Pradnya skrifaði:
Can I knit on straight needles? not comfortable on circular or two way needles.Thanking you
28.12.2023 - 08:12DROPS Design svaraði:
Dear Pradnya, please read the following lesson on how to adapt for straight needles: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Take into account that the raglan may be difficult to adjust to straight needles. Happy knitting!
28.12.2023 - 20:09
Reindeer Dance Cardigan#reindeerdancecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri með hreindýrum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 47-17 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN: PRJÓNIÐ KANT AÐ FRAMAN Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. PRJÓNIÐ KANT AÐ FRAMAN Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað í hring, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í miðju lykkju mitt í umferð. Byrjið frá réttu og prjónið 11-12-13-14-15-16-17 lykkjur slétt fram hjá lykkju með merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 23-25-27-29-31-33-35 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 34-37-40-43-46-49-52 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 45-49-53-57-61-65-69 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 56-61-66-71-76-81-86 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 67-73-79-85-91-97-103 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Síðan er berustykki prjónað eins og útskýrt er í mynstri. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð eftir að stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5½-6½-7-8-7-7½-7½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 81-85-87-89-91-95-97 lykkjur með litnum marsipan í DROPS Daisy yfir hringprjón 3 og hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 91-95-97-99-101-105-107 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 6 lykkjur í KANTUR AÐ FRAMAN í hvorri hlið við miðju að framan – lesið útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 6 cm og prjóna á næstu umferð frá réttu, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti – haldið svona áfram eins langt og hægt er fram að kanti að framan í hinni hliðinni og endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 24-26-28-30-32-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður og lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 115-121-125-129-133-137-141 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Þegar 2 umferðir eru eftir þar til berustykkið mælist 2-2-3-3-4-4-5 cm frá prjónamerki, aukið út 26-28-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan = 141-149-157-165-173-181-189 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 3-3-4-4-5-5-6 cm frá prjónamerki – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú er mynstur prjónað jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Allur kantur að framan er prjónaður með litnum marsipan. Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 16-17-18-19-20-21-22 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út frá réttu eins og útskýrt er að neðan (ekki er aukið út yfir kanta að framan): ÖR-1: Aukið út 32-32-32-40-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 173-181-189-205-213-221-237 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 24-24-32-32-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 197-205-221-237-253-261-277 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 16-16-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 213-221-237-253-269-277-293 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 4-8-8-4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 217-229-245-257-269-281-293 lykkjur. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum marsipan og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-38-41-43-45-47-49 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 61-65-71-75-79-83-87 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 36-38-41-43-45-47-49 lykkjur í sléttprjóni (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 149-157-169-177-185-193-201 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum marsipan og með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26-27 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 14-14-14-14-16-16-18 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 163-171-183-191-201-209-219 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMI: Setjið 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum ljós beige = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8 lykkjurnar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-3-4-4-4-4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3½.-4.-4½.-5.-6.-7. hverjum cm alls 6 sinnum = 38-40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-54-56 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið opið við kant í hálsmáli við miðju að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #reindeerdancecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.