DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Storm

Prjónað sjal með köðlum og garðaprjóni úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður.

DROPS 203-18
DROPS Design: Mynstur sk-059
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 72 cm.
Breidd: Mælt meðfram efstu hlið frá hlið að hlið = ca 144 cm.

GARN:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250 g litur 07, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12. Mynstur A.a er prjónað fyrst, síðan eru A.b-mynstrin endurtekin yfir A.a-mynstrin á hæðina til loka. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju, þessi uppsláttur er prjónaður eins og lykkja og felldur af eins og hinar lykkjurnar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, *A.1a (= 1 lykkja), A.2a (= 1 lykkja) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
Útaukning er teiknuð í mynsturteikningu, aukið út um 4 lykkjur í 1. útaukningu, 8 lykkjur í 2. útaukningu. Síðan er aukið út um 4 lykkjur í 3. útaukningu, 8 lykkjur í 4. og 5. útaukningu, 3. – 5. útaukningin er endurtekið á hæðina til loka (nema frá síðustu útaukningu í A.7/A.8 og A.11a/A.12a). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 79 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, *A.3a (= 1 lykkja), A.1b (= 18 lykkjur), A.2b (= 18 lykkjur), A.4a (= 1 lykkja) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
A.1b og A.2b er endurtekið á hæðina til loka.
Þegar A.3a og A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 179 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, *A.5a (= 4 lykkjur), A.3b (= 22 lykkjur), A.1b og A.2b eins og áður (= alls 36 lykkjur), A.4b (= 22 lykkjur), A.6a (= 4 lykkjur) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
A.3b og A.4b er endurtekið á hæðina til loka.
Þegar A.5a og A.6a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 259 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * A.7a (= 2 lykkjur), A.5b (= 22 lykkjur), A.1b til A.4b eins og áður (= alls 80 lykkjur), A.6b (= 22 lykkjur), A.8a (= 2 lykkjur) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
A.5b og A.6b er endurtekið á hæðina til loka.
Þegar A.7a og A.8a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 355 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * A.5a (= 4 lykkjur), A.5b (= 22 lykkjur), A.1b til A.6b eins og áður (= alls 124 lykkjur), A.6b (= 22 lykkjur), A.6a (= 4 lykkjur) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
A.5b og A.6b er endurtekið á hæðina til loka.
Þegar A.5a og A.6a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 435 lykkjur í umferð.

Næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * A.9a (= 2 lykkjur), A.9b (= 22 lykkjur), A.1b til A.6b eins og áður (= alls 168 lykkjur), A.10b (= 22 lykkjur), A.10a (= 2 lykkjur) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
A.9b og A.10b er endurtekið á hæðina til loka.
Þegar A.9a og A.10a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 531 lykkjur í umferð.

Stykkið mælist ca 50 cm mælt í prjónstefnu (mælt mitt á milli A.1 og A.2) og ca 71 cm mælt meðfram miðju lykkju.

Ef ekki hefur verið náð þessu máli, prjónið áfram að réttu máli þannig:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * A.11a (= 4 lykkjur), A.9b (= 22 lykkjur), A.1b til A.10b eins og áður (= alls 256 lykkjur), A.10b (= 22 lykkjur), A.12a (= 4 lykkjur) *, 1 miðju lykkja sléttprjón, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.

Prjónið þar til stykkið mælist ca 71 cm, mælt meðfram miðju lykkju – stillið af þannig að endað sé á umferð frá röngu.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn (= gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Kaðall: Kaðallinn er prjónaður mismunandi á undan og á eftir miðju lykkju.
Á UNDAN miðju lykkju er kaðallinn prjónaður þannig: Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni.
Á EFTIR miðju lykkju er kaðallinn prjónaður þannig: Setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni.
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Odile Lacomblez wrote:

Bonjour\r\nSerait- il possible d\'avoir une vidéo pour débuter ce modèle car je ne comprends pas le diagramme\r\nJ\'ai visionné les vidéos de YouTube et je n\' ai pas trouvé ce modèle\r\nPourriez vous s\'il vous plaît créer cette vidéo car c\'est la galère\r\nMerci de votre réponse ODILE

15.09.2023 - 23:29

DROPS Design answered:

Bonjour Odile, dans cette leçon, nous expliquons comment on lit un diagramme; Au 1er rang, tricotez: 1 jeté, 1 m end (A.1a), et 1 m end, 1 jeté (A.2a), au 2ème rang (sur l'envers) tricotez 2 m endroit pour A.1a et A.2a (point mousse), tricotez les jetés torse pour éviter un trou. Continuez ainsi, en suivant attentivement les symboles et la légende correspondantes; lorsque vous augmentez les mailles vous constituez le motif progressivement de chaque côté de la maille centrale. Bon tricot!

18.09.2023 - 08:03

country flag Carina Richard wrote:

Hej Fick snabbt ett svar, men jag förstår ändå inte . Jag har stickat 7maskor rätstickning kan inte få antalet maskor att stämma och hur kan 2 omslag bli 4 ökade maskor ? Carina

24.11.2022 - 13:11

DROPS Design answered:

Hei Carina. Husk du øker med 2 masker på hver side av midtmasken. A.1 og A.2 strikkes 1 gang på hver side av midtmasken. Du har 7 masker og på 1. pinne øker du 4 ganger = 11 masker. Strikk slik: 1 kantmaske + A.1a (kast + 1 rett) + A.2a (1 rett + 1 kast) + 1 midtmaske i glattstrikk + A.1a (kast + 1 rett) + A.2a (1 rett + 1 kast) + 1 kantmaske = 11 masker på pinnen. mvh DROPS Design

28.11.2022 - 13:12

country flag Carina Richard wrote:

Hej ! Känner mej lite frustrerad ska sticka 203-18 men kan inte ens komma igång ! Är faktiskt ingen nybörjare. Alltså redan på A1a o A2a förstår jag inte hur jag ska komma vidare med mina 7 maskor. Snälla försök att förklara för mej. Carina

23.11.2022 - 14:28

DROPS Design answered:

Hej Carina. Du stickar såhär från rätsidan: 1 kantmaska rätstickning, 1 omslag, 1 rätmaska, 1 mittmaska slätstickning, 1 rätmaska, 1 omslag, 1 kantmaska rätstickning. Du har då stickat första varvet i diagrammet och har ökat 4 maskor. Sedan stickar du andra varvet i diagrammet från avigsidan. Mvh DROPS Design

24.11.2022 - 12:00

country flag Melanie wrote:

Bonjour, je souhaiterai commencer ce modèle je voudrais savoir si les diagrammes A-1b, A-2b, A3b,A-4b,A-5b,A-6b,A-9,A-10b il faut les tricoter j’en fois en hauteur ou deux fois en hauteur? Merci d’avance

22.11.2022 - 11:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, les diagrammes -a sont tricotés une seule fois en hauteur (ils comportent les augmentations), quand ces diagrammes -a sont terminés, vous tricotez et répétez les diagrammes -b au-dessus des mailles concernées (ex. après avoir tricoté A.1a, vous tricotez A.1b sur les 19 mailles et répétez les 19 mailles x 10 rangs de A.1b jusqu'à la fin). Bon tricot!

22.11.2022 - 15:55

country flag Adrie wrote:

Hallo, wat een prachtige omslagdoek! Ik heb een vraag over het patroon, kan ik de omslagdoek ook langer maken? En hoe doe ik dat dan, kan ik het patroon gewoon aanhouden?\r\nGroetjes A3

25.09.2022 - 08:11

DROPS Design answered:

Dag Adrie,

Ja, dat kan. Als je het patroon gewoon voortzet wordt de omslagdoek breder en hooger.

27.09.2022 - 18:10

country flag Launay wrote:

Bonjour, je suis le diagramme cependant mon ouvrage ne correspond pas à la photo du châle. Pouvez-vous me confirmer que le point noir dans le diagramme correspond à 1 maille envers sur l'endroit , endroit sur l'envers. Je tricote une maille envers au lieu d'une maille endroit normalement et une maille endroit au lieu de maille envers?

05.12.2021 - 14:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Launay, ce point noir correspond en fait à une maille point mousse: au rang précédent vous tricotez ces mailles comme une case blanche = à l'endroit sur l'endroit, et au rang suivant sur l'envers, vous les tricotez à l'endroit sur l'envers. Bon tricot!

06.12.2021 - 08:19

country flag Ghislaine Ethier wrote:

Merci beaucoup pour les explications! La je vais pouvoir poursuivre mon châle Merci beaucoup!et bonne journée à vous !

08.04.2021 - 13:21

country flag Ghislaine Ethier wrote:

Bonjour je pense que vous ne comprenez pas ma question je vais vous l’expliquer donc je commence avec A5a (4 mailles) A5b (22 mailles) A1b (18 mailles) A2b(18 mailles) Ensuite c’est quoi le suivant ??.?.? C’est À quoi ???.. Et à la fin vous l’avez écrit je termine par A6b et A6 a

07.04.2021 - 12:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ethier, les diagrammes se répètent en hauteur, tricotez vos 355 m ainsi: 1 m lis, A.5a, A.5b, A.5b, A.3b, A.1b, A.2b, A.4b, A.6b, A;6b, et A.6a, 1 m jersey, A.5a, A.5b, A.5b, A.3b, A.1b, A.2b, A.4b, A.6b, A;6b, et A.6a, 1 m lis = 1+4+22+(22+22+18+18+22+22=124) +22+4+1+4+22+(22+22+18+18+22+22=124) +22+4+1=355m. Bon tricot!

08.04.2021 - 09:28

country flag Ghislaine Ethier wrote:

J’aimerais que tu me donne le chiffre de chaque schéma pour ce qui donne 124 mailles svp car tu dit À1b a A 6 b comme avant mais ça ne marche pas car je commence a A 1b A2 b ensuite c’est quoi ??? Je n’y arrive vraiment pas!!! J’attends votre réponse avec impatience!!!

06.04.2021 - 13:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ethier, ces 124 m se tricotent tout simplement comme avant, vous répétez les mêmes diagrammes que depuis le début et tout du long de chaque côté de la maille centrale et en ajoutez d'autres quand indiqué. Bon tricot!

06.04.2021 - 15:05

country flag Ethier Ghislaine wrote:

J’ai besoin d’aide pour le paragraphe de 435 mailles 1 m lisière A5a=4 mailles A5b=22 mailles Pourriez-vous me dire en détails les autres schémas SVP Car je n’arrive à faire le comme avant comme vous dite je suis bloqué Car je ne sais pas quel schéma le suivant de a5b Vous dites A1b a A 6b M’écrire les schémas suivants en détail merci Ghislaine Ethier

03.04.2021 - 00:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ethier, cette section se tricote sur 355 m: 1 m lisière, *A.5a (= 4 m), A.5b (= 22 m), A.1b à A.6b comme avant (= 124 m), A.6b (= 22 m), A.6a (= 4 m)*, 1 m centrale en jersey, répéter de *-* encore 1 fois et terminer par 1 m lisière = 1+4+22+124+22+4+1+4+22+124+22+4+1= 355; quand A.5a et A;6 a sont terminés, vous avez 435 m (= 1+24+22+124+22+24+1+24+22+124+22+24+1). Bon tricot!

06.04.2021 - 13:04