DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wild Mint

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri á berustykki og í hliðum. Stærð S- XXXL.

DROPS 210-32
DROPS Design: Mynstur me-199
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-450 g litur 15, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hvorri hlið á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í hlið og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 mitt undir ermi, þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 94-98-102-108-112-116 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-36-38-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-130-136-144-150-154 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út 42-32-34-36-50-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 168-162-170-180-200-206 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm – aukið jafnframt út 0-18-10-18-31-39 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 168-180-180-198-231-245 lykkjur.
Prjónið nú A.1 hringinn (= 28-30-30-33-33-35 mynstureiningar með 6-6-6-6-7-7 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 280-300-330-363-396-420 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-18-19-21-22 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið sléttprjón – aukið jafnframt út 4-8-2-9-0-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 284-308-332-372-396-428 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 41-45-48-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-90-96-106-118-130 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-45-48-53-59-65 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 178-194-210-230-258-282 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í miðju á 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.
Byrjið umferð 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, í annarri hlið á fram- og bakstykki, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju á þessum 9 lykkjum), prjónið 80-88-96-106-120-132 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju á þessum 9 lykkjum), prjónið 80-88-96-106-120-132 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 7 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu = 186-202-218-238-266-290 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 84-92-100-110-124-136 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur, prjónið A.2 eins og áður, prjónið 84-92-100-110-124-136 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur = 220-240-260-284-316-344 lykkjur. ATH: Aukið er út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 í hinni hliðinni á stykki, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 lykkju slétt.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-70-80-80-84 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-91-95 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju á 7-7-9-9-11-11 lykkjum. Byrjið umferð 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju á þessum 9 lykkjum), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-4-4-4-3-1 sinnum = 59-63-71-81-85-93 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-8-7-5-4-2 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir – A.2 heldur áfram eins og áður og ekki er lykkjum fækkað yfir lykkjur í A.2 = 56-60-68-78-82-90 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu
symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja eru 2 uppslættir slegir uppá prjóninn aðeins stífari, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri)

symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið innstu af þessum 3 lykkjum yst á hægri prjón yfir 2 ystu lykkjur slétt þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem fækkað var um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni aðeins stíft uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturtákni (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)

symbols = uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Wild Mint

Softstopshop, Sweden

Wild Mint

April, Canada

Wild Mint

Nadia, United States

Wild Mint

Therese Lundberg, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Anna wrote:

Hi, i have problem with A.1 ,row n.3:" lift the innermost of the 3 knit stitches at the edge of right needle over the 2 outermost knit stitches so that stitch is around the other two". I don't understand how to do that, do you have a tutorial video for explain about this? Thanks

02.05.2021 - 22:43

DROPS Design answered:

Hi Anna, The 3 last stitches you have worked are now on the right needle. You pass the first of these 3 stitches (furthest from the end of the needle) over the other 2 (closest to the end of the needle) so it lies around them and is decreased from the needle. I hope this helps and happy knitting!

03.05.2021 - 07:33

country flag Nicole Miller wrote:

Could you please clarify knitting gauge: Is 21 sts knitted in stockinette with larger needles or smaller (ie 4 mm or 3 mm)

26.04.2021 - 05:56

DROPS Design answered:

Hi Nicole, The knitting guage is measured with the larger size needles. Happy crafting!

26.04.2021 - 08:11

country flag Evelyne Lienhardt wrote:

Danke für die Hilfe, der Knoten im Hirn hat sich gelöst. :D

22.04.2021 - 10:26

country flag Evelyne Lienhardt wrote:

Bei 210-32 kapier ich bei A1 nicht die Verzopfung. 1 Masche auf 1 Zopfnadel legen vorne, 1 links 1 rechts von Zopfnadel 1 rechts. Bis dahin kapier ich es noch 1 Masche auf Zopfnadel hintre Arbeit. Die Innerste der nächsten 3 Rechtsmaschen (wo kommen die her?) über die 2 äußeren Maschen ziehen ??? 1 links von der Zopfnadel . habe doch für das innere nur 5 Maschen.

21.04.2021 - 14:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lienhardt, diese 3. Masche zählen Sie von der rechten Nadelspitze, dh diese ist die 1. Masche die früher vor der Arbeit gelegt war. 1 Masche wird hier abgenommen und so eine kleinen Zopf gestrickt. Also zuerst stricken Sie 1 Zopf über 2 M, dann 1 M recht, dann legen Sie 1 M hinter die Arbeit und stricken die nächste rechts, die 3. M auf der rechten Nadel von der Spitze gezählt (= die Masche die Sie bei dem 1. Zopf rechts gestrickt haben) über die 2 ersten Maschen überziehen (wie hier z.B.) und die letzte M auf der Hilfsnadel links stricken. Viel Spaß beim stricken!

21.04.2021 - 15:43

country flag Marie wrote:

I made the model and this is a new favourite, rellay pretty. I made it more simple and did not make the ornaments in the side, this make it a quicker model to make.

30.07.2020 - 09:13

country flag Hilda Slot wrote:

Ik brei het patroon voor maat L. Ik ben nu bij de PAS, inmiddels heb ik 180 steken op de rondbreinaald. Nu staat er:brei nu A.1 in de rondte(=30 herhalingen van 6 steken) Als A.1 in hoogte is gebreid, zijn er 330 steken op de naald. Ik snap niet hoe ik aan die 150 steken meer kom. Hopelijk begrijpt u het, en is het simpel om me dat uit te leggen. Alvast mijn hartelijke dank, Hilda

07.07.2020 - 16:35

DROPS Design answered:

Dag Hilda,

Heb je het juiste telpatroon van A.1 voor jouw maat gekozen? Het patroon klopt namelijk wel. A.1 begint met 6 steken in de breedte en eindigt met 11 steken in de breedte voor maat L. 30 herhalingen van 11 steken is 330 en 30 herhalingen van 6 steken is 180, dus dat zou moeten kloppen.

04.08.2020 - 13:14

country flag Shirley Eagle wrote:

Is there a real reason this is only available to print in small size pale grey? Impossible to sit in front of the computer with this page up long enough to knit a whole sweater!

02.07.2020 - 19:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Eagle, please check the settings your printer, so that pattern will be printed with colours (not only black and white). Happy knitting!

03.07.2020 - 08:28

country flag MJ Pepper wrote:

Why is it that Drops never includes EASE measurements in patterns? It would be helpful knowledge to have when knitting close fitting garments such as THIS pattern. It would also be helpful in patterns with lots of ease. Would you be kind enough to bring this to the attention of your pattern designers? I know we all would appreciate the information. Thank you for your time and attention to my query.

05.05.2020 - 23:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pepper, to choose your size, measure a similar garment you have and like the shape, and compare the measurements to those in the chart - if you like to get something tighter or looser, choose the appropriate size. Read more about measurement chart here Happy knitting!

06.05.2020 - 10:35

country flag Marie wrote:

Which size is the knitted model in the picture?

29.04.2020 - 07:12

DROPS Design answered:

Hej Marie, det er størrelse S eller M men du finder tøjets mål i måleskitsen nederst i opskriften, vælg den størrelse som har de mål som passer dig :)

29.04.2020 - 08:30

country flag Susanne Krøyer Jørgensen wrote:

Summer Xelia

23.02.2020 - 14:21