Lilian Nafula wrote:
Arrow-3: Increase 36-42-42-42-36-42 double crochets evenly = 202-220-220-238-238-244 stitches (there is now room for 31-34-34-37-37-38 repetitions of A.2 in width). Don't get the last part in brackets and Arrow 3 am guessing is Row 3.
25.03.2022 - 02:04DROPS Design answered:
Dear Lilian, Arrow-3 is the arrow with number 3 in the right side of the A.1 diagram. The part in brackets means that after the increases, in the next row you will be able to work A.2 the number of times indicated, depending on the size. Happy crochetting!
26.03.2022 - 19:47Annemarie wrote:
Vol enthousiasme ben ik begonnen aan dit vestje. Ik loop vast bij de kussensteken; het lukt mij niet om kussensteken voorlangs een stokje te krijgen en dus een soort terug te gaan in de rij zodat het stokje schuin gaat. Ik heb nu een aanpassing gedaan met kussensteek -losse, stokje, losse en dan weer kussensteek. Dat komt qua steken prima uit maar lijkt niet zo op het origineel. De kussensteken an sich lukken prima, en het staat ook wel oké, maar het oogt minder dicht dan op het voorbeeld.
01.10.2021 - 16:41DROPS Design answered:
Dag Annemarie,
Heb je de video bekeken over de kussensteek? Misschien moet je de lussen wat minder hoog ophalen, zodat de kussensteek wat strakker wordt
02.10.2021 - 10:25Tina Böhm wrote:
Hallo, Ich verstehe nicht wie ich nun mit den Rumpfteil häkeln soll. Wie lang sollen die Markierungsfaden sein?
25.09.2021 - 14:28DROPS Design answered:
Liebe Frau Böhm, dieses Video zeigt, wie man einen Markierungsfaden benutzt, wenn ich so Markierungsfäden benutze sind meine ca 20-30 cm, ob es Ihnen helfen kann. Sie können auch Maschenmarkierer benutzen. Viel Spaß beim häkeln!
27.09.2021 - 08:03Lucia Belli wrote:
Non riesco a capire quando devo iniziare a lavorare il dietro e il dvanti separatamente
04.11.2020 - 16:01DROPS Design answered:
Buongiorno Lucia, non si lavorano il davanti e il dietro in modo separato. Segua semplicemente le istruzioni. Buon lavoro!
04.11.2020 - 19:07
Tree Hive |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, pufflykkjum og stuðlakrókum. Stærð S – XXXL.
DROPS 218-19 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Fyrsta fastalykkjan í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. 1 PUFFLYKKJA: Heklið í sömu loftlykkju þannig (það er mikilvægt að heklað sé í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum loftlykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum loftlykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði litlar og þéttar, er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn langur, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinn. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 1,9. Í þessu dæmi er aukið út í ca aðra hverja lykkju, aukið út með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í 1 fastalykkju, eða 3 stuðla um loftlykkju (í stað 2). ATH! Ekki auka út yfir lykkjur í köntum að framan. ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU: * Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). STUÐLAKRÓKUR: Heklið 1 stuðul í kringum 1 stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. ekki hekla í lykkjubogana, heldur utan um stuðulinn) þannig:, Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina (alveg eins og þegar heklaður var 1 venjulegur stuðull), færið heklunálina í kringum næsta stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. inn frá hægri hlið og út um vinstri hlið), sækið þráðinn, heklið afgang af stuðli eins og venjulega. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður (ermar eru heklaðar fram og til baka til að ná fram sömu áferð og fram- og bakstykki). BERUSTYKKI: Heklið 89-89-95-101-107-107 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4,5 með 1 þræði Sky. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 88-88-94-100-106-106 fastalykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjurnar, heklið A.2 þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð (= 12-12-13-14-15-15 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.3 yfir síðustu 11 lykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka svona. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör, eru auknar út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 42-48-42-48-48-48 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir = 130-136-136-148-154-154 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-20-22-23-23 mynstureiningar með A.2 á breiddina). Ör-2: Aukið út 36-42-42-48-48-48 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir = 166-178-178-196-202-202 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-27-27-30-31-31 mynstureiningar með A.2 á breiddina). Ör-3: Aukið út 36-42-42-42-36-42 stuðla jafnt yfir = 202-220-220-238-238-244 lykkjur (nú er pláss fyrir 31-34-34-37-37-38 mynstureiningar með A.2 á breiddina). Ör-4: Aukið út 28-26-30-42-36-42 stuðla jafnt yfir = 230-246-250-280-274-286 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka, heklið A.1 til A.3 x, JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hvert skipti sem umferð með tvíbrugðnum stuðlum er hekluð, aukið út 0-0-12-13-11-13 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir 0-0-2-2-4-4 sinnum = 230-246-274-306-318-338 lykkjur. Haldið áfram með A.1 til A.3 x þar til stykkið mælist 20-23-25-28-30-33 cm, endið með umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 37-40-44-48-51-55 lykkjum (= framstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 46-48-54-62-62-64 lykkjur (= ermi), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 64-70-78-86-92-100 lykkjum (= bakstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkju (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 46-48-54-62-62-64 lykkjur (= ermi) og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 37-40-44-48-51-55 lykkjum (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-178-194-210-230 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-6-8-10 loftlykkjur undir hvorri ermi). Setjið 1 prjónamerki 40-43-47-51-55-60 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 70-76-84-92-100-110 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram fram og til baka með A.1 til A.3 x eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 162-174-190-206-222-242 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 28-27-27-26-26-25 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Heklið síðan þannig: * 1 stuðull, 1 STUÐLAKRÓKUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með einn stuðul í hvern stuðul og einn stuðlakrók í hvern stuðlakrók þar til stykkið mælist 32-31-31-30-30-29 cm. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka frá miðju undir ermi (til að áferðin verði eins á fram- og bakstykki og ermum). Byrjið frá röngu, mitt í 6-6-6-6-8-10 lykkjum undir ermi og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 3-3-3-3-4-5 lykkjum frá mitti og út, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af 46-48-54-62-62-64 lykkjum sem hoppað var yfir og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-3-3-4-5 lykkjum mitt undir ermi = 52-54-60-68-70-74 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram fram og til baka með A.1 til A.3 x eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU – sjá útskýringu að ofan, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur saman í 1 lykkju. Fækkið lykkjum svona með 7-6½-4- 2½-2½-2 cm millibili alls 6-6-8-12-12-13 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-39-37-35-34-32 cm, endið eftir 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Síðan er heklað þannig: * 1 stuðull, 1 STUÐLAKRÓKUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* út umferðina. Haldið áfram með stuðul í hvern stuðul og stuðlakrók í hvern stuðlakrók þar til stykkið mælist 45-43-41-39-38-36 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermi – saumið í ystu lykkjubogana. Staðsetjið tölur jafnt yfir í vinstra framstykki og saumið niður, hneppið tölum á milli 2 stuðla í kant að framan á hægra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |