CLAUDIA NOEMI skrifaði:
Hay algo que me confunde en las indicaciones. En la sección AUMENTO MANGAS, hacia el al final dice: "Aumentar así en cada hilera por el lado derecho un total de 9-10-9-12-12-13 veces = 195-211-219-247-265-283 puntos. La pieza mide aprox. 16-18-17-21-22-24 cm" Pero luego dice: "Continuar tejiendo punto jersey con 5 puntos del borde delantero en punto musgo a cada lado hasta que la pieza mida 16-18-18-21-22-24 cm." ¿Continuar tejiendo hasta que mida lo mismo que ya media antes?
11.11.2020 - 19:31DROPS Design svaraði:
Hola Claudia. El patrón está correcto. Quiere decir que si después de completar los aumentos para las mangas todavía no has alcanzando las medidas (16-18-18 ....), tienes que continuar recto, sin aumentos hasta que la labor tenga la medida correcta.
19.11.2020 - 20:03
Karin skrifaði:
Bij dit model is maat M 52 cm breed, terwijl bij andere modellen Maat L 52 breed is. Is het model echt zo wijd?
23.10.2020 - 10:42
Ely Ramirez skrifaði:
Ya termine el frozen líke cardigan, y quedo precioso y fue muy fácil de hacer gracias
02.10.2020 - 09:36
Brokewitz Karla skrifaði:
Ich bin eine erfahrene Strickerin aber ihre Anleitung ist zu umständlich beschrieben. Schade eigentlich.
27.09.2020 - 10:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brokewitz, Hilfen finden Sie bei den passenden Videos oder die gelinkte Lektionnen - gerne können Sie auch Ihre Frage hier mal stellen. Viel Spaß beim stricken!
28.09.2020 - 11:11
Marie Moureau skrifaði:
Oui pour le modèle , mais pas pour le laine AIR , je l'ai tricoté plusieurs fois avec toujours le même résultat: après lavage du 12 ans on passe à la taille 46!!!!!
11.07.2020 - 11:08
Susana skrifaði:
Lindo cardigan!
11.06.2020 - 14:18
Véronique skrifaði:
New shape for cardigan with saddle sleeves. Looks very nice and cozy on everybody. Neck looks a bit retro and make it realy cool for a cardigan
10.06.2020 - 08:32
Elisa skrifaði:
Un bel cappotto per la mezza stagione, bello come un cielo ventoso.
09.06.2020 - 10:30
Frozen Lake Cardigan#frozenlakecardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með útaukningu á öxlum fyrir axlarsæti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-30 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 77 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,85. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti): FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúinn til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. FRÁ RÖNGU Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúinn til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 83-87-91-95-101-105 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-28-32-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 103-107-119-127-137-143 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna) þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 20-21-22-24-26-27 lykkjur (= framstykki), hoppið yfir næstu 16-16-20-20-22-22 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= axlalykkjur), hoppið yfir næstu 31-33-35-39-41-45 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= bakstykki), hoppið yfir næstu 16-16-20-20-22-22 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= axlalykkjur), nú eru 20-21-22-24-26-27 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, lykkjur eru auknar út við hvert og eitt þeirra. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir axlarsæti þannig: Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út fyrir axlarsæti þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 4. og 2. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 3. og 1. prjónamerki. Þ.e.a.s. mismunandi er aukið út frá réttu og frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í hverri umferð alls 14-16-16-18-20-22 sinnum = 159-171-183-199-217-231 lykkjur. Stykkið mælist ca 7-8-8-9-10-11 cm frá prjónamerki. ÚTAUKNING Á ERMUM: Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir ermar þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út á ermi, verður fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki sá sami. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 9-10-9-12-12-13 sinnum = 195-211-219-247-265-283 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-18-17-21-22-24 cm. Prjónið með sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-18-18-21-22-24 cm. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 227-243-259-287-313-331 lykkjur. Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 20-22-23-26-28-30 cm frá prjónamerki í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-43-47-53-55 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-44-48-54-56-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 67-73-77-85-95-101 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 42-44-48-54-56-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-41-43-47-53-55 lykkjur eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 163-175-187-203-225-235 lykkjur. Haldið áfram með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 26-26-26-25-24-24 cm frá skiptingu, aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 183-195-207-223-245-255 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og fellið af með sléttum lykkjum yfir lykkjur í garðaprjóni – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-44-48-54-56-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 52-54-60-66-68-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-1-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-0-10-7-6-4 cm alls 0-0-2-4-4-5 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-32-30-28-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frozenlakecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.