DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wild Mint Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi, hringlaga berustykki og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-15
DROPS Design: Mynstur u-901
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 69, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT (á við um 2 hnappagöt í kanti í hálsmáli):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hvorri hlið á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í hlið og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 mitt undir ermi, þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðu að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantar að framan eru prjónaðir í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 107-111-115-121-125-129 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff.
Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm og 5 cm, fellið af fyrir 1 HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan (þessi hnappagöt eiga að passa yfir hvort annað þegar kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfalt).
Prjónið áfram þar til kantur í hálsmáli mælist 6½-7 cm, en endið eftir umferð frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 7 lykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð (= 1 kantlykkja), prjónið stroff eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 7 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn (= kantlykkja), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 93-97-101-107-111-115 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út 32-32-34-36-38-38 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1 = 127-131-137-145-151-155 lykkjur í umferð, meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið.
Setjið 1 prjónamerki innan við kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykki mælist 4 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út 44-32-34-36-50-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 171-163-171-181-201-207 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm frá prjónamerki – aukið jafnframt út 0-20-12-20-33-41 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 171-183-183-201-234-248 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 28-30-30-33-33-35 mynstureiningar með 6-6-6-6-7-7 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (= 1 lykkja brugðið frá réttu) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 283-303-333-366-399-423 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-18-19-21-22 cm frá prjónamerki við háls.
Prjónið síðan sléttprjón. Þegar prjónaðir hafa verið ca 1-2-2-3-3-3 cm eftir A.1, aukið út 10-14-8-15-6-14 lykkjur jafnt yfir = 293-317-341-381-405-437 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 44-48-51-56-62-68 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 85-93-99-109-121-133 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 44-48-51-56-62-68 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig! HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 187-203-219-239-267-291 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.2 yfir miðju 9 lykkjur í hvorri hlið undir hvorri ermi (prjónamerki situr í miðju af þessum 9 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hvorri hlið á fram- og bakstykki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 199-215-231-251-279-303 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, en endið eftir eina umferð frá réttu.
Í næstu umferð (ranga) eru lykkjur auknar út jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 45-49-53-58-65-71 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 10-10-10-13-14-14 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur, haldið áfram með A.2 eins og áður, prjónið 89-97-105-115-129-141 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur, prjónið A.2 eins og áður, prjónið 45-49-53-58-65-71 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 10-10-10-13-14-14 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 237-255-273-301-333-359 lykkjur. ATH: Aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragið stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 55-59-63-71-79-85 lykkjur stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 9 lykkjur, prjónið 107-117-127-139-155-169 lykkjur stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 9 lykkjur, prjónið 55-59-63-71-79-85 lykkjur stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-70-80-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-91-95 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjum. Byrjið umferð 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju af þessum 9 lykkjum), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 10-11-14-18-18-18 sinnum = 47-49-51-53-55-59 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-34-32-30-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið síðan 38-40-42-44-46-50 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 9-9-11-11-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur = 56-58-62-64-66-70 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu eftir kant í hálsmáli og prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 123 til 149 lykkjur á hringprjóna 3 – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2½ til 3 cm (breiddin á kanti að framan á að passa við málin á 7 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsi). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið kant að framan við kant í hálsmáli innan við 1 kantlykkju.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst á framstykki og prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 123 til 149 lykkjur (upp að kanti í hálsmáli) á hringprjón 3 – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1 til 1½ cm er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 hnappagötum. 1 hnappagat = Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Efsta hnappagatið er staðsett ca 7 til 8 cm frá hnappagati í kanti í hálsmáli (þegar kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur) og neðsta hnappagatið er staðsett ca 3 cm frá neðri kanti.
Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist ca 2½ til 3 cm (stillið lengdina af eftir vinstri kanti að framan). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið kant að framan við kant í hálsi innan við 1 kantlykkju.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá kant í hálsmáli tvöfalt að röngu og saumið fallega niður. Saumið tölur í vinstri kant að framan / kant í hálsmáli.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja eru gerðir 2 aðeins stífir uppslættir um prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn uppslátturinn er prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri)
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið innstu af 3 lykkjum slétt yst á hægri prjóni yfir 2 ystu lykkjur slétt þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju brugðið frá kaðlaprjóni
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er gerður 1 aðeins stífur uppsláttur um prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Rebekah wrote:

I am on the A.1 pattern and having problems with right side row 25. Can you clarify please.

29.01.2024 - 00:25

DROPS Design answered:

Dear Rebekah, on row 25 work as follows for A.1: purl 2, place 1 stitch on cable needle behind piece, knit 1, purl 1 from cable needle, make 1 slightly tight yarn over, yarn over purled twisted, make 1 slightly tight yarn over, place 1 stitch on cable needle in front of piece, purl 1, knit 1 from cable needle, purl 1. Because the yarn overs are each worked differently and with the objective that they don't form holes, even if you work 3 yarn overs one after the other, you won't have a big hole. Happy knitting!

29.01.2024 - 00:44

country flag Lesley Swan wrote:

Hi. I am up to the patterning on the wild mint pattern and I am confused. On row 3 do I work the light printed cable or the dark printed cable with 2?? after the cabling. I worked the dark one but now think it wrong. Thanks.

23.08.2023 - 14:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Swan, on 3rd row work 7th symbol in diagram text, the symbol will be edited asap, but these 5 stitches have to be worked as explained here: slip 1 in front of piece, P1, K1 from cable needle, slip 1 behind piece, k1, pass the innermost of the 3 sts over the 2 sts worked, and purl 1 from cable needle. (then make 1 yarn over = 9th symbol). Happy knitting!

23.08.2023 - 16:47

country flag Jian wrote:

I have a difficult to work out the A.1 row 3 diagram. Would be able to provide a video. Many thanks.

20.05.2021 - 11:47

DROPS Design answered:

Dear Jian, work the 3rd row in A.1 as follows: *purl 1, slip the next stitch on a cable needle in front of piece, purl the next stitch, knit the stitch on the cable needle; now slip the next stitch on the cable needle behind piece, knit the next stitch, slip the 3rd stitch from the tip on the right needle over the 2 outermost stitches (you decrease 1 stitch), and purl the stitch from cable needle. If working size XXL, XXXL, purl next stitch. Repeat from *. Hope this will help. Happy knitting!

20.05.2021 - 12:41

country flag Jessica wrote:

Teckenförklaringen i det här mönstret är felaktig, de tre rutorna med diagonalt streck har samma förklaring som symbolen ovanför, i möster 215-16 verkar den korrekt.

01.11.2020 - 17:35

DROPS Design answered:

Hej Jessica. Tack för info, detta är nu rättat! Mvh DROPS Design

03.11.2020 - 10:23

country flag Arina wrote:

I am having difficulty visualizing the construction of the neck band and button band. Would it be possible to supply a diagram? Thank you.

25.10.2020 - 17:06

DROPS Design answered:

Dear Arina, we have two videos showing how to work the neck band and button band: how to work a double neck and how to knit up stitches for a jacket band. Hope they will help you. Happy knitting!

26.10.2020 - 08:45

country flag Ing-Marie Jungegård wrote:

Vill se hur man stickar fläta i A1

04.10.2020 - 10:38

DROPS Design answered:

Hej Ing-Marie. Vi har dessvärre ingen video på det nu men vi noterar önskemålet. Är det något speciellt du har problem med som vi kanske kan försöka förklara tydligare? Mvh DROPS Design

06.10.2020 - 07:50