DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Listen to Nature

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blaðamynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-1
DROPS Design: Mynstur r-755
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-700-750-800-900 g litur 82, silfur refur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-96-102-114-114-120 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt).
Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 (= 6 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjurnar (= 16-16-17-19-19-20 sinnum á breiddina). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 288-320-340-380-418-440 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 14-16-16-16-18-18 cm frá prjónamerki. Prjónið sléttar lykkjur hringinn.
Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir fyrstu 40-45-49-53-60-65 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur (= framstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 41-46-49-53-60-65 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 174-194-208-224-256-280 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-6-8-10 lykkjur undir ermi í hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 87-97-104-112-128-140 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-4-4-5-5-5 sinnum = 194-210-224-244-276-300 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, aukið út 13-12-13-14-15-15 lykkjur jafnt yfir = 207-222-237-258-291-315 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING.
Stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu.

ERMI:
Setjið 63-69-72-84-89-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-78-90-97-100 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-6-8-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að fækka síðar lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum með 3-2-2-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-14-19-21-22 sinnum = 47-49-50-52-55-56 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-31 cm, aukið út 1-2-1-2-2-1 lykkjur í næstu umferð = 48-51-51-54-57-57 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm. Ermin mælist 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.05.2020
Ný mynsturteikning A.1: Stærð M-L-XL (umferð 18) og stærð XXL-XXXL (umferð 24+39+41).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónuð var yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna slétt 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur
symbols = í fyrstu mynstureiningu af A.1 færist umferðin til um 1 lykkju þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, prjónið síðan A.1 hringinn
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Listen to Nature

Sif Andersen, Denmark

DROPS Listen to Nature

Monikajagerova, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (75)

country flag Khanh wrote:

Hi, I'm at graph A1.size L, round 15. Is it after 5 Purl Purl Knit, then Purl Purl K3tog ? After that, in round 16, 3 stitches around K3tog will be Knit all? Do I understand correctly? Thank you in advance!

20.04.2024 - 09:02

DROPS Design answered:

Hi, row 15: (p2, K1) x 5, p2, work 3 stitches in one (last) stitch as follows: Knit the stitch but wait to drop the stitch off the needle, make 1 yarn over on right needle and knit the stitch 1 more time, then drop the stitches of the needle = 3 stitches (= 2 stitches increased). In row 16 these last 3 stitches in pattern will be knitted. Happy knitting!

20.04.2024 - 09:50

country flag Sandra wrote:

When knitting the yoke, am I knitting A1, A2,A 1, A2…until A3, or A1, A2, A2, A2…..A3? I was doing A1, A 2, A1, A2…. and my stitches are not working out right when I get to the knit 2 together part of the pattern, around row17-18 of the diagram.

24.02.2024 - 21:36

DROPS Design answered:

Dear Sandra, for the jumper you only work A.1, for the jacket you will start the pattern with A.1 (after front band stitches), then repeat A.2 and end with A.3 before front band stitches. Which size are you working? This could help us checking the correct diagram. Happy knitting!

26.02.2024 - 08:41

country flag Elfi wrote:

Liebes Drops Team,in Reihe 19 sind die ersten 2 Maschen ein Überzug.Dadurch werden aus den 3 Maschen dann 2.In Reihe 20 sind es am Anfang wieder 3 rechts.Wo ist mein Fehler ich habe nach dem Überzug von Reihe 19 in Reihe 20 nur 2 Rechte Maschen.Vielen Dank im Voraus

23.02.2024 - 18:49

country flag Elfi wrote:

In Reihe 17 u. 33 ■ hier wird am Anfang der Runde die erste Masche versetzt. In der nächsten Runde muss man die Masche wieder auf die linke Nadeln legen und weitersricken,oder bleibt diese Masche auf der rechten Nadel? Vielen Dank für Ihre Hilfe.

19.02.2024 - 16:59

DROPS Design answered:

Liebe Elfi, am Anfang dieser beiden Runden wird die erste Masche vom 1. Rapport am Ende der Runde gestrickt: die letzte Masche vom jeden Rapport wird zusammen mit der 1. Masche vom nächsten Rapport gestrickt, der Umschlag wird dann die 1. Masche von den nächsten Rapport; genauso am Ende der Runde: die letzte Masche vom letzten Rapport stricken Sie zusammen mit der 1. Masche der Runde, der Umschlag ist dann die 1. Masche der Runde. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2024 - 07:46

country flag Cristina wrote:

Hola. El símbolo cuadradito negro, que indicáis "en la primera repeticion de A.1 desplazar la vuelta un punto, solo hay que hacerlo una vez al inicio de la vuelta, o hay que hacerlo durante las 17 repeticiones dentro de la misma vuelta? Solo una vez, o al principio de los 17 grupos? Gracias!!!!!!!!!

20.07.2023 - 08:43

DROPS Design answered:

Hola Cristina, se desplaza el pt solo en la primera repetición de A.1. Cómo puedes ver, al final de la repetición tienes una disminución, que coge el último punto de la repetición y el 1º punto de la siguiente repetición, por lo que el primer punto de cada una de las siguientes repeticiones ya se habrá trabajado con la disminución y puedes ignorar el cuadrado negro. Al final de la última repetición, disminuirás el último punto con el primer punto de la vuelta, efectivamente desplazando 1 punto el inicio de la vuelta.

20.07.2023 - 11:39

country flag Cristina wrote:

124 no perdón, quería decir 14 puntos derecho

27.06.2023 - 08:23

country flag Cristina wrote:

Hola podríais aclarar estos puntos sueltos de la izquierda del patrón a.1 M que son? No puedo adjuntar foto, pero es la columna de 124puntos derecho y una hebra, que quedan separados del resto del diagrama. Hay que ir tejiéndolos? No entiendo cómo van gracias.

27.06.2023 - 08:22

DROPS Design answered:

Hola Cristina, no son puntos sueltos. Esos puntos forman parte de la fila, pero por la forma en la que se trabaja vas a ir aumentando en el resto de puntos de la fila, mientras que estos se trabajan siempre de derecho. Por eso, el resto de puntos parece como si fueran formando un pico, mientras que este se mantiene en forma de línea recta. Es una manera de intentar representar el diagrama de forma 3D, donde hemos dejado espacio desde el principio para que se vaya ampliando el diagrama a medida que aumentamos puntos. A la hora de trabajar, ignora estos espacios; simplemente ve trabajando el siguiente símbolo en el diagrama, independientemente de si hay espacio blanco entre ellos o no.

30.06.2023 - 20:37

country flag Anna wrote:

Uppskrift 213-1, stærð M. Í umferð 27 fæ ég ekki mynstrið til að stemma. Ég byrja umferðina á 2 sl lykkjum, prjóna svo 2 saman og slæ upp á en þá er eins og mig vanti eina lykkju inn á milli til að ég geti prjónað aftur 2 saman. Þetta er eins út alla umferðina, alls staðar er eins og vanti lykkju til að ég nái að taka tvær saman tvisvar sinnum. Getur verið að það vanti í mynstrið uppslátt á milli laufblaðanna í umferð 25? Með fyrirfram þökk.

15.03.2023 - 23:04

DROPS Design answered:

Blessuð Anna. Jafnmörgum lykkjum er aukið út og fækkað í mynstureiningunni. Það á að vera sami lykkjufjöldi í umferð 25 og 27 í hverri mynstureiningu. Gangi þér vel.

14.04.2023 - 17:10

country flag Gerda Højer wrote:

Har valgt tyndere garn til str. large, dvs jeg har 144 masker, men hvilket mønster skal jeg vælge vedr. A1, da der er forskellige udtagninger, enten man strikker str. S M L XL XXl XXXl.

06.03.2023 - 11:55

DROPS Design answered:

Hej Gerda, hvis du følger størrelse L med antal masker, så skal du også vælge diagrammet ifølge størrelse L :)

08.03.2023 - 09:37

country flag Val Ludgate wrote:

The solid black square at the beginning of round 17 states “ symbols = on first repetition of A.1 displace round 1 stitch as follows: Pass the first stitch over right needle without working it, then work A.1 in the round.”. Does this mean slip the first stitch of the round? If so what do I do with it on the next round?

06.01.2023 - 09:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ludgate, yes you will slip the first stitch of the round in first A.1 and this stitch will be worked together with the last stitch on last repeat of the round = this is now the new first stitch of the round/repeat. Happy knitting!

06.01.2023 - 11:43