Jutta wrote:
In der Anleitung steht bei passe: wenn die ersten 3 runden von a1,a2 und a3 gestrickt wurden…. Ich kann a3 nicht finden. Nur A3a, A3b und a3c
15.03.2024 - 16:37DROPS Design answered:
Liebe Jutta, in diesem Satz Wenn die ersten 3 Runden von A.1, A.2 und A.3 gestrickt wurden, A.1a, A.2a und A.4a in der Höhe wiederholen. soll es nicht A.3 heissen sondern A.4. Danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!
18.03.2024 - 07:57Paula wrote:
What are the finished chest measurements?
08.03.2024 - 17:04DROPS Design answered:
Dear Paula, all measurements you can find in the drawing below the pattern instructions and charts. Happy knitting!
09.03.2024 - 21:56Genevieve wrote:
Hi. I am now working on M Size. Have finished yoke, separated sleeves and now have completed chart A.1b. I have 214 stitches instead of 210 stitches! After separating the sleeves and cast on 8 stitches for under arm, there's 214 stitches and I didn't see any decrease in chart.
12.02.2024 - 07:56DROPS Design answered:
Hi Genevieve, There is a decrease of 1 stitch in each repetition of A.1b, which reduses your stitch count from 214 to 210 stitches before continuing with stocking stitch. Happy knitting!
12.02.2024 - 08:04Karin wrote:
Gibt es die Anleitung auch in Deutsch?
10.08.2023 - 13:31DROPS Design answered:
Liebe Karin, ja sicher, klicken Sie auf dem drop-down Menu unter die Fotos um die Sprache zu wechseln. Viel Spaß beim stricken!
10.08.2023 - 14:16Pauline wrote:
Bonjour. Pour la partie "dos et devant". Lorsque A.1b a été tricoté une fois , faut il reprendre à A.1a ou ne faire que A.1b tout le temps ? Merci pour votre aide
17.06.2023 - 17:06DROPS Design answered:
Bonjour Pauline, quand A.1b est fait, on tricote toutes les mailles en jersey, même les mailles de A.1b. Bon tricot!
19.06.2023 - 08:36Karina wrote:
Jubii! Færdig med min trøje. Men! Den er alt for kort :-/ Den når mig kun til over navlen. Jeg har lavet den 24 cm fra delingen og brugt alt garnet. Det forstår jeg simpelthen ikke?
08.05.2023 - 21:18Mariana Brorsson wrote:
När jag kommer till varv 24 på XL storleken skall de aviga maskorna förskjutas för att bredda mönstret. Får inte ihop det då det då går in i det tidigare mönstret.
05.03.2023 - 11:38DROPS Design answered:
Hej Mariana, jeg gætter på at det er A.3a du spørger om. De 2 nye masker kommer fra de 2 omslag du lavede i midten af diagrammet for seneste pind. Sæt gerne et mærke i hver side af diagrammet, så du starter diagrammet samme sted hver gang :)
08.03.2023 - 08:24Tracy Plowright wrote:
How do I continue with row 2 A3a as per the diagram it's 25sts, but if I do 25sts I won't have enough stitches to complete the row correctly. I am so confused. Thank you
19.02.2023 - 05:10DROPS Design answered:
Dear Tracy, in the first row of A.3a, in the middle symbol, we work 3 stitches in 1 stitch (so we have increased 2 stitches from 23 stitches = 25 stitches). In the 2nd row, we work over all of these stitches, included the ones increased in the previous row. Happy knitting!
19.02.2023 - 19:36Teresa Astray wrote:
Muchas gracias por la rápida respuesta. No me había fijado en que se repiten solo la sección A.
07.02.2023 - 14:16
Spring Surrender |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-40 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LYKKJUFJÖLDI: Þar sem bæði er fækkað lykkjum og fjölgað í A.1a, A.2a, A.3a og A.4a, kemur lykkjufjöldinn til með að breytast eftir því hvaða umferð er talið í (eftir því hvort fækka hafi lykkjum/fjölgað í mynstri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, fellið af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur – sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju og uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-120-126-132-135-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Hálft berustykki: Prjónið 6-9-9-9-9-12 lykkjur slétt, A.1 (= 7 lykkjur). Hægri ermi: Prjónið 2 lykkjur slétt, A.2 (= 4 lykkjur), A.3a (= 17-17-17-23-23-23 lykkjur), A.4 (= 4 lykkjur), 2 sléttar lykkjur. Framstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 11-17-22-17-19-23 lykkjur slétt, A.1 yfir 7 lykkjur. Vinstri ermi: Prjónið 2 lykkjur slétt, A.2 yfir 4 lykkjur, A.3a yfir 17-17-17-23-23-23 lykkjur, A.4 yfir 4 lykkjur, 2 lykkjur slétt. Hálft bakstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 5-8-9-8-9-11 lykkjur slétt. Prjónið 1 umferð áfram með þetta mynstur. Í næstu umferð er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 22-24-28-33-37-40 sinnum. Þegar fyrstu 3 umferðirnar í mynstri A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað, endurtakið A.1a, A.2a og A.4a áfram á hæðina. Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b (= 29-29-29-35-35-35 lykkjur) yfir A.3a. Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið, eru 324-352-390-436-471-504 lykkjur í umferð – sjá LYKKJUFJÖLDI. Prjónið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Stillið af að næsta umferð sé umferð með heildar fjölda lykkja (þ.e.a.s. 324-352-390-436-471-504 lykkjur), þar sem lykkjufjöldinn getur verið mismunandi vegna úrtöku/útaukningar í mynsturteikningu. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 45-50-54-61-68-73 lykkjur eins og áður, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 89-99-108-121-134-145 lykkjur, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 44-49-54-60-67-72 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-214-232-258-285-306 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið mitt á milli 8 lykkja undir hvorri ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 97-107-116-129-142-153 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 97-107-116-129-143-153 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Þegar síðasta endurtekning af A.1a á berustykki hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið A.1b yfir hvert A.1a. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 190-210-228-254-281-302 lykkjur í umferð. Prjónið áfram hringinn i sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 174-194-212-238-265-286 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum cm alls 9 sinnum = 210-230-248-274-301-322 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu, aukið út 12-13-13-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 222-243-261-288-315-336 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING: ERMI: Setjið 73-77-87-97-101-107 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 81-85-95-105-109-115 lykkjur – munið eftir lykkjufjölda. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum mitt undir ermi þannig: Prjónið A.2a, A.3b og A.4a yfir miðju lykkjur, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt. Þegar A.3b hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3c yfir A.3b. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 3-3-3-3-5-5 sinnum, síðan er lykkjum fækkað með 2 cm millibili alls 2-2-2-2-0-0 sinnum = 71-75-85-95-99-105 lykkjur. Í síðustu umferð í A.3c er aukið út um 0-1-2-0-1-1 lykkjur á undan mynstri og 2-0-1-2-0-0 lykkjur á eftir mynstri = 73-76-88-97-100-106 lykkjur. Þegar A.3c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 14-12-11-10-8-6 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 15-18-24-24-27-30 lykkjur, A.2b yfir A.2a, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í A.3c, A.4b yfir A.4a, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 15-15-21-24-24-27 lykkjur og endið með 2 lykkjur brugðið = 75-78-90-99-102-108 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 17-15-14-13-11-9 cm frá skiptingu, fellið síðan af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Elin wrote:
Hej! När jag gör mönstret i L, är det 4 fler maskor på framstycket än bakstycket. Det blir rätt maskantal men när jag nu ska flytta över maskor till ärmarna hamnar ärmarna inte symmetriskt. Varför är det såhär?
23.02.2024 - 15:15