DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 218-22
DROPS Design: Mynstur z-900
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 0506, dökk grár
100-100-150-150-150-150 g litur 9026, blush

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 5,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í hlið með því að slá einu sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

LEIÐBEININGAR:
Þegar aukið er út í hlið á mynstrið að halda áfram yfir hvert annað eins og áður, það sama á við um þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg og hálsmáli. Ef ysta lykkjan að hliðum eða hálsmáli er lykkja sem á að lyfta af, skiptið út þessari lykkju með sléttri lykkju þeim lit sem umferðin er prjónuð í.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum, síðan er prjónaður kantur í hálsmáli og kantur í handvegi í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 118-130-142-154-170-186 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stroffið mælist ca 5 cm í öllum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 20-24-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 98-106-114-126-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið nú áfram eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju A.1, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og prjónið A.3 yfir 1 lykkju. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Sjá LEIÐBEININGAR og ÚTAUKNING í útskýringu að ofan!
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur í ystu lykkju (útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur). Endurtakið útaukningu með 9-9½-10-10½-11-11½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 3 sinnum í öllum stærðum = 104-112-120-132-148-160 lykkjur.
Prjónið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af 5-6-7-9-11-14 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg, fækkið síðan um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð alls 4-4-5-7-10-11 sinnum = 86-92-96-100-106-110 lykkjur.
Prjónið síðan mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti, í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið yfir fyrstu 22-24-26-27-29-31 lykkjur eins og áður (= hægri öxl) og setjið síðan þessar lykkjur á þráð. Fellið af næstu 42-44-44-46-48-48 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið yfir síðustu 22-24-26-27-29-31 lykkjur í umferð eins og áður. Prjónið síðan hvora öxl fyrir sig.

VINSTRI ÖXL (bakstykki):
Byrjið frá röngu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 21-23-25-26-28-30 lykkjur. Prjónið síðan áfram mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af með sléttum lykkjum í sama lit og fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI ÖXL (bakstykki):
Setjið til baka 22-24-26-27-29-31 lykkjur af þræði á prjón 3,5. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og felld er af 1 lykkja er í byrjun á fyrstu umferð = 21-23-25-26-28-30 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti(passið uppá að prjónaðar séu jafn margar einingar á hæðina á báðum öxlum), fellið af með sléttum lykkjum í sama lit og fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 118-130-142-154-170-186 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stroffið mælist ca 5 cm í öllum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 20-24-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 98-106-114-126-142-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið nú áfram eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju A.1, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og prjónið A.3 yfir 1 lykkju. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Sjá LEIÐBEININGAR og ÚTAUKNING í útskýringu að ofan!
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur í ystu lykkju (útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur). Endurtakið útaukningu með 9-9½-10-10½-11-11½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 3 sinnum í öllum stærðum = 104-112-120-132-148-160 lykkjur.
Prjónið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af 5-6-7-9-11-14 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg, fækkið síðan um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð alls 4-4-5-7-10-11 sinnum = 86-92-96-100-106-110 lykkjur.
Prjónið síðan mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm frá uppfitjunarkanti, í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið yfir fyrstu 30-33-34-36-38-40 lykkjur eins og áður (= vinstri öxl) og setjið síðan þessar lykkjur á þráð. Fellið af næstu 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið yfir síðustu 30-33-34-36-38-40 lykkjur í umferð eins og áður (= hægri öxl). Prjónið síðan hvora öxl fyrir sig.

HÆGRI ÖXL (framstykki):
= 30-33-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 4-3-2-3-3-3 sinnum = 21-23-25-26-28-30 lykkjur. Prjónið áfram mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af með sléttum lykkjum í sama lit og fyrri umferð og sama lit og á bakstykki. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL (framstykki):
Setjið til baka 30-33-34-36-38-40 lykkjur af þræði á prjóninn. Prjónið mynstur eins og áður, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá röngu: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 4-3-2-3-3-3 sinnum = 21-23-25-26-28-30 lykkjur. Prjónið áfram mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti (passið uppá að prjónaðar séu jafn margar einingar á báðum öxlum), fellið af með sléttum lykkjum í sama lit og fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með sama lit og fellt var af með. Saumið hliðarsauma, byrjið þar sem fellt var af fyrir handveg og saumið niður að uppfitjunarkanti innan við 1 lykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3 og litinn dökk grár. Byrjið frá réttu við axlasaum og prjónið upp ca 144-160 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum allt hálsmálið.
Prjónið 1 umferð brugðið og jafnið e.t.v. lykkjufjöldann út þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Prjónið nú stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klipið frá og festið enda.

KANTUR Í HANDVEGI:
Notið hringprjón 3 og litinn dökk grár. Byrjið frá réttu í hlið við hliðarsaum. Prjónið upp ca 124-180 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum allan handveginn. Prjónið 1 umferð brugðið og jafnið e.t.v. lykkjufjöldann út þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Prjónið nú stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með blush
symbols = slétt lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu með dökk grár
symbols = lyftið lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, passið uppá að þráðurinn sem prjónað er með liggi frá röngu á stykki (frá þér, séð frá réttu)
symbols = lyftið lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, passið uppá að þráðurinn sem prjónað er með liggi frá röngu á stykki (að þér, séð frá röngu)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Paula wrote:

Buongiorno, non sono sicura di aver capito la spiegazione del diagramma. Le prime 4 righe sono da lavorare con il colore blush e le altre 4 righe con il colore grigio scuro? Sono un pochettino confusa con le spiegazioni. Grazie mille

14.01.2024 - 14:02

DROPS Design answered:

Buongiorno Paula, si è corretta la sequenza di colori. Buon lavoro!

02.03.2024 - 11:47

country flag Maria Elena Fancello wrote:

Grazie mille per la risposta

10.01.2024 - 23:32

country flag Maria Elena Fancello wrote:

Salve. Grazie di cuore per l'enorme e prezioso servizio che offrite. Avrei un dubbio sicuramente dovuto alla mia esperienza limitata. Nelle istruzioni relative ai gilet leggo sempre che dopo il bordo a coste è necessario diminuire il numero delle maglie. Come mai? In tal modo non si restringe il modello proprio quando dovrebbe essere più ampio per seguire la linea del corpo? Grazie per l'attenzione. Sicuramente da esperti quali siete mi consentirete di apprendere qualcosa di più.

05.01.2024 - 12:18

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Elena, il bordo a coste tende a "tirare" il lavoro, questo è il motivo per cui si avviano più maglie e poi si diminuiscono alla fine del bordo per impedire al lavoro di contrarsi. Buon lavoro!

10.01.2024 - 16:40

country flag Maria Elena Fancello wrote:

Salve. Grazie di cuore per l\'enorme e prezioso servizio che offrite. Qvrei un dubbio sicuramente dovuto alla mmia esperienza limitata. Nelle ustruzioni relative ai gilet leggo sempre che dopo il bordo a coste è necessario diminuire il numero delle maglie. Come mai? In tal modo non si restringe il modello proprio quando dovrebbe essere più ampio per seguire la linea del corpo? Grazie per l\'attenzione. Sicuramente da esperti quali siete mi consentirete di apprendere qualcosa dipiù.

05.01.2024 - 11:56

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Elena, il bordo a coste tende a "tirare" il lavoro, questo è il motivo per cui si avviano più maglie e poi si diminuiscono alla fine del bordo per impedire al lavoro di contrarsi. Buon lavoro!

10.01.2024 - 16:35

country flag Jacqueline wrote:

Waarom moet je voor-en achterpand op een rondbreinaald breien. Voor de hals en mouwen snap ik. alvast bedankt, Jacqueline

25.02.2022 - 14:44

DROPS Design answered:

Dag Jacqueline,

Dit is vanwege het grote aantal steken dat je op de naald hebt (met name bij de grotere maten). Bij rechte naalden past dat niet.

26.02.2022 - 15:38

country flag Any De Lezel Couture , Marie Darchy wrote:

Bonjour, je voulais savoir si je pouvais remplacer le point fantaisie par du jersey. Je vous remercie pour votre réponse.

10.02.2022 - 09:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Darchy, il serait alors peut-être plus simple de consulter nos pulls sans manches certains d'entre eux sont en jersey, vous y trouverez fort probablement votre bonheur. Bon tricot!

10.02.2022 - 09:30

country flag Ruth wrote:

Stemmer det at mønsteret ikke blir likt i sidene? Ikke like langt til «løs» maske. Midt på vesten vil ikke være midt mellom to «løse» masker. Var dette forståelig?

26.10.2021 - 23:51

DROPS Design answered:

Hej Ruth, det kan stemme, men du skal sy siderne sammen indenfor en maske, så det kommer du ikke til at se. God fornøjelse!

28.10.2021 - 13:32

country flag Elvira wrote:

Hallo, ich bin gerade etwas verwirrt, da das Diagramm A1 genau dem Diagramm A3 entspricht und ich das nicht verstehe, warum zwei Mal das gleiche abgebildet ist. Oder sehe ich da etwas nicht richtig? Wenn ich recht habe, warum hat man einmal A1 und das gleiche nochmals A3 genannt? Oder liegt hier ein Fehler vor? Vielen Dank für die Mühe!

22.02.2021 - 15:53

DROPS Design answered:

Liebe Elvira, A.1 zeigt wie man die Hinreihen anfängt (und wie man die Rückreihe endet), und A.3 zeit wie man die Hinreihen endet (und wie man die Rückreihe anfängt), dh mit 1 Masche kraus rechts entweder mit blush oder mit dunkegrau. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2021 - 16:09

country flag Linda Fagerlie wrote:

Jeg skrev allerede at jeg strikker str. M. Se min kommentar ovenfor

18.02.2021 - 10:41

country flag Linda Fagerlie wrote:

Hei, jeg har kjøpt garn til str M i denne vesten, men sitter igjen med en for mye av den grå og en for lite av den rosa/blush. Har dere fått andre kommentarer på det?

17.02.2021 - 09:07

DROPS Design answered:

Hej Linda, Det har vi ikke fået kommentarer på før, men skriv gerne hvilken størrelse du strikker, så ved vi hvilken vi skal se nærmere på.

18.02.2021 - 08:57