DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frozen Lake

Prjónuð peysa með útaukningu á öxlum fyrir axlarsæti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-29
DROPS Design: Mynstur ai-277
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 27, sægrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 2,76.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúinn til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-76-80-84-90-94 lykkjur á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm.
Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-22-34-38-36-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 98-98-114-122-126-134 lykkjur.
Prjónið 1 umferð sléttprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Lykkjur eru auknar út og mynstur prjónað þannig:
Næsta umferð er prjónuð og 4 prjónamerki eru sett á milli lykkja þannig:
Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) yfir 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 sinnum á breiddina), prjónið fyrstu lykkjuna af A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði eins í báðum hliðum = ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, 16-16-20-20-22-22 lykkjur sléttprjón, setjið 2. prjónamerki (= axlalykkjur), A.1 yfir 32-32-36-40-40-44 lykkjur (= 8-8-9-10-10-11 sinnum á breidd), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 16-16-20-20-22-22 lykkjur sléttprjón, setjið 4. prjónamerki (= axlalykkjur), A.1 yfir 16-16-20-20-20-24 lykkjur (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd = ca hálft bakstykki).

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Í næstu umferð er aukið út fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út í hverri umferð alls 14-16-16-18-20-22 sinnum = 154-162-178-194-206-222 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 og A.1 er endurtekið á hæðina.
Stykkið mælist ca 7-8-8-9-10-11 cm frá prjónamerki.

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Haldið áfram með sléttprjón yfir axlalykkjur og mynstur A.1 yfir framstykki/bakstykki.
Í næstu umferð er aukið út fyrir ermum þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út á ermi, verður fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð frá alls 9-10-9-12-12-13 sinnum = 190-202-214-242-254-274 lykkjur.
Stykkið mælist ca 16-18-17-21-22-24 cm.
Prjónið með sléttprjóni og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 17-18-18-21-22-24 cm.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki.
Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-4-5-5-6-6 sinnum = 214-234-254-282-302-322 lykkjur.
Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 20-22-23-26-28-30 cm frá prjónamerki í hálsi.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið fyrstu 32-36-40-44-48-52 lykkjurnar eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 39-41-47-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-96-104 lykkjur sléttprjón eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-41-47-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 36-40-40-44-48-52 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-176-184-200-216-232 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, stillið af að mynstrið passi yfir sig sjálft á hæðina. Prjónið mynstur yfir lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. A.1 er nú endurtekið 40-44-46-52-54-58 sinnum á breiddina.
Þegar stykkið mælist 24-24-24-23-22-22 cm frá skiptingu, aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 176-192-200-216-232-248 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 39-41-47-53-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 lykkju í hverja og eina af 12 nýjum lykkjum undir ermi = 51-53-59-65-67-69 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-1-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 0-0-10-7-6-4 cm alls 0-0-2-4-4-5 sinnum = 51-53-55-57-59-59 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 17 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.10.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.1 hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermar
symbols = útaukning fyrir berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Hannah Hope wrote:

Where is the diagram A1? Many thanks

04.03.2023 - 11:08

DROPS Design answered:

Dear Hannan, diagram A.1 you can find next to the first sketch. Happy knitting!

05.03.2023 - 09:44

country flag Yvonne wrote:

Hat dieser Pullover wirklich die Farbe 27 - Seegrün? Die Farbe 27 Seegrün erscheint viel heller, als die Farbe des Pullis im Bild. Wenn ich das Bild mit der Farbauswahl vergleiche, scheint es eher die Farbe 21 - Meerblau zu sein. Allerdings fehlen auf den Farbaufnahmen der Farbe 21-Meerblau die Rosa-Türkis-farbenen Dots im Garn. Ich möchte den Pulli gerne mit der Farbe stricken, die auf den Bildern ist, sie ist wunderschön.

20.12.2022 - 23:55

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, dieser Pullover wird mit der Farbe 27 gestrickt - die Farben können je nach Bildschirmeinstellungen unterschiedlich aussehen ebenso können die Farben je nach Farbbad leichte Unterschiede ausweisen. Gerne wird Ihnen aber Ihr DROPS Händler die beste passende Farbe (auch per Telefon oder per E-Mail) empfehlen. Viel Spaß beim stricken!

21.12.2022 - 08:13

country flag Eugenia wrote:

Hello! I am size S, so 76 sts, increases 22 and insert marker 16/16/32/16/18. What am I doing wrong? Have a good day!

27.12.2021 - 18:45

DROPS Design answered:

Hi Eugenia, it should be 16/1/16/32/1/16/16 = 98 stitches (there is 'work first stitch of A.1' twice). Happy knitting!

28.12.2021 - 09:21

country flag Carmela Anker Schafer wrote:

Sie können meinen Eintrag löschen. Ich habe etwas übersehen. Entschuldigung!

01.12.2021 - 20:11

country flag Carmela wrote:

Liebes Drops-Team Ich frage mich, ob bei der Passe die erste Vorgabe nicht angepasst werden müsste: A.1 (= 4 Maschen) über 16-16-16-20-20-20 Maschen stricken (= 4-4-4-5-5-5 x in der Breite) A.1 (= 4 Maschen) über 16-16-20-20-20-20 Maschen stricken (= 4-4-5-5-5-5 x in der Breite) Grösse M (dritte Zahl). Die Gesamtzahl von 114 Maschen würde dann stimmen und die Verteilung der Maschen auf Schultern, Rücken- und Vorderteil würde stimmen. Danke!

01.12.2021 - 13:24

DROPS Design answered:

Liebe Carmela, am Anfang der Runde stricken Sie 17 Maschen A.1 (= 4 x in der Breite + die 1. Masche) und am Ende der Runde stricken Sie 20 M A.1 (= 5 x in der Breite), so haben Sie genauso viele Maschen A.1 beim Rückenteil (= 16+1+20= 37 ) als beim Vorderteil (= 36+1=37) - und bei den Ärmeln sind es je 20 Maschen = 17+20+37+20+20=114 M. Viel Spaß beim stricken!

02.12.2021 - 08:42

country flag Riikka wrote:

Hei, Ohjeen koossa M ensimmäisten lisäysten jälkeen silmukoita pitäisi olla 114. Ohjeen kaarrokkeen merkit tulisi laittaa 16, 20, 36, 20 ja 20 silmukan välein. Jos silmukat laskee yhteen, tästä tulee 112 silmukkaa. Onko ohjeen silmukkamäärät laskettu oikein?

10.10.2021 - 21:25

DROPS Design answered:

Hei, kun olet neulonut 16 silmukalla piirroksen A.1 mallineuletta, piirroksen A.1 ensimmäinen silmukka neulotaan vielä kerran. Tämän jälkeen kiinnität 1.merkin työhön. Sama pätee ennen kuin kiinnität 3.merkin työhön. Eli kun olet neulonut 36 silmukalla mallineuletta, neulot piirroksen A.1 ensimmäisen silmukan vielä kerran.

21.10.2021 - 17:53

country flag Antje wrote:

Danke, aber könnten Sie mir bitte sagen, wie das Muster heisst (deutsch oder englisch, both fine).

22.02.2021 - 08:39

DROPS Design answered:

Liebe Antje, sorry, keine Ahnung, wie dieses Muster heisst. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2021 - 09:48

country flag Antje wrote:

Hallo, wie heißt das Muster auf der Vorder- und Rückseite? gibt es dazu irgendwo eine einzelne Beschreibung? Vielen Dank!

20.02.2021 - 16:18

DROPS Design answered:

Liebe Antje, das Muster auf der Vorder- und Rückenteil wird wie beim Diagram A.1 gestrickt - das Diagram wird über 4 Maschen und 8 Reihen - siehe rechts von der Maßskizze. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2021 - 08:04

country flag Caroline De Wever wrote:

Bij verdeling lijf en mouwen kom ik voor een maat L respectievelijk op 198 steken (41 basis + (2 x 18 meerderingen) + (2 x 5 meerderingen) + (2 x 12 steken opzetten) en 54 steken voor één mouw. Dus twee meer voor de mouwen en twee minder voor het lijf. Wat doe ik verkeerd? Dank voor uw antwoord

19.02.2021 - 12:05

country flag Alice wrote:

Hej, vad menas med att a1 repeteras på höjden? Nu har jag varje varv stickat a1 upprepat på bredden men får inte rätt mönster på tröjan. Mvh Alice

21.11.2020 - 20:57