DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Owl Feathers

Prjónað sjal úr DROPS Delight og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og tveggja lita blaðamynstri í klukkuprjóni.

DROPS 203-13
DROPS Design: Mynstur de-204
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 80 cm.
Breidd: Mælt meðfram efstu hlið frá hlið að hlið = ca 160 cm.

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 18, haustskógur
Og notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 302, kamel

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
19 lykkjur á breidd og 44 umferðir (22 umferðir taldar í sléttu lykkju) á hæ með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón og blaðamynstri í klukkuprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTLYKKJA Í GARÐAPRJÓNI:
Þar sem prjónaðar eru 2 umferðir frá réttu og strax á eftir 2 umferðir frá röngu, verður að prjóna sléttu lykkjurnar þannig: * slétt frá réttu, brugðið frá réttu, brugðið frá röngu, slétt frá röngu *, prjónið frá *-*.
Kantlykkjurnar eru prjónaðar með tvöföldum þræði í hvert skipti sem 2 þræðir eru frá sömu hlið.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13.
A.1 og A.4 = hliðar á sjali.
A.3 = miðja á sjali.

KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM (fram og til baka):
Randarmynstur er prjónað í klukkuprjóni eins og útskýrt er í A.1 til A.13.
Til að fá fram tveggja lita áhrifin, prjónið rendur til skiptist með 1 umferð í litnum kamel og 1 umferð í litnum haustskógur.
* Prjónið 1 umferð frá réttu með litnum kamel, færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Prjónið síðan 1 umferð frá réttu með litnum haustskógur.
Prjónið 1 umferð frá röngu með litnum kamel, færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð frá röngu með litnum haustskógur *, prjónið frá *-* til loka.
Opin rúða og fyllt rúða (utan við mynsturteikningu) sýna ef umferðin sé prjónuð frá réttu eða röngu. Rúðan sýnir einnig ef umferðin sé prjónuð með litnum kamel eða haustskógur. Sjá LEIÐBEININGAR-1 að neðan.

LEIÐBEININGAR-1:
Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð þegar klukkuprjón með tveimur litum er prjónað ef prjónað með uppslætti, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því sjá litinn á kantlykkju.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um lykkjufjölda):
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er talinn sem 1 lykkja.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í röndum með tveggja lita blaðamynstri í klukkuprjóni.
Klukkuprjóns mynstrið fer yfir í sléttprjón með rönguna út, með klukkuprjóns lykkjum í lóðréttum röndum á milli. Síðan ná klukkuprjóns lykkjurnar yfir í sólfjaðramynstur og sléttprjóni með rönguna út á milli þessa.

SJAL:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum kamel.
Prjónið fyrstu umferð þannig (= ranga): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 11 lykkjur.
Prjónið næstu umferð með litnum kamel þannig (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir (uppsláttur er prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið næstu umferð með litum kamel þannig (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Snúið stykkinu. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN Í TVEIMUR LITUM og KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan.

PRJÓNIÐ A.1A, A.2, A.3A og A.4A ÞANNIG:
Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1A (= 2 lykkjur), prjónið A.2 (= 3 lykkjur), prjónið A.3A (= 1 miðju lykkja), prjónið A.2 (= 3 lykkjur) og endið með A.4A (= 2 lykkjur).
Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 59 lykkjur á prjóni – sjá LEIÐBEININGAR-2. Stykkið mælist ca 9 cm meðfram miðju lykkju.

PRJÓNIÐ A.1B, A.5, A.6, A.7, A.3B og A.4B ÞANNIG:
Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1B (= 2 lykkjur), prjónið A.5 (= 9 lykkjur), A.6 (= 8 lykkjur), prjónið A.7 (= 10 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 miðju lykkja), prjónið A.5 (= 9 lykkjur), prjónið A.6 (= 8 lykkjur), prjónið A.7 (= 10 lykkjur) og endið með A.4B (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 75 lykkjur í umferð.
Endurtakið síðan A.1B, A.5, A.6, A.7, A.3B og A.4B á hæðina, í hvert skipti sem mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hefur verið aukið út um alls 16 lykkjur í umverð og í hverri endurtekningu á hæðina er pláss fyrir 1 einingu fleiri af A.6 á breiddina á milli hverra A.5 og A.7. Haldið svona áfram þar til A.6 hefur verið prjónað alls 13 sinnum á hæðina = 267 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 50 cm meðfram miðju lykkju.

PRJÓNIÐ A.1C, A.8, A.9, A.10, A.3C og A.4C ÞANNIG:
Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1C (= 2 lykkjur), prjónið A.8 (= 9 lykkjur), prjónið A.9 yfir næstu 112 lykkjur (= 14 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.10 (= 10 lykkjur), prjónið A.3C (= 1 miðju lykkja), prjónið A.8 (= 9 lykkjur), prjónið A.9 yfir næstu 112 lykkjur (= 14 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.10 (= 10 lykkjur) og endið með A.4C (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 491 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 70 cm meðfram miðju lykkju.

PRJÓNIÐ A.1D, A.11, A.12, A.13, A.3D og A.4D ÞANNIG:
Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1D (= 2 lykkjur), prjónið A.11 (= 25 lykkjur), prjónið A.12 yfir næstu 192 lykkjur (= 8 mynstureiningar með 24 lykkjum), prjónið A.13 (= 26 lykkjur, prjónið A.3D (= 1 miðju lykkja), prjónið A.11 (= 25 lykkjur), prjónið A.12 yfir næstu 192 lykkjur (= 8 mynstureiningar með 24 lykkjum), prjónið A.13 (= 26 lykkjur) og endið með A.4D (= 2 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.12 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 531 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 80 cm meðfram miðju lykkju.
Fellið af með litnum haustskógur frá röngu – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – ATH: Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja – að auki er slegið 1 sinni aukalega á milli hverra lykkja á uppsláttar (þessi uppsláttur er prjónaður eins og 1 lykkja og er síðan felldur af eins og hinar lykkjurnar). Þetta er gert til að sólfjaðrirnar fái fallegt bogalaga form.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.09.2019
Ný mynsturteikning: A.2, A.5, A.6 og A.7.
Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
Allar mynsturteikningar hafa verið leiðréttar. Leiðrétting - PRJÓNIÐ A.1A, A.2, A.3A og A.4A ÞANNIG:
Prjónið með byrjun frá réttu þannig: Prjónið A.1A (= 2 lykkjur), prjónið A.2 (= 3 lykkjur), prjónið A.3A (= 1 miðju lykkja), prjónið A.2 (= 3 lykkjur) og endið með A.4A (= 2 lykkjur).
Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 59 lykkjur á prjóni – sjá LEIÐBEININGAR-2. Stykkið mælist ca 9 cm meðfram miðju lykkju.
Leiðrétting á 7. mynsturtexta.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.04.2021
Mynsturteikning A.11, A.12 og A.13 hefur verið leiðrétt. Mynsturtákn undir stjörnunni hefur verið skipt út.

Mynstur

symbols = prjónið með litnum kamel, byrjið hér
symbols = prjónið með litnum haustskógur, byrjið hér

symbols = KANTLYKKJA Í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju af hægri prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 3 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman = 3 lykkjur (þ.e.a.s. 2 lykkjur fleiri)
symbols = prjónið 5 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman án þess að lyfta lykkjunni af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri)
symbols = prjónið 5 lykkjur og 3 uppslætti (= alls 8 lykkjur) saman þannig: Lyftið yfir fyrstu 3 lykkjurnar og 2 uppslætti á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjurnar og 1 uppslátt slétt saman, lyftið 5 óprjónuðu lykkjunum (meðtalinn uppsláttur) frá hægri prjón yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (þ.e.a.s. 4 lykkjur færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Heidi wrote:

Hallo, ich möchte dieses Tuch für meine Schwiegertochter stricken. Da sie sehr groß ist, möchte ich fragen, ob man das Tuch auch verlängern kann. Und wenn ja, wie. Vielen Dank für Ihre Hilfe. Liebe Grüße und danke für die tollen Anleitungen. Ich habe schon einige davon gestrickt.

11.05.2023 - 08:57

DROPS Design answered:

Liebe Heidi, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, gerne können Sie mal Ihr DROPS Laden nach persönnlicher Hilfe bitten - oder schauen Sie vielleicht, ob Ihnen ein größres Tuch gefällt. Viel Spaß beim stricken!

11.05.2023 - 16:26

country flag Monica wrote:

Ik zit helemaal vast in het gedeelte van A1c, A8, A9, A3C en A4C. Op rij 10 staan zwarte vakjes, maar er is niet bij elke steek een omslag. Bijv. de 1e 3 zwarte vakjes van A8 kloppen, maar de 4e heeft dus geen omslag. Dit zelfde probleem is ook bij A9 en A10 van dezelfde rij. Wat doe ik hier fout? Alvast bedankt voor de hulp.

03.01.2023 - 18:16

DROPS Design answered:

Dag Monica,

Bij de vierde steek in A.8 heb je op de vorige naald een omslag gemaakt en de steek averecht afgehaald. Deze omslag en afhaling brei je nu, in rij 10, samen. Bij A.10 is dit ook het geval, maar dan op het einde. Kan het zijn dat het 7e de symbool in de lijst, waarbij je 2 steken meerdert door 3 steken in een rechte steek en omslag te breien, verwarring heeft opgeleverd?

04.01.2023 - 21:01

country flag Carolyn Bremner wrote:

Why did you take the zoom feature off your patterns? I really miss it.

21.07.2022 - 17:19

country flag Monika Koster wrote:

Kann ich alles bei Drops einssehen

08.06.2022 - 21:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Koster, alle unsere Anleitungen können kostenlos gelesen und gedruckt werden. Am Ende jeder Anleitung-Seite finden Sie auch eine Liste von Lektionnen sowie Videotutorials, die Ihnen auch helfen kann. Gerne können Sie auch Ihre Frage hier stellen. Viel Spaß beim stricken!

09.06.2022 - 08:28

country flag Sab wrote:

Ce modèle est très joli mais pour tricoteurs/euses confirmé/es. J'ai pas mal galéré à le réaliser. Je tricote serré donc le châle est plus petit que sur l'image même si je l'ai étiré au maximum

05.02.2022 - 12:50

country flag DELATTRE Marie-Pierre wrote:

Bonjour. J. ai fait des essais, vu les vidéos ms je n. arrive pas à démarrer ce modèle. Je n. arrive pas à comprendre, lorsqu. on arrive aux rangs envers 1°) suit-on le diagram de gauche à droite ou continue-t-on à suivre de droite à gauche ? 2°) Faut-il inverser 1 jete/ une m glissée à l. envers par 1 m glissée à l. endroit ? Et du coup le jeté se fait il après ? Merci de votre aide. J. ai hâte de le démarrer....

11.11.2021 - 00:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Delattre, dans ce modèle, vous alternez 2 rangs sur l'endroit et 2 rangs sur l'envers (cf côtes anglaises bicolores). Vous devez donc lire les 2 rangs sur l'endroit de droite à gauche et les 2 rangs sur l'envers de gauche à droite - suivez la légende des symboles, elle est adaptée aux rangs sur l'endroit et aux rangs sur l'envers. Pensez également que vous pouvez ralentir les vidéos pour prendre plus de temps à bien regarder si besoin. Bon tricot!

11.11.2021 - 08:58

country flag George wrote:

Your instructions made absolutely no sense at all. Who taught you how to write patterns??

11.10.2021 - 22:53

country flag Chaignepain Francoise wrote:

Bonjour,dois je insérer un motif de A6 à côté du premier de chaque côté de la maille centrale ou bien juste avant la maille centrale de chaque côté. Cela bien sûr après avoir augmenté les 16 mailles. Merci de votre réponse

11.04.2021 - 10:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chaignepain, quand A.5, A.6 et A.7 son terminés, vous avez 11+9+16 m (=35m); tricotez-les ainsi: A.5, 2x A.6, A.7 (=9+8+8+10 m), la fois suivante, vous aurez 3xA.6 de la même façon (=9+8+8+8+10m) et ainsi de suite. Et ceci de chaque côté de la maille centrale. Bon tricot!

12.04.2021 - 09:37

country flag Irunn Bakkane wrote:

Hvis jeg har fortått riktig, og det tviljer jeg på men...: 2. og 4. omgang hver syklus skal strikkes fra vrangen pga. at en tar arbeidet over på ny pinne. Dermed leser en 3. og 4. rad fra venstre mot høyre og speiler det en skal gjøre. (Vrangt blir rett osv.) Men hvorfor ikke strikke vanlig? Da leser en 2. og 4. omgang vrangt istedet og får like mye stress med det, men slipper å ta over masker. Evt. tar maskene over hele tiden slik at en slipper å lese mønsteret vrangt.

07.03.2021 - 23:31

country flag Bettina Nielsen wrote:

Jeg er i gang med dette smukke sjal, jeg har strikket pind 13 i første mønster, efter denne pind kan jeg ikke få maskeantallet til at passe jeg mangler 2 masker på hver side af midtermasken, jeg har lavet det om 100 gange uden resultat. Jeg er en virkelig erfaren strikker og har aldrig opgivet et projekt.

04.01.2021 - 14:28

DROPS Design answered:

Hej Bettina, har du set videoen hvor vi strikker pind nr 13? Du skal få 2 nye masker i hver side af diagrammet (ialt 4 nye masker ifølge diagrammet). God fornøjelse!

15.01.2021 - 13:34