DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Springs Surrender Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-39
DROPS Design: Mynstur z-887
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-200-250-250-300 g litur 3112, daufbleikur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

LYKKJUFJÖLDI:
Þar sem bæði er fækkað lykkjum og fjölgað í A.1a, A.2a, A.3a og A.4a, kemur lykkjufjöldinn til með að breytast eftir því hvaða umferð er talið í (eftir því hvort fækka hafi lykkjum/fjölgað í mynstri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, fellið af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur – sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju og uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-8½-9-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 119-131-137-143-146-155 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með stroff í 2 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 6-9-9-9-9-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 7 lykkjur).
Vinstri ermi: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 4 lykkjur), A.3a (= 17-17-17-23-23-23 lykkjur), A.4 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 11-17-23-17-20-23 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 7 lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 4 lykkjur, A.3 yfir 17-17-17-23-23-23 lykkjur, A.4 yfir 4 lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 6-9-9-9-9-12 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 22-24-28-33-37-40 sinnum.
Þegar fyrstu 3 umferðirnar í mynstri A.1, A.2 og A.3 hafa verið prjónaðar, endurtakið A.1a, A.2a og A.4a áfram á hæðina.
Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b (= 29-29-29-35-35-35 lykkjur) yfir A.3a.
Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið, eru 335-363-401-447-482-515 lykkjur í umferð – sjá LYKKJUFJÖLDI.
Prjónið áfram þetta mynstur þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki.
Stillið af að næsta umferð sé umferð með heildarfjölda lykkja (þ.e.a.s. 335-363-401-447-482-515 lykkjur), þar sem lykkjufjöldinn getur verið mismunandi vegna úrtöku/útaukningar í mynsturteikningu. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir fyrstu 50-55-59-66-72-77 lykkjur eins og áður, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 89-99-109-121-136-147 lykkjur, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 50-55-59-66-72-77 lykkjurnar.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 1205-225-243-269-296-317 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 54-59-63-70-76-81 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 97-107-117-129-144-155 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum.
Þegar síðasta endurtekning af A.1a frá berustykki hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið A.1b yfir hvert A.1a.
Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 201-221-239-265-292-313 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 185-205-223-249-276-297 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum cm alls 9 sinnum = 221-241-259-285-312-333 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu, aukið út 12-13-13-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 233-254-272-299-326-347 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING:

ERMI:
Setjið 73-77-87-97-101-107 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 81-85-95-105-109-115 lykkjur – munið eftir lykkjufjölda. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum mitt undir ermi þannig:
Prjónið A.2a, A.3b og A.4a yfir miðju lykkjur, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt.
Þegar A.3b hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3c yfir A.3b.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 3-3-3-3-5-5 sinnum, síðan er lykkjum fækkað með 2 cm millibili alls 2-2-2-2-0-0 sinnum = 71-75-85-95-99-105 lykkjur.
Í síðustu umferð í A.3c er aukið út um 0-1-2-0-1-1 lykkjur á undan mynstri og 2-0-1-2-0-0 lykkjur á eftir mynstri = 73-76-88-97-100-106 lykkjur.
Þegar A.3c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 14-12-11-10-8-6 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 15-18-24-24-27-30 lykkjur, A.2b yfir A.2a, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í A.3c, A.4b yfir A.4a, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 15-15-21-24-24-27 lykkjur og endið með 2 lykkjur brugðið = 75-78-90-99-102-108 lykkjur.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 17-15-14-13-11-9 cm frá skiptingu, fellið síðan af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2020
Leiðrétting: Breyting í mynsturteikningu A.4. Í viðbót hefur textinn verið uppfærður með meiri upplýsingum hvernig mynsturteikning A.1a, A.2a og A.4a er endurtekin á hæðina.
Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning A.3b (6. umferð), stærð XL-XXL-XXXL.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.09.2023
Leiðrétting í mynsturteikningu A.4b

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur í lykkju þannig: Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem var prjónuð af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna slétt 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan lykkjunum af vinstri prjóni = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem fækkað hefur verið um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Springs Surrender Jacket

Valeria, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Glenda Bloch wrote:

Don't worry about my last question - it worked out - I see one is not supposed to count the "yarn overs" as stitches - in the first row of A3B the number of stitches is 335 after an overall total of 23 raglan increases - one needs to count after a row 2 of A1a, A2a and A4a , and NOT after a row 4 where one has put the yarn over, which is where one is in the pattern at the end of the increases. Maybe this could be explained more clearly in the pattern? Thanks - loving knitting this!

21.09.2021 - 09:31

country flag Glenda wrote:

I am struggling with the pattern from where the raglan increase is supposed to be completed (after row 45, if I do a total of 22 raglan increases around A1 including the 1st increase row, 3rd row of yoke). It says there will be 335 stitches, but I only have 319. If I go up to row 47 (i.e. do 23 raglan increases around A1 in total) then I'll have too many stitches. There is no way I can get to 335 stitches, and so I don't know how to continue. Please help! I have put so much work in already :(

20.09.2021 - 17:18

DROPS Design answered:

Dear Glenda, you started with 119 sts, increase 16 sts in total in A.1-A.2,A.4 + 12 sts in each A.3 (= 24 sts in total) + 8 sts a total of 22 times for the raglan (= 8*22=176), so that there are: 119+16+24+176=335 sts (when there are K3 in each A.1, A.2, A.4). Hope this will help, happy knitting!

21.09.2021 - 08:33

country flag Wolf wrote:

Bonjour Je suis au début du travail j'ai terminé A.1a, A.2a, A.4a, maintenant je dois continuer sur A.1b,A.2b et A.4b ou je reviens au A.1a ? etc etc. je dois tricoter que A?1a, A.2a, A. 4a jusqu'à hauteur désirée ? Jusqu'à ce que toutes les augmentions pour le raglan soient terminées ?Merci beaucoup pour votre aide

12.07.2021 - 11:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wolf, effectivement, lorsque les 3 premiers rangs de A.1, A.2 et A.4 ont été tricotés, vous ne tricotez et répétez que les 4 rangs suivants = la partie A.1a/A.2a/A.4a du diagramme. Vous tricoterez A.1b au début de la partie DOS & DEVANTS et A.2b/A.4b à la fin des manches seulement (quand ce sera indiqué). Bon tricot!

12.07.2021 - 16:20

country flag Wolf wrote:

Je ne comprends pas vos diagrammes A.1- A.2-A.4 lequel est pour XL ? L ?\r\nEchantillon j\'ai 30 m contre vos 24 je ne peux pas augmenter la taille des aiguilles sinon trop lâche. Je prends la taille au dessus pour arriver à la mienne et avoir un suivi de diagramme correspondant ?\r\nMerci pour vos réponse

29.06.2021 - 13:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wolf, les diagrammes A.1, A.2 et A.4 sont les mêmes pour toutes les tailles, seuls les diagrammes A.3a, A.3b et A.3c sont différents en fonction de la taille. Lavez éventuellement et faites sécher votre échantillon pour vérifiez les mesures finales, le respect de l'échantillon en largeur aussi bien en hauteur est le garant de l'obtention des mesures indiquées dans le schéma pour chaque taille. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon tricot!

29.06.2021 - 15:59

country flag Orchid wrote:

Hi, There is no mentioning when to use diagram A 2b and A4b in the pattern. Is this a mistake? I have read through it a few times now.

16.06.2021 - 23:01

DROPS Design answered:

Dear Orchid, in the very last part of the pattern, at the end of the sleeves it says "Work next round as follows: * Knit 1, purl 2 *, work from *-* over the first 15-18-24-24-27-30 stitches, A.2b over A.2a, continue with knit over knit and purl over purl over stitches in A.3c, A.4b over A.4a, * purl 2, knit 1 *, work from *-* over 15-15-21-24-24-27 stitches and finish with purl 2 = 75-78-90-99-102-108 stitches." In here will you find A.2b and A.4b diagrams. Happy Stitching!

17.06.2021 - 01:30

country flag Signe Karlsson wrote:

Det står att alla varv i mönstret sett från rätsidan menas det att aviga varvet är inräknat?

03.05.2021 - 09:23

DROPS Design answered:

Hei Signe. Ja, mønstret fra vrangen er også i diagrammet (pinne 2, 4, 6 osv). Da leser du diagrammet fra venstre til høyre og husk les diagramtekstforklaringen på hvordan det strikkes. mvh DROPS design

03.05.2021 - 15:28

country flag Michelle wrote:

Où trouver les corrections "mises en ligne le 04/06/2020 et le 26/02/2021 ? Sans elles, impossible de réaliser ce modèle

17.04.2021 - 12:49

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, si vous aviez imprimé ce modèle avant ces dates, alors il peut être sage d'imprimer à nouveaux les explications, sinon, le modèle en ligne est juste ainsi. Bon tricot!

19.04.2021 - 07:58

country flag Renata wrote:

Dzień dobry, bardzo proszę o podpowiedź w jaki sposób wykonać następujące polecenia: "nabrać 8 oczek pod rękawem" oraz "nabrać 1 oczko w każde z 8 oczek nabranych pod rękawem" - w jaki sposób je nabrać? Czy po nabraniu 1 w każde 8 ma być ich 16? Czy one także mają być zdjęte na drut pomocniczy? Serdecznie pozdrawiam

28.03.2021 - 01:07

DROPS Design answered:

Witaj Renato, zobacz film TUTAJ. Na 1-sze pytanie odpowiedź jest od 7-mej minuty. Na drugie od 10-tej: tutaj uwaga, oczka są nabierane oddzielnie (czyli inaczej niż we wzorze, który wykonujesz) i otwór pod rękawem zostanie na końcu zszyty. Możesz tak oczywiście zrobić. Nabrać oczko w każde z 8 oczek nabranych pod rękawem oznacza, że za pomocą drutu pończoszniczego wbijasz się w każde z tych 8 oczek i przeciągasz pętelkę, po nabraniu będziesz miała 8 oczek pod rękawem i będziesz dalej wykonywać rękaw na okrągło (nie będzie otworu pod rękawem). Powodzenia!

28.03.2021 - 17:18

country flag Heidi Funk wrote:

Jeg er i tvivl om raglan udtagningen efter mønster A1. Skal jeg blive ved med at foretage udtagningen lige efter mønster A1 eller skal udtagningerne foretages en maske længere ude end forrige udtagning,- således at det er ærmestykkerne der får flere masker mens forstykke og ryg forbliver samme maskeantal? Håber mit spørgsmål er til at forstå. Venlig hilsen Heidi

25.03.2021 - 22:39

DROPS Design answered:

Hej Heidi, du tager altid ud til raglan lige før og lige efter A.1 God fornøjelse!

21.04.2021 - 15:56

country flag Johanne Boilard wrote:

Quand on écrit monter 119 mailles y compris 5 mailles de chaque côté pour la bordure. Les mailles sont-elles comprises dans le 119 mailles ou faut-il les ajouter aux 119.

17.03.2021 - 22:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boilard, vous n'avez pas besoin de les monter en plus, elles sont déjà comprises dans les 119 mailles. Bon tricot!

18.03.2021 - 09:43