Wild Mint |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri á berustykki og í hliðum. Stærð S- XXXL.
DROPS 210-32 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hvorri hlið á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í hlið og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 mitt undir ermi, þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-98-102-108-112-116 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-36-38-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-130-136-144-150-154 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út 42-32-34-36-50-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 168-162-170-180-200-206 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm – aukið jafnframt út 0-18-10-18-31-39 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 168-180-180-198-231-245 lykkjur. Prjónið nú A.1 hringinn (= 28-30-30-33-33-35 mynstureiningar með 6-6-6-6-7-7 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 280-300-330-363-396-420 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-18-19-21-22 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið sléttprjón – aukið jafnframt út 4-8-2-9-0-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 284-308-332-372-396-428 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 41-45-48-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-90-96-106-118-130 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-45-48-53-59-65 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-230-258-282 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í miðju á 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, í annarri hlið á fram- og bakstykki, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju á þessum 9 lykkjum), prjónið 80-88-96-106-120-132 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju á þessum 9 lykkjum), prjónið 80-88-96-106-120-132 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 7 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu = 186-202-218-238-266-290 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 84-92-100-110-124-136 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur, prjónið A.2 eins og áður, prjónið 84-92-100-110-124-136 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur = 220-240-260-284-316-344 lykkjur. ATH: Aukið er út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 í hinni hliðinni á stykki, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-70-80-80-84 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-91-95 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 7-7-9-9-11-11 lykkjum. Byrjið umferð 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju á þessum 9 lykkjum), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-4-4-4-3-1 sinnum = 59-63-71-81-85-93 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-8-7-5-4-2 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir – A.2 heldur áfram eins og áður og ekki er lykkjum fækkað yfir lykkjur í A.2 = 56-60-68-78-82-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Marie-Claire wrote:
J'aimerais bien savoir comment récupérer les explications pour ce modèle s'il vous plaît. Merci !
08.02.2020 - 14:56Vivi Busch-Christensen wrote:
Er den strikket ovenfra ellernedenfra?
19.01.2020 - 18:04Doris wrote:
Hübsche Rundpasse,auch so kann ein Kurzarmpulli gestrickt werden
10.01.2020 - 07:24Doris wrote:
Gefällt mir, würde ich am liebsten mit Belle stricken.
31.12.2019 - 20:37Marina Romano wrote:
Wunderschönes Modell
24.12.2019 - 15:12Betina Kauer wrote:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:47