Helle-Kristin Hennum skrifaði:
Autokorrekt ;/ 5x blir 40 masker
18.11.2020 - 10:11DROPS Design svaraði:
Hej Helle-Kristin 120 - 8x10=80 = 40 masker tilbage :)
18.11.2020 - 13:17
Helle-Kristin Hennum skrifaði:
Iflg felletips 1 skal det felles 8 masker pr.omg. « Nå fortsettes det rundt med vrangbord og på neste omgang starter fellingen - les FELLETIPS-1. Fell slik på hver 2.omgang 10 ganger = 40 masker.» Det blir vel strengt tatt 80 masker og ikke 40? Eller skal det felles 10 ganger slik at det blir 40 masker felt?
18.11.2020 - 10:05DROPS Design svaraði:
Hei Helle-Kristin, Du har helt rett at du feller 80 masker. De 40 i oppskriften beskriver maskene som er igjen på runden. God fornøyelse!
18.11.2020 - 10:15
Blushing Fall#blushingfallset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa / hipsterhúfa og vettlingar úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í stroffprjóni.
DROPS 214-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAAKA-1 (á við um húfu): Fækkið um 8 lykkjur í hverri umferð með úrtöku. Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 7 lykkjur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Endurtakið við þau prjónamerki sem eftir eru í umferð. ÚRTAKA-2 (á við um vettlinga): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið stroff eins og áður yfir næstu 7 lykkjur (miðju lykkjan af þessum lykkjum er með prjónamerki í), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í stroff. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 120 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23 cm, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð (prjónamerki er sett í lykkjuna, ekki á milli 2 lykkja), setjið 3 prjónamerki til viðbótar með 29 lykkjum á milli hverra lykkja með prjónamerki. Öll prjónamerkin sitja í sléttri lykkju. Haldið nú áfram hringinn í stroffprjóni og í næstu umferð byrjar úrtaka – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 10 sinnum = 40 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig: * prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 4 lykkjurnar, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), prjónið stroff eins og áður yfir næstu 3 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 16 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm með 6 cm uppábroti neðst (= alls 31 cm). ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-48 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8-8 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú eitt prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (þ.e.a.s. slétt lykkja = þumallykkja). Haldið áfram hringinn með stroffprjóni og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 lykkjur = 50-60 lykkjur. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn í stroffprjóni og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í næstu umferð = 40-48 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 22-22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 5-7 cm að loka máli), setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig (prjónamerkin eru sett í lykkju, ekki á milli 2 lykkja): Setjið fyrra prjónamerkið í 11.-13. lykkju í umferð (= 1 lykkja slétt á neðan verðum vettlingi), setjið næsta prjónamerki í 31.-33. lykkju (= 1 lykkja slétt í efri hlið á vettlingi). Haldið áfram hringinn í stroffprjóni, jafnframt byrjar úrtaka í næstu umferð – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1 sinni, síðan í annarri hverri umferð 4-6 sinnum = 20-20 lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 5-5 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 27-29 cm. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 3-3 lykkjur aftan við þumal = 14-16 lykkjur. Prjónið stroffprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5½-6 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til ca 4 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 40-48 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8-8 cm. Setjið nú eitt prjónamerki í 19.-23. lykkju í umferð (= þumallykkja). Haldið áfram hringinn í stroffprjóni og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 lykkjur = 50-60 lykkjur. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn í stroffprjóni og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í næstu umferð = 40-48 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 22-22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 5-7 cm að loka máli), setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig (prjónamerkin eru sett í lykkju, ekki á milli 2 lykkja): Setjið fyrra prjónamerkið í 11.-13. lykkju í umferð (= 1 lykkja slétt á neðan verðum vettlingi), setjið næsta prjónamerki í 31.-33. lykkju (= 1 lykkja slétt á efri hlið á vettlingi). Haldið áfram hringinn í stroffprjóni, jafnframt byrjar úrtaka í næstu umferð – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1-1 sinni, síðan í annarri hverri umferð 4-6 sinnum = 20-20 lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 5-5 lykkjur eru eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 27-29 cm. ÞUMALL: Prjónið á sama hátt og hægri þumall. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blushingfallset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.