Deep Woods#deepwoodscardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, kaðlamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju í sléttprjóni (lykkja með prjónamerki) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Auknar eru út alls 2 lykkjur í hverri útauknings umferð (1 lykkja í hvorri hlið). ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir 5 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera þar sem v-hálsmálið byrjar. Staðsetjið þau 4 hnappagöt sem eftir eru með jöfnu millibili ca 8 cm á milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hásmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður kantur í hálsi/kantar að framan í kringum allt opið á peysunni. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-82-84-86-88-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með 1 þræði Kid-Silk og 1 þræði Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 3 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-24-26-28 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru 3 lykkjur í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan 1 kantlykkju í garðaprjóni og sléttprjón yfir lykkjur á framstykkjum, prjónið sléttprjón á bakstykki og A.1 (= 26 lykkjur) yfir lykkjur á hvorri ermi, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með útaukningu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 22-25-27-29-33-36 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki. Nú heldur útaukningin áfram á bakstykki og á framstykkjum 2 sinnum til viðbótar (ekki er aukið út yfir ermar, það hefur verið aukið út alls 24-27-29-31-35-38 sinnum á framstykkjum/bakstykki). JAFNFRAMT í 6. umferð (þ.e.a.s. í 3. umferð frá réttu) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í 6. hverri umferð alls 4-5-6-7-8-9 sinnum, í 4. hverri umferð alls 3 sinnum (= alls 7-8-9-10-11-12 lykkjur fleiri í hvorri hlið við miðju að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 22-25-27-29-33-36 cm, útaukningu fyrir v-hálsmáli á nú að vera lokið. Nú eru 278-306-326-346-382-410 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 35-39-42-45-50-54 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-76-80-84-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-82-88-98-106 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 70-76-80-84-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 35-39-42-45-50-54 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-166-178-194-218-238 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-24-24-24-22-21 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 1 lykkju = 151-167-179-195-219-239 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 70-76-80-84-92-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-86-92-102-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-10-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 og sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 10-11-13-16-19-21 sinnum = 56-60-60-60-64-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-36-34-33-29-27 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.1 = 44-48-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með sokkaprjónum 5. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ FRAMAN/KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er nú notað þegar helmingur af lykkjum í kanti að framan/kanti í háls er talinn. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og í 1. umferð sem er prjónuð í kringum hálsmál. Byrjið neðst á hægra framstykki frá réttu – prjónið upp ca 119-125-131-137-143-149 lykkjur meðfram öllum kanti að framan upp að prjónamerki í hnakka á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund – látið prjónamerkið sitja hér. Haldið áfram að prjóna upp ca 120-126-132-138-144-150 lykkjur meðfram öllum kanti að framan niður að kanti á vinstra framstykki, alls á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 2 + 1 = ca 239-251-263-275-287-299 lykkjur. Mikilvægt er að stroffið verði ekki of laust með of mörgum lykkjum, en það má heldur ekki herða of á köntum að framan með of fáum lykkjum. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 3 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 1 ½ cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, munið eftir HNAPPAGAT. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deepwoodscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.