DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í mars!
DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 477.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4293.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Summer's Whisper Wrap

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl og stroffprjóni. Stærð S – XXXL.

Velja stærð:
DROPS 257-21

#summerswhisperwrap

DROPS Design: Mynstur vs-121
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 gr litur 01, hvítur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með stroffprjóni ( 3 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 477.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4293.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
Þessi útaukning kemur til með að gefa 1 lykkju sem er slétt frá réttu og brugðin frá röngu:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
Þessi útaukning kemur til með að gefa 1 lykkju sem er brugðin frá réttu og slétt frá röngu:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

V-HÁLSMÁL:
Aukið út fyrir V-HÁLSMÁL í hvoru framstykki út að stroffprjónsmynstri í 3. hverri umferð innan við 2 lykkjur sléttprjón eins og útskýrt er að neðan. Útaukning er gerð til skiptis frá réttu og röngu – fyrsta útaukning er gerð frá réttu. Til að auka út í stroffprjóni, verður 1.- 3. útaukning slétt frá réttu og 4. útaukning verður brugðin frá réttu.
Prjónið 1. til 4. ÚTAUKNING alls 3-3-4-4-4-4 sinnum (= alls 12-12-16-16-16-16 útaukningar fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið).

Aukið út þannig:
ÚTAUKNING 1 (= rétta – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1):
Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt.
Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
ÚTAUKNING 2 (= ranga – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2):
Prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 2 lykkjur brugðið.
Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
ÚTAUKNING 3 (= rétta – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1):
Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt.
Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
ÚTAUKNING 4 (= ranga – notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, þessi lykkja verður brugðin frá réttu):
Prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 2 lykkjur brugðið.
Prjónið 2 umferðir sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, byrjar umferðin og endar með 1 lykkju brugðið innan við 2 lykkjur slétt (séð frá réttu).

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki, prjónið 3 lykkjur slétt / lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Þessi lykkja er nú fyrir miðju undir ermi.
Mynstrið gengur ekki jafnt upp fyrir miðju undir ermi áður en lykkjum hefur verið fækkað 4 sinnum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkin eru prjónuð hvort fyrir sig.
Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið fram og til baka. Endurtakið á hinni öxlinni.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar meðfram hliðum á framstykkjum og lykkjur frá bakstykki eru settar til baka á prjóninn. Prjónað er fram og til baka yfir allt berustykkið, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir ermar og fyrir v-hálsmáli. Síðar er einnig aukið út fyrir framstykkin / bakstykkið. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring. Í lokin er prjónuð 1 snúra á hvort framstykki.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-25-33-33-33-33 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt og 2 lykkjur brugðið.

Auka á lykkjum í hvorri hlið í hverri umferð innan við 2 lykkjur sléttprjón, aukið út fyrir stroffprjón (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt séð frá réttu). Prjónið og aukið út fyrir stroffprjón þannig:

UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 4 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 5 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (þessi lykkja verður brugðin frá réttu) og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 5:
Prjónið UMFERÐ 2 til 5 alls 8-9-9-9-10-11 sinnum (= 32-36-36-36-40-44 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 89-97-105-105-113-121 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

HÆGRI ÖXL:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 kantlykkju yst á öxl (kantlykkjan er alltaf prjónuð í garðaprjóni, síðar á að fækka um þessa lykkju og er hún er notuð til að taka upp lykkjur fyrir ermi) og prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur) = 34-38-38-38-42-46 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið stroffprjón þannig:
2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, endið með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan.
Frá réttu er prjónað þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur slétt.
Prjónið fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur + 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 10½-10½-10½-10½-12½-12½ cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, prjónið síðustu umferð frá röngu JAFNFRAMT sem fækkað er um kantlykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjur 2 lykkjur brugðið saman = 33-37-37-37-41-45 lykkjur. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð eða á hjálpaprjón. Nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur inn að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð innan við ystu lykkju (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur) og prjónið í lokin upp 1 kantlykkju yst á öxl (kantlykkjan er alltaf prjónuð í garðaprjóni, síðar á að fækka um þessa lykkju og er hún er notuð til að taka upp lykkjur fyrir ermi) = 34-38-38-38-42-46 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið stroffprjón þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkja slétt og 2 lykkjur brugðið.
Frá réttu er prjónað þannig:
2 kantlykkjur slétt, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur + 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 10½-10½-10½-10½-12½-12½ cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, prjónið síðustu umferð frá röngu JAFNFRAMT sem fækkað er um kantlykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjur 2 lykkjur brugðið saman = 33-37-37-37-41-45 lykkjur.
Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjóna á upp lykkjur yfir ermakúpu, snúið og haldið áfram að prjóna eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Byrjið með lykkjur frá vinstra framstykki og prjónið frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir lykkjur á vinstra framstykki (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur), setjið 1 merki í umverð, prjónið upp 25-25-25-25-29-29 lykkjur meðfram vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við kantlykkju í garðaprjóni), setjið 1 merki í umferð, prjónið lykkjur frá bakstykki frá réttu eins og áður (= 89-97-105-105-113-121 lykkjur), setjið 1 merki í umferð, prjónið upp 25-25-25-25-29-29 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við kantlykkju í garðaprjóni), setjið 1 merki í umferð, prjónið lykkjur frá hægra framstykki frá réttu eins og áður (= 33-37-37-37-41-45 lykkjur) = 205-221-229-229-253-269 lykkjur.

Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að merki (= hægra framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið næstu 24-24-24-24-28-28 lykkjur í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið), endið með 1 lykkju slétt (= 25-25-25-25-29-29 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið lykkjur frá bakstykki sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur eins og áður að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið næstu 24-24-24-24-28-28 lykkjur í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt / 3 lykkjur brugðið), endið með 1 lykkju slétt (= 25-25-25-25-29-29 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið lykkjur frá vinstra framstykki sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

Síðan á að prjóna stykkið fram og til baka yfir allar lykkjur með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Merkin aðskilja ermar frá framstykkjum / bakstykki – stroffprjónsmynstur á ermum er prjónað óháð frá stroffprjónsmynstri á framstykkjum / bakstykki.
Það á að auka út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan JAFNFRAMT sem aukið er út í hvorri hlið fyrir V-HÁLSMÁL – lesið leiðbeiningar að ofan.

Aukið út 2 lykkjur fyrir hvora ermi innan við merkin í hverri umferð frá réttu (= 4 lykkjur fleiri). Aukið er út fyrir stroffprjónsmynstri (= 3 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið séð frá réttu) – þ.e.a.s. notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 til að auka út 1 lykkju slétt, notið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 til að auka út 1 lykkju brugðið. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að 1. Merki (= framstykki), * færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri (= útaukning fyrir ermi), prjónið að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= útaukning fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið fram að næsta merki (= bakstykki), prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið eins og áður út umferðina (= framstykki).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að útauknar lykkjur séu prjónaðar inn í mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað á ermum.

Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 18-20-24-24-20-20 sinnum (= 36-40-48-48-40-40 umferðir prjónaðar) – munið eftir að auka út fyrir v-hálsmáli.

Síðan á einnig að auka út á framstykkjum og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri), munið eftir að auka út fyrir stroffprjón þannig að áferðin haldi áfram á framstykkjum / bakstykki eins og áður – þ.e.a.s. það verður 1 lína með 2 lykkjur sléttprjón að ermi. Prjónið næstu umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 1. merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, * færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri (= útaukning fyrir ermi), prjónið eins og áður að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= útaukning fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3. merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= framstykki).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að útauknar lykkjur séu prjónaðar inn í mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað í stroffprjóni á ermum, framstykkjum og bakstykki.

Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-8-8 sinnum (= 8-8-8-8-16-16 umferðir prjónaðar).

Öll útaukning er nú lokið. Aukið hefur verið út 12-12-16-16-16-16 sinnum fyrir v-hálsmáli, 22-24-28-28-28-28 sinnum fyrir ermar og 4-4-4-4-8-8 sinnum á framstykkjum / bakstykki = 333-357-389-389-429-445 lykkjur. Það eru 69-73-81-81-85-85 lykkjur fyrir hvora ermi, 49-53-57-57-65-69 lykkjur fyrir hvort framstykki og 97-105-113-113-129-137 lykkjur fyrir bakstykki.
Ermin mælist nú ca 16-17-20-20-20-20 cm mælt fyrir miðju á ermi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Þegar peysan er brotin tvöföld við öxl, mælist stykkið ca 21-22-25-25-26-26 cm yst meðfram handveg.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 49-53-57-57-65-69 lykkjur eins og áður, setjið næstu 69-73-81-81-85-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 97-105-113-113-129-137 lykkjur eins og áður, setjið næstu 69-73-81-81-85-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 49-53-57-57-65-69 lykkjur eins og áður.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 209-225-241-257-289-321 lykkjur.
Prjónið stroffprjónsmynstur (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt séð frá réttu) fram og til baka í mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað – nýjar lykkjur undir ermi ganga jafnt upp í mynstur.
Prjónið svona fram og til baka þar til stykkið mælist 28-29-28-30-31-33 cm frá lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm.

ERMAR:
Setjið 69-73-81-81-85-85 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-15-15-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-80-88-96-100-108 lykkjur.
Prjónið stroffprjón hringinn í nú þegar prjónað mynstur eins og áður (= 1 lykkja brugðið / 3 lykkjur slétt) – nýjar lykkjur undir ermi ganga jafnt upp í mynstri.
Setjið 1 merki í miðju af 7-7-7-15-15-23 nýjar lykkjur undir ermi, umferðin byrja hér. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni. Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-6-6-4-4-3 cm alls 8-8-8-12-12-16 sinnum = 60-64-72-72-76-76 lykkjur – mynstrið gengur upp í kringum ermi þegar úrtöku er lokið.
Prjónið þar til ermin mælist 55-54-53-54-54-53 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi meðfram öxl, stykkið mælist ca 39-37-33-34-34-33 cm frá skiptingunni fyrir miðju undir ermi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

SNÚRA:
Notið sokkaprjóna 4 og prjónið upp 2 lykkjur í annarri hliðinni neðst í v-hálsmáli (þ.e.a.s. síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig:
* Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á sokkaprjóni án þess að snúa stykkinu við, herðið á þræði og prjónið aftur slétt yfir báðar lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 20 cm eða að óskaðri lengd. Klippið og festið þráðinn.
Endurtakið á hinu framstykkinu.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 257-21

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerswhisperwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (1)

country flag Devon skrifaði:

This pattern appears to be missing the yarn info and knitting gauge. How much of what kind of yarn is required?

14.03.2025 - 10:07

DROPS Design svaraði:

Dear Devon, thanks for noticing, US pattern will be updated asap - please take a look at the English /UK pattern for all these info until pattern is updated. thank you. Happy knitting!

14.03.2025 - 16:01