt. Jeg brugte 250 g.
28.03.2023 - 18:38Chantal Bonneton wrote:
Bonjour, J’ai une question concernant les augmentations du raglan : lorsque vous dites « augmenter 28 fois tous les 2 rangs » faut-il compter le rang envers - comme dans tous les tricots, et qui n’apparaît pas dans les diagrammes- où est-ce tous les 2 rangs endroit du diagramme. Et là, ce ne serait plus tous les 2 rangs, mais tous les 4 rangs ? Merci beaucoup pour votre réponse. Chantal
27.05.2022 - 09:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bonneton, quand on doit augmenter pour le raglan tous les 2 rangs, on augmente tous les rangs sur l'endroit (= 1 rang sur l'endroit avec augmentation, 1 rang sur l'envers sans augmentation, et on répète ces 2 rangs) ; quand on doit augmenter tous les 4 rangs, on augmente tous les 2 rangs sur l'endroit (=1 rang sur l'endroit avec augmentation, 1 rang sur l'envers+1 sur l'endroit+1 sur l'endroit sans augmenter à chacun de ces 3 rangs et on répète ces 4 rangs). Bon tricot!
27.05.2022 - 09:31Maria Teresa wrote:
Buongiorno di iniziato la maglia ma notò una differenza quando lavoro A1fino A1a lavorando conto 14ferri poi devo ripetere A1a x 24 volte ma se io guardo il disegno della maglia vedo che A1a inizia subito dopo qualche ferro il mio inizia dopo parecchio e non mi corrisponde come la foto dove sbaglio che non riesco a capire visto che i giri di ogni ferro corrispondo solo al diritto grazi x aiuto
22.04.2022 - 12:00DROPS Design answered:
Buonasera Maria Teresa, i diagrammi mostrano tutti i ferri del lavoro: può spiegarci esattamente il suo problema? Buon lavoro!
01.05.2022 - 23:32
Springs Surrender Jacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-39 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LYKKJUFJÖLDI: Þar sem bæði er fækkað lykkjum og fjölgað í A.1a, A.2a, A.3a og A.4a, kemur lykkjufjöldinn til með að breytast eftir því hvaða umferð er talið í (eftir því hvort fækka hafi lykkjum/fjölgað í mynstri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, fellið af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur – sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju og uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-8½-9-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 119-131-137-143-146-155 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 6-9-9-9-9-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 7 lykkjur). Vinstri ermi: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 4 lykkjur), A.3a (= 17-17-17-23-23-23 lykkjur), A.4 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón. Bakstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 11-17-23-17-20-23 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 7 lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 4 lykkjur, A.3 yfir 17-17-17-23-23-23 lykkjur, A.4 yfir 4 lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón. Hægra framstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 6-9-9-9-9-12 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 22-24-28-33-37-40 sinnum. Þegar fyrstu 3 umferðirnar í mynstri A.1, A.2 og A.3 hafa verið prjónaðar, endurtakið A.1a, A.2a og A.4a áfram á hæðina. Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b (= 29-29-29-35-35-35 lykkjur) yfir A.3a. Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið, eru 335-363-401-447-482-515 lykkjur í umferð – sjá LYKKJUFJÖLDI. Prjónið áfram þetta mynstur þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Stillið af að næsta umferð sé umferð með heildarfjölda lykkja (þ.e.a.s. 335-363-401-447-482-515 lykkjur), þar sem lykkjufjöldinn getur verið mismunandi vegna úrtöku/útaukningar í mynsturteikningu. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 50-55-59-66-72-77 lykkjur eins og áður, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 89-99-109-121-136-147 lykkjur, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 50-55-59-66-72-77 lykkjurnar. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 1205-225-243-269-296-317 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 54-59-63-70-76-81 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 97-107-117-129-144-155 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Þegar síðasta endurtekning af A.1a frá berustykki hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið A.1b yfir hvert A.1a. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 201-221-239-265-292-313 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 185-205-223-249-276-297 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum cm alls 9 sinnum = 221-241-259-285-312-333 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu, aukið út 12-13-13-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 233-254-272-299-326-347 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING: ERMI: Setjið 73-77-87-97-101-107 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 81-85-95-105-109-115 lykkjur – munið eftir lykkjufjölda. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum mitt undir ermi þannig: Prjónið A.2a, A.3b og A.4a yfir miðju lykkjur, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt. Þegar A.3b hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3c yfir A.3b. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 3-3-3-3-5-5 sinnum, síðan er lykkjum fækkað með 2 cm millibili alls 2-2-2-2-0-0 sinnum = 71-75-85-95-99-105 lykkjur. Í síðustu umferð í A.3c er aukið út um 0-1-2-0-1-1 lykkjur á undan mynstri og 2-0-1-2-0-0 lykkjur á eftir mynstri = 73-76-88-97-100-106 lykkjur. Þegar A.3c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 14-12-11-10-8-6 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 15-18-24-24-27-30 lykkjur, A.2b yfir A.2a, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í A.3c, A.4b yfir A.4a, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 15-15-21-24-24-27 lykkjur og endið með 2 lykkjur brugðið = 75-78-90-99-102-108 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 17-15-14-13-11-9 cm frá skiptingu, fellið síðan af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Cait wrote:
Thank you so much for your prompt reply. It is much appreciated 😊
05.03.2024 - 09:30