December Dunes |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Alpaca eða DROPS Lace. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, gatamynstri og öldumynstri.
DROPS 203-17 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GATAUMFERÐ: Þegar gataumferð er prjónuð, á að auka út í byrjun á hverri umferð eins og áður. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgagn af lykkjum slétt. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 33 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 2,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Ef prjónfestan passar ekki, getur sjalið fengið rangan lykkjufjölda ef þú þarft að prjóna fleiri eða færri umferðir en þær sem gefnar eru upp til að fá rétt mál í cm. Það er hægt að laga þessi frávik í næstu útauknings umferð. Ef prjónað er of fast, þannig að 6 cm verði ekki 30 umferðir garðaprjón, heldur t.d. 32 umferðir garðaprjón, koma til með að vera 4 eða 2 lykkjur ofaukið í umferð (ef þetta er gert á undan eða á eftir ÚTAUKNING 3). Ef prjónað er of laust, koma til með að vera of fáar lykkjur í umferð þegar prjónað er að uppgefnu máli í cm. Þetta er hægt að laga í næstu útauknings umferð, þannig að fjöldi lykkja passi við lykkjufjölda sem gefinn er upp þegar útaukning hefur verið prjónuð til loka MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. FORMUN: Leggið stykkið í volgt vatn þar til það er orðið gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Rúllið síðan stykkinu upp í handklæði og pressið til þess að ná enn meira vatni úr stykkinu – nú á stykkið að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða á dýnu – dragið stykkið varlega út í þá stærð sem stendur efst í útskýringu undir STÆRÐ og látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem stykkið er þvegið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Meiri hlutinn af sjalinu er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, kantur neðst niðri er prjónaður í öldumynstri. SJAL: Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með Alpaca eða Lace. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið sléttprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umferðir garðaprjón frá byrjun = 29 lykkjur. Prjónið 1 GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur fleiri) = 33 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚTAUKNING 1: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir, sjá ÚTAUKNING-1 í útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt = 45 lykkjur. Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón (meðtalin útaukning) frá fyrri gataumferð = 53 lykkjur. * Prjónið 1 GATAUMFERÐ. Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón á eftir gataumferð *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 85 lykkjur. Prjónið 1 GATAUMFERÐ (= 4 lykkjur fleiri) = 89 lykkjur. ÚTAUKNING 2: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21 lykkjur jafnt yfir. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt = 110 lykkjur. Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til stykkið mælist 6 cm frá fyrri gataumferð, það jafngildir ca 30 umferðum garðaprjón (meðtalin fyrri útaukning) = 166 lykkjur. Ef lykkjufjöldinn passar ekki, er hægt að jafna hann til í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan. ÚTAUKNING 3: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 57 lykkjur jafnt yfir. Það eiga að vera 223 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. ATH: Nú breytist útaukningin í hliðum frá 2 lykkjum yfir í 1 lykkju (í gataumferð er einnig aukið einungis um 1 lykkju í hlið í hverri umferð). Aukið út og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af lykkjum slétt (= 1 lykkja fleiri). Prjónið garðaprjón og aukið svona út í hliðum þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón frá fyrri útaukningu = 229 lykkjur. * Prjónið 1 GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan. Prjónið garðaprjón og haldið áfram með að auka út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 4 umferðir garðaprjón á eftir gataumferð *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 253 lykkjur. Prjónið 1 GATAUMFERÐ (= 2 lykkjur fleiri) = 255 lykkjur. Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm frá fyrri gataumferð, það jafngildir ca 14 umferðum garðaprjóni = 269 lykkjur. Ef lykkjufjöldinn er ekki sá sami, er hægt að jafna hann til í næstu útauknings umferð – sjá ÚTAUKNING-2. Prjónið 1 GATAUMFERÐ (= 2 lykkjur fleiri) = 271 lykkjur. ÚTAUKNING 4: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 64 lykkjur jafnt yfir. Það eiga að vera 335 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Prjónið garðaprjón og haldið áfram að auka út um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm frá fyrri gataumferð, það jafngildir 14 umferðum garðaprjóni = 349 lykkjur. Stykkið mælist ca 25 cm mælt frá miðju frá uppfitjunarkanti og niður. Það er mikilvægt að lykkjufjöldinn passi vegna mynsturteikningar. Prjónið e.t.v. 2 umferðir garðaprjón til að jafna lykkjufjöldann en hann passar ekki. Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 15 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (A.1 er endurtekinn 23 sinnum) og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er slegið uppá prjóninn jafnframt því sem fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn yfir lykkjurnar sem var uppsláttur í mynstri, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Passaðu uppá að herða ekki á þræðinum. Ef kanturinn er enn of stífur, notaðu þá grófari prjón til að fella af með. Klippið þráðinn frá og festið enda. Nú er sjalið tilbúið og hægt er að skola það og forma til, ef maður vill – sjá FORMUN í útskýringu að ofan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Danielle Langlois wrote:
Combien de mêtres de fil faut-il pour faire ce châle
14.04.2024 - 22:37DROPS Design answered:
Bonjour Mme Langlois, 1 pelote Alpaca fait environ 167 m (cf nuancier et il faut 5 pelotes (250 g / 50 g la pelote); 1 écheveau de 100 g Lace (avant d'être sous forme de pelote, Lace était sous forme d'écheveau) faisait environ 800 m (cf fils épuisés. Bon tricot!
15.04.2024 - 08:27Eva wrote:
Guten Tag, beinhalten die Musterzeichnungen die Rückreihen oder nicht? danke LG Eva
15.05.2023 - 12:18DROPS Design answered:
Liebe Eva, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, die Hin-Reihen (lesen Sie rechts nach links) sowie die Rückreihen (lesen Sie links nach rechts). Viel Spaß beim stricken!
15.05.2023 - 13:23Sabbi wrote:
Sind bei Diagramm A1 nur die Hinreihen oder auch die Rückreihen angegeben? Mich irritiert, dass beim Zeichen Karo mit Minuszeichen drinnen = 1 Masche rechts in Rück-Reihen steht. Wie strickt man da in der Hinreihe?
11.04.2022 - 16:16DROPS Design answered:
Es sind sowohl Hin- als auch Rück-Reihen angegeben. Das "Minuszeichen-Symbol" gibt es nur in Rück-Reihen, darum ist eine Beschreibung, wie es in Hin-Reihen gestrickt wird, überflüssig. Viel Spaß beim Stricken!
13.04.2022 - 20:49Gordana wrote:
Vielen Dank für die Anleitung Bin schon beim 2. Fast fertig 3 ist schon in Planung LG
22.11.2021 - 23:40Maria Grazia Alcanello wrote:
Buon giorno e grazie per la presentazione di tanti modelli veramente deliziosi. Ho realizzato questo scialle, ma per l'insolita forma, credo di aver sbagliato a non continuare gli aumenti all'inizio di ogni giro, a cominciare dal punto pavone. E' così ? Grazie e cordiali saluti.
25.10.2021 - 16:06DROPS Design answered:
Buonasera Maria Grazia, per la parte a punto pavone deve lavorare come indicato, con 2 maglie di vivagno a ogni lato. Buon lavoro!
26.10.2021 - 19:52Sabine wrote:
Bonjour J’en suis au 4ème rang de jours dans le point de vagues et en regardant de plus près la photo du modèle je constate que la grille ne correspond pas ! Le nombre de jours n’est pas identique !? D’autres part : il n’y a plus d’augmentations sur les côtés quand on tricote la grille finale ? Ce châle n’est donc pas vraiment triangulaire ? Merci
22.06.2021 - 23:29DROPS Design answered:
Bonjour Sabine, le châle n'est pas un triangle mais plutôt un demi ovale très allongé; lorsque vous tricotez le point de vagues, vous n'augmentez plus que dans le point de vagues (il se tricote d'abord sur 15 m et quand il est terminé, vous aurez 25 m dans chaque A.1). Bon tricot!
23.06.2021 - 07:54Silke wrote:
Wann gibt es die Drops LACE mit der Lauflänge 400mm/50g wieder im Programm, damit ich es nachstricken kann.?
04.05.2021 - 06:32DROPS Design answered:
Liebe Silke, sowas haben wir nicht vor, aber wenn Sie die selbe Zusammensetzung möchten, dann können Sie gerne DROPS Baby Alpaca Silk stricken. Viel Spaß beim stricken!
04.05.2021 - 07:53Sabine wrote:
Was bedeuten die Symbole in R9,15... bei dem Muster A1?
10.01.2021 - 14:22DROPS Design answered:
Liebe Sabine, bei der 9. Reihe haben Sie Abnahmen und Umschläge, dh die 9. Reihe stricken Sie so: 1 Masche abheben, 1 Masche rechts und die abgehobene Masche über die gestrickte ziehen, 3 Maschen rechts, (1Umschlag, 1 Masche recht), von (bis) insgesamt 5 Mal stricken, 1 Umschlag, 3 Maschen rechts, 2 Maschen rechts zusammne = 1+3+ 2x5 + 1 +3+1=19 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2021 - 09:35Natalia wrote:
Hallo, ich würde gerne wissen, ob die Maschenprobe sich auf die Maschenanzahl beim Stricken bezieht oder auf die Maschenanzahl nach dem Spannen?
21.12.2020 - 19:26DROPS Design answered:
Liebe Natalia, die Maschenprobe wird gemessen, wenn die Maschen auf der Nadel sind/beim stricken!. Viel Spaß beim stricken!
22.12.2020 - 09:55Hauchecorne Nathalie wrote:
Bonjour , j aimerais savoir si ce chale je peux le faire au point de jersey au lieu du point mousse ? Et si le nombre de pelote changera ? Merci de votre réponse. Bonne journée
23.11.2020 - 10:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Hauchecorne, ce modèle a été créé et calculé sur la base d'un point mousse, comme la hauteur point mousse/jersey est différente, il est recommandé de bien suivre les explications comme indiqué, si vous préférez tricoter un châle en jersey, essayez d'en trouver un qui vous plait parmi tous nos modèles de châles - filtrez si besoin. Bon tricot!
23.11.2020 - 10:41