María Teresa Belles skrifaði:
Me parece un patrón precioso y muy buena la explicación para realizarlo.
01.07.2020 - 13:43
Ann skrifaði:
Hi, I would like to get your advice regarding this top. I'd like to knit this in wool and am a bit confused which yarn from group B to choose. I like how flower structure looks in Muskat and would like to have similar result in other yarn. My main choice is between Sky, Lima and Merino Extra Fine. Which one of these will keep pattern structure better/similar to the one on the picture? Thank you in advance.
30.06.2020 - 11:26DROPS Design svaraði:
Dear Ann, For this pattern and based on my personal advice, I would choose definetely DROPS Lima but it will depend on your gauge. What we need in this pattern is a yarn that holds texture. For that, knitting a sample will be vital considering we are "transforming" a pattern knitted in mercerized cotton into a pattern knitted up in yarn. If you get the same knitting tension as the one of the pattern, then, this sweater would look fabulous in DROPS Lima! Personally, I would love love love to see it finished! If you want, you can share your finished project in our Drops Gallery or on your social media using the hashtag #dropsfan, Happy Knitting!
29.07.2020 - 11:21
Theresa skrifaði:
Hi I have reached the displaced stitche row (row17) of medium chart. I am find it difficult to understand how I work the knit 2 together, yo, yo, slip 1 knit1 pass slip stitch over? Can you help? I will still keep trying to work it out
05.06.2020 - 19:08DROPS Design svaraði:
Dear Theresa, at the beg of the 17th round, slip the first sts first repeat, work first A.1 and finish with making a YO then slip 1 st as if to K (= last st of this repeat), K1 (= 1st st next repeat) and psso. Work now 2nd repeat from 2nd st (1st st is already worked) and work the last st of 2nd repeat tog with 1st st next repeat, etc the last st last repeat will be worked with the first st slipped at the beg of round. Happy knitting!
08.06.2020 - 07:38
Marge skrifaði:
Would love to knit this for summer. Falling leaf would be my name
03.05.2020 - 06:21
Franziska skrifaði:
Warte gespannt auf die Anleitung
10.04.2020 - 12:09
Nonne skrifaði:
Chick, snygg, lättplacerad Hoppas på mönster snarast!!
22.02.2020 - 17:47
Lone Holm skrifaði:
Sød og romantisk
03.02.2020 - 19:43
Alie skrifaði:
Erg mooi
17.01.2020 - 22:31
Lavender Charm Top#lavendercharmtop |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blaðamynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-22 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-96-102-114-114-120 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið A.1 (= 6 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjur (= 16-16-17-19-19-20 sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 288-320-340-380-418-440 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-16-16-16-18-18 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttar lykkjur hringinn. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 40-45-49-53-60-65 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 81-91-98-106-120-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 41-46-49-53-60-65 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-194-208-224-256-280 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-6-8-10 lykkjur undir ermi í hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 87-97-104-112-128-140 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-4-4-5-5-5 sinnum = 194-210-224-244-276-300 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, aukið út 13-12-13-14-15-15 lykkjur jafnt yfir = 207-222-237-258-291-315 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu. KANTUR Á ERMUM: Setjið 63-69-72-84-89-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-6-8-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-78-90-97-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-0-0-0-1-1 lykkju = 69-75-78-90-96-99 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm (þ.e.a.s. 6 cm frá skiptingu). Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavendercharmtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.