Nancy skrifaði:
Hi, can I block this cardigan? If I can do you have any videos to show how to do this? Thanks, Nancy
06.01.2025 - 17:01DROPS Design svaraði:
Dear Nancy,yYou don't have to block the waistcoat, but if you want to, you can dampen it slightly and leave it to dry flat - remember to always follow the care instructions. Enjoy.
07.01.2025 - 09:24
Nancy skrifaði:
Hi, just following up on my previous question, how do I know around which markers do I increase for front piece and back piece? Is it the markers that are labelled front and back in the pattern as I did this on the lemon glaze jumper and it made it wonky.
30.12.2024 - 16:48DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, marker 1 is between the front piece and the sleeve, marker 2 is between the sleeve and the back piece, marker 3 between the back piece and the sleeve and marker 4 between the sleeve and the front piece. To increase only for the front piece/back piece, you need to increase before markers 1 and 3 and after markers 2 and 4, which are the sides of the markers that correspond to the front pieces and the back piece. So you don't increase on the side of the markers where the sleeve stitches are located. Happy knitting!
31.12.2024 - 01:06
Nancy skrifaði:
Hi, on the part of this pattern where you increase for the yoke it says to “on every other increase, only increase on front pieces/ back pieces.” Does this mean that you can either increase on the front or the back and if so which would you recommend doing or does this mean to increase on the front piece and back piece as referred to when placing the stitch markers for the yoke (front piece, sleeve, back piece, sleeve) and increasing around the front piece and back piece. Thanks, Nancy.
29.12.2024 - 23:30DROPS Design svaraði:
Hi Nancy, This means that you increase on both the front and back pieces (but not on the sleeves) every second increase. Happy New Year!
30.12.2024 - 12:27
Nancy skrifaði:
Hi, on the part of this pattern where you increase for the yoke it says to “on every other increase, only increase on front pieces/ back pieces.” Does this mean that you can either increase on the front or the back and if so which would you recommend doing or does this mean to increase on the front piece and back piece as referred to when placing the stitch markers for the yoke (front piece, sleeve, back piece, sleeve) and increasing around the front piece and back piece. Thanks, Nancy.
29.12.2024 - 23:29DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, it means that, before, you increased on each side of each marker, so you increased for the body and the sleeves. However, now you will increase every 2nd round only on the body sections (so the back piece AND the front piece) and every 4th round you will increase on the body sections and the sleeves. So you work: round without increases, round with 4 increases (for front and back pieces), round with no increases, round with 8 increases (increase on each side of each marker). When you increase 4 stitches you will increase on each marker but before or after it depending on where the front and back pieces are located for each marker. Happy knitting!
31.12.2024 - 00:20
Silvia skrifaði:
Buongiorno per il modello 250-34 , non mi sono chiare le spiegazioni per l’asola: sembra essere molto piccola . Non avendo trovato i bottoni che proponete nel progetto non so che dimensione hanno. Dalla foto non mi sembrano così piccoli da come dovremmo fare l’ asola. Grazie . Attendo info per continuare il maglione.
02.06.2024 - 18:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Silvia, a questo link può trovare i bottoni richiesti per questo modello: sono di 20 mm di diametro. Buon lavoro!
02.06.2024 - 20:39
Renata skrifaði:
Czy ukaże się tutorial z wykonaniem sweterka? Proszę by się ukazał, gdyż na moim poziomie dziergania nie radzę sobie z robótką na podstawie opisu.
14.04.2024 - 21:59DROPS Design svaraði:
Witaj Renato, nie sądzę, aby w najbliższym czasie taki tutorial się pojawił. Na początek zobacz nasz kurs TUTAJ. W każdym wzorze na górze znajdziesz również potrzebne instrukcje video. Wzór jest napisany linearnie, krok po kroku. Sugeruję zacząć, a w razie pytań pisać do nas. Postaramy się razem ukończyć ten sweterek. Pozdrawiamy!
15.04.2024 - 08:38
Tuula Voutilainen skrifaði:
Puuttuukohan pääntien ohjeesta resoriosuus kokonaan?
15.03.2024 - 10:46DROPS Design svaraði:
Kaksinkertainen pääntien reunus neulotaan työn lopuksi, ja ohje siihen löytyy ohjeen alaosasta.
19.03.2024 - 16:39
Irene skrifaði:
Rosa
19.01.2024 - 14:13
Strawberry Haze Cardigan#strawberryhazecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að hálsmál hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9-9-9½-8½-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið fram og til baka – jafnframt er lykkjum aukið út í hvorri hlið í umferð þar til réttum lykkjufjölda hefur verið náð og hálsmálið hefur verið prjónað til loka. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hálsmáli og kantur í hálsmáli er prjónaður sem síðar er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. HÁLSMÁL: Fitjið upp 70-70-70-78-78-78 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði í hvorum lit (2 þræðir). Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráðu er settur á milli 2 lykkja þannig: Teljið 3 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 3 lykkjur (framstykki). Prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 72-72-72-80-80-80 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 82-82-82-90-90-90 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 84-84-84-92-92-92 lykkjur. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 94-94-94-102-102-102 lykkjur. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 97-97-97-105-105-105 lykkjur. UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 108-108-108-116-116-116 lykkjur. UMFERÐ 7 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar = 116-116-116-128-128-128 lykkjur. UMFERÐ 8 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar = 132-132-132-148-148-148 lykkjur. UMFERÐ 9 (ranga): Prjónið brugðið, en ystu 5 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. Nú byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og garðaprjón yfir kantlykkjur að framan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð 2 sinnum til viðbótar (það hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 6 sinnum) = 148-148-148-164-164-164 lykkjur. Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum / bakstykki í annað hvert skipti og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum) = 256-280-304-320-344-344 lykkjur. STÆRÐ S, M, og XXXL: Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermar er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-4 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-32-36-40 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 264-284-304-320-344-360 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni með garðaprjóni í kanti að framan þar til stykkið mælist ca 20-23-25-25-29-33 cm, mælt innan við kant að framan, mitt að framan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 44-47-50-54-58-62 lykkjur (framstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið þær 44-47-50-54-58-62 lykkjur sem eftir eru (framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-196-208-228-248-268 lykkjur. Prjónið sléttprjón með garðaprjóni í kanti að framan þar til stykkið mælist 18-17-17-19-17-15 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 220-236-252-276-300-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-58-62-62 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-64-68-70-76-78 lykkjur. Setjið merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 5-3½-2½-2½-2-1½ cm alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 48-48-50-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-36-35-34-31-28 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-44-43-42-39-36 cm frá skiptingunni. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 100 til 116 lykkjur meðfram hálsmáli á hringprjóna 3,5 með 1 þræði í hvorum lit (2 þræðir) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 – stillið af að stroffið passi við laskalínulykkjur og að laskalínulykkjur haldi áfram sem sléttar lykkjur (séð frá réttu) í kanti í hálsmáli. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 5 cm. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 4 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur í hálsmáli mælist 10 cm. Fellið aðeins laust af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberryhazecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.