Stone Fence#stonefencesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og kaðlalykkjum. Stærð XS - XXL.
DROPS 217-5 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 8. hvern stuðul. LASKALÍNA: Aukið út um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla í fyrsta og síðasta stuðul í A.2 (= 4 stuðlar fleiri við hverja laskalínu og 16 stuðla fleiri í umferð). Útauknar lykkjur eru heklaðar í stuðla. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið þar til 4 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregði þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni * , heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið næstu 4 stuðla eins og áður (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja) og fækkið um 1 stuðul alveg eins og frá fyrra prjónamerki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Síðan er fram- og bakstykkið og ermar heklað í hring hvert fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 66-66-70-72-76-80 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 og 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan A.1 í hring í umferð. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 1 umferð með stuðlum þar sem aukið er út um 8-12-12-12-16-24 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 74-78-82-84-92-104 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er heklað áfram þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 13-14-14-15-16-19 stuðlum – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR (= hálft bakstykki), heklið A.2 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 7-7-9-9-11-11 stuðla (= ermi), heklið A.2 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 26-28-28-29-31-37 stuðla (= framstykki), heklið A.2 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 7-7-9-9-11-11 stuðlum (= ermi), heklið A.2 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 13-14-14-14-15-18 stuðlum í umferð. Haldið svona áfram hringinn, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útaukning að ofan. Aukið svona út í hverri umferð 4-5-5-6-6-6 sinnum í annarri hverri umferð 1-2-3-3-4-5 sinnum og í 3. hverri umferð 3-2-2-2-2-2 sinnum = 202-222-242-260-284-312 lykkjur. Heklið áfram þar til berustykkið mælist 20-20-22-23-26-28 cm frá prjónamerki sem var sett í eftir kant í hálsmáli. Heklið nú loftlykkju lykkjur í A.2 saman í kaðlalykkjur þannig: Stingið heklunálinni niður í 1. loftlykkjulykkju efst að hálsmáli frá réttu, dragið 2. loftlykkjulykkju í gegnum 1. loftlykkjulykkju, stingið heklunálinni niður í 2. loftlykkjulykkju og dragið 3. loftlykkjulykkju í gegnum 2. loftlykkjulykkju. Haldið svona áfram þar til allar loftlykkjur hafa verið heklaðar saman. Endurtakið við þær mynstureiningar sem eftir eru með A.2 í umferð. Setjið e.t.v. þráð í gegnum síðustu loftlykkjulykkju þannig að hún haldist og rakni ekki upp. Í síðustu umferð er heklað eins og útskýrt er að neðan. Loftlykkjulykkjur í A.2 eru ekki taldar með í lykkjufjöldanum og hekluð er 1 fastalykkja um síðustu loftlykkjulykkju í hverri kaðlalykkju þannig að hún rakni ekki upp (síðan er hoppað yfir þessa fastalykkju, þ.e.a.s. hún er ekki talin með í lykkjufjölda áfram í stykkinu): Heklið stuðla eins og áður yfir fyrstu 30-33-35-38-41-46 lykkjur og heklið jafnframt 1 fastalykkju um síðustu loftlykkjulykkju í kaðlalykkju, heklið 6-6-8-8-10-10 laustar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 41-45-51-55-61-65 stuðla (= ermi), heklið stuðla eins og áður yfir næstu 60-66-70-75-81-91 lykkjur og heklið jafnframt 1 fastalykkju um síðustu loftlykkjulykkju í kaðlalykkju í hvorri hlið (= framstykki), heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 41-45-51-55-61-65 stuðla (= ermi), heklið stuðla eins og áður yfir þá 30-33-35-37-40-45 stuðla sem eftir eru og heklið jafnframt 1 fastalykkju um síðustu loftlykkjulykkju í kaðlalykkju. Klippið frá. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-144-156-166-182-202 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki í aðra hliðina mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 loftlykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar loftlykkjur hvoru megin við prjónamerki). Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkju eftir prjónamerki og heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið hringinn með stuðlum. Haldið áfram hringinn svona þar til fram- og bakstykki mælist 24-26-26-27-26-26 cm frá skiptingu. Heklið nú kant þannig: Heklið A.1 hringinn í umferð. Endurtakið síðustu umferð í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 5 cm. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 loftlykkjur undir ermi (= í byrjun á umferð). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Festið enda með 1 keðjulykkju í lykkju á eftir prjónamerki, heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 2-2-3-3-4-4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul um næsta stuðul (= í hornið á milli loftlykkja og stuðla sem hoppað var yfir fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 41-45-51-55-61-65 stuðlum, heklið 1 stuðul um næsta stuðul (= í hornið á milli loftlykkja og 41-45-51-55-61-65 stuðla sem hoppað var yfir fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3-3-4-4-5-5 loftlykkjum = 49-53-61-65-73-77 stuðlar. Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð 1-1-2-6-10-11 sinnum og í annarri hverri umferð 4-5-7-5-4-4 sinnum = 39-41-43-43-45-47 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 36-37-35-35-32-30 cm frá skiptingu. Heklið 1 umferð þar sem aukið er út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju í umferð = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Heklið nú kant þannig: Heklið A.1 hringinn í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu umferð þar til kanturinn mælist 5 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stonefencesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.