Alike Baaij skrifaði:
Bij de mouw ( xl) moet ik 2 5x 2 steken meerderen. Ik begin met 44 steken. En volgens het patroon eindig ik met 70 steken. Maar als ik 15 x 2 (totaal 30) steken meerder kom ik op 74 uit.... Doe ik iets verkeerd....
21.04.2023 - 19:45DROPS Design svaraði:
Dag Alike,
Voor maat xl is het de bedoeling dat je 13 x 2 steken meerdert, dus in totaal 26 steken. Dan kom je op 70 steken in totaal.
24.04.2023 - 20:54
Martina Berndtsson skrifaði:
Hej stämmer det att det är 38cm på varje varv från upplägget- blir väldigt korta armar. Stickat ytterligare en tröja med 38cm blir för kort i armen tack för svar
26.03.2023 - 17:07DROPS Design svaraði:
Hej Martina, du ser i måleskitsen nederst i opskriften hvordan målene hænger sammen. Selve ærmegabet bliver da 23 cm. Mål gerne i forhold til en trøje som du ved passer dig :)
12.04.2023 - 07:49
Trisha skrifaði:
Sleeves instructions say to make first increase at 2 3/4" (or 7 cm) and then increase every 1 3/4" (or 2 1/2 cm) from there for a total of 12 times. (I'm making size L.) That would make the sleeve 21" long . . . When I compare cm to inches, my tape measures show 2 1/2 cm is 1", not 1 3/4", which would result in a sleeve approximately 17" long. Is there a misprint in the instructions? Should the increases after 2 3/4" be every 1" and not 1 3/4"? Thank you!
27.12.2022 - 17:43DROPS Design svaraði:
Dear Trisha, size L is 3rd size, this means you will increase on every 2,5 cm = on every 1". Or do we misunderstand your question?
04.01.2023 - 14:15
Hannah skrifaði:
Hej. Jeg tænkte på, om man kan strikke denne sweater i Drops Brushed alpaca silk i stedet? Og hvis ja, hvordan ændrer det fastheden af sweateren? :)
28.11.2022 - 22:15DROPS Design svaraði:
Hej Hannah, ja det kan du, men du skal sørge for at holde strikkefastheden på 16 masker på 10 cm som det står i opskriften, da vil du også få samme mål som i opskriften :)
30.11.2022 - 15:06
Debora skrifaði:
Buongiorno, posso lavorare il maglione su ferri dritti? Come? Grazie
13.11.2022 - 07:14DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, può apportare le modifiche che preferisce al modello. Buon lavoro!
13.11.2022 - 20:11
Annika Joensuu skrifaði:
Undrar angående Autumn pathways sweater ifall man kan lämna bort sprundet? Blir det för många maskor ifall jag i storlek L sätter upp 218 maskor ? Eller kan jag sätta upp 172 maskor ( som jag skulle ha minskat)? Tycker om mönstret eftersom man kan koppla ihop ärmarna med bålen. Vågar inte ännu på mönster som stickas uppifrån ner.
18.10.2022 - 17:08DROPS Design svaraði:
Du kan lämna bort sprundet om du vill. Då lägger du upp 214 maskor (dvs. du lämnar bort kantmaskorna som du annars skulle ha sytt i).
20.10.2022 - 17:13
Sofi skrifaði:
Hej Jag undrar om man kan använda tekniken magic loop istället för strumpstickor när man skall sticka ärmarna?
30.09.2022 - 12:06DROPS Design svaraði:
Hej Sofi. Ja det kan du göra. Mvh DROPS Design
30.09.2022 - 13:55
Erika Alexandersson skrifaði:
Hur många maskor ska jag lämna på tråd under ärmen? Som jag fixar när tröjan är klar?
08.09.2022 - 12:48DROPS Design svaraði:
Hej Erika, maskorna under ärmen maskas av, se här: När arbetet mäter 27-27-28-28-28-28 cm, maskas det av 8-8-10-10-12-12 maskor till ärmhål i varje sida (dvs, 4-4-5-5-6-6 maskor på varje sida av markören i varje sida).
09.09.2022 - 11:46
Carina Brockmann skrifaði:
Meine Frage von gerade hat sich erledigt, bin soeben selber draufgekommen 🤦♀️😅, aber vielen Dank
06.04.2022 - 13:10
Carina Brockmann skrifaði:
Liebes Team, ich hab wohl eine Gedankensperre, komme aber nicht auf die Lösung. Raglanabnahme: bei Gr L, 4x5 M jede 8.Rd., das wären 4x20 also 80 M abgenommen. Um von 264 auf 104 M zu kommen, müsste ich aber 160 M abnehmen. Was hab ich hier denn falsch verstanden? Vielen Dank
06.04.2022 - 13:01DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brockmann, Sie sollen 4 Maschen beidseitig von jeder Markierung abnehmen: 4 Maschen x 2 an jeder Markierung = 8 Abnahmen pro Markierung x 4 Markierungen = 32 Abnahmen bei jeder Abnahmenrunde x 5 Mal = 160 Abnahmen in Total; so haben Sie 264 - 160= 104 Maschen übrig. Viel Spaß beim stricken!
06.04.2022 - 13:44
Autumn Pathways Sweater#autumnpathwayssweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 91 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, herðið aðeins á þræði þannig að það verði ekki of stórt gat á milli úrtöku, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 3 lykkjur þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 4 lykkjur snúnar slétt saman (= 3 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, herðið aðeins á þræði þannig að það verði ekki of stórt gat á milli úrtöku, prjónið næstu 4 lykkjur slétt saman (= 3 lykkjur færri). Fækkið um 4 lykkjur þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 5 lykkjur snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, herðið aðeins á þræði þannig að það verði ekki of stórt gat á milli úrtöku, prjónið næstu 5 lykkjur slétt saman (= 4 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig þar til stroffið og klauf í hvorri hlið hefur verið prjónað til loka. Setjið síðan bæði stykkin á sama hringprjón og prjónað er í hring upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 14 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stroffið mælist 14 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjóni nú framstykki og bakstykki á hringprjón 4 þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 90-100-108-116-128-140 lykkjurnar á framstykki og fækkið jafnframt um 16-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkju á framstykki slétt saman með fyrstu lykkjunni á bakstykki (= 1 lykkja færri), setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 16-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu lykkjuna á bakstykki slétt saman við fyrstu lykkju á framstykki, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið og þetta er byrjun á umferð). Nú eru 148-160-172-188-208-228 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm, fellið af 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Nú eru 66-72-76-84-92-102 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-8 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-13-15-15 sinnum = 58-60-66-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-38-37-35-34-32 cm, fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið) = 50-52-56-60-62-62 lykkjur. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 232-248-264-288-308-332 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan á bakstykki (= 33-36-38-42-46-51 lykkjur hvoru megin við prjónamerki á bakstykki). Þetta er núna byrjun á umferð. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Síðar á að fækka lykkjum hvoru megin við þessi prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-5-6-5-6-5 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 8. hverri umferð mismunandi eftir stærðum: Stærð S og XXL Fækkið um 2 lykkju 1-1 sinni og 4 lykkjur 4-5 sinnum (= 19-23 lykkjur færri hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu) = 80-124 lykkjur á prjóninum. Stærð M og L: Fækkið um 4 lykkjur 5-5 sinnum (= 20-20 lykkjur færri hvoru megin við prjónamerkin í hverri laskalínu) = 88-104 lykkjur á prjóninum. Stærð XL og XXXL: Fækkið um 2 lykkjur 1-1 sinni og 4 lykkjur 5-6 sinnum (= 22-26 lykkjur færri hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu) = 112-124 lykkjur á prjóninum. Allar stærðir: Nú eru 80-88-104-112-124-124 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-12-24-28-36-32 lykkjur jafnt yfir = 74-76-80-84-88-92 lykkjur. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnpathwayssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.