Raspberry Rose#raspberryrosevest |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með gatamynstri, smáum köðlum og hringlaga hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 242 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 10,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum svona á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við hvort prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Prjónið síðan framstykki og bakstykki fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 242-264-286-312-348-378 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir í stroffi, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað erum 24-26-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 218-238-258-282-314-342 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 109-119-129-141-157-171 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 10-15-16-22-26-29 lykkjur sléttprjón A.1 (= 12 lykkjur), prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 56-56-64-64-72-80 lykkjur (= 7-7-8-8-9-10 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.1 (= 12 lykkjur), prjónið 10-15-16-22-26-29 lykkjur sléttprjón *, prjónamerki, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 7-8-8-8-9-9 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 230-250-270-294-326-354 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm. Prjónið nú 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 14-16-16-18-20-22 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 7-8-8-9-10-11 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð eftir 4 umferðir í garðaprjóni, fellið af 6-8-8-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3-4-4-5-6-7 lykkju eru eftir á undan prjónamerki í annarri hlið á stykki, fellið af 6-8-8-10-12-14 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3-4-4-5-6-7 eru eftir í umferð og fellið af þær 3-4-4-5-6-7 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 109-117-127-137-151-163 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA – 2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-3-7-13-15 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2-3-4-4-1-1 sinnum = 103-105-113-115-123-131 lykkjur eftir. Prjónið síðan þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 3-4-4-5-5-5 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 56-56-64-64-72-80 lykkjur (= 7-7-8-8-9-10 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.1 (= 12 lykkjur), prjónið 3-4-4-5-5-5 lykkjur í sléttprjóni og endið með 4 kantlykjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 37-37-41-41-43-43 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 31-32-34-35-38-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir kaðal í A.1 = 30-31-33-34-37-41 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: = 109-117-127-137-151-163 163 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg eins og á bakstykki. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-3-7-13-15 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2-3-4-4-1-1 sinnum = 103-105-113-115-123-131 lykkjur eftir. Prjónið síðan þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 3-4-4-5-5-5 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 56-56-64-64-72-80 lykkjur (= 7-7-8-8-9-10 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.1 (= 12 lykkjur), prjónið 3-4-4-5-5-5 lykkjur í sléttprjóni og endið með 4 kantlykjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 41-42-44-45-47-48 cm, setjið miðju 17-17-21-21-23-23 lykkjurnar fyrir hálsmáli á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 31-32-34-35-38-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir kaðal í A.1 = 30-31-33-34-37-41 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 118 til 140 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur af þræði að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið 6 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raspberryrosevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.