Irena skrifaði:
Witam. Mam problem z wykończeniem dekoltu szydełkiem. Czy jest gdzieś video, które podpowie jak to zrobić?
17.05.2020 - 09:47DROPS Design svaraði:
Witaj Ireno! Na środku jednego z ramion trzeba dołączyć nitkę przerabiając 1 oczko zamykające w 1-sze oczko, potem, 1 oczko łańcuszka, a dalej wykonujesz 1 oś w każde oczko robótki. Jak wykonać oczka ścisłe znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!
18.05.2020 - 10:15
Alice skrifaði:
I haven't knit for a couple of years, so this looks like a good starter and very much my style.
11.05.2020 - 23:27
Marianne Östman skrifaði:
Hej Ska sticka en tröja som heter Set Sail och som stickas i Drops Sky och Kid-Silk. Kan inte sticka med alpacka eller mohairegarn pga allergi. Vad kan jag ta för garn istället? Tacksam för hjälp med detta. Marianne Östman
12.04.2020 - 13:17DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. DROPS Sky tilhører garngruppen B og her kan du velge DROPS Muskat, DROPS Belle og DROPS Cotton Light. DROPS Kid-Silk tilhører garngruppe A og har har vi DROPS Safran. Alternativene er ikke like som Sky og Kid-Silk og du vil ikke få det samme uttrykket du ser på bildet, men det er ikke ull. Husk å sjekke strikkefastheten om du velger andre garn enn oppskriften sier. God Fornøyelse!
27.04.2020 - 13:06
Marie Moureau skrifaði:
Vraiment bien ce pull, à quand les explications?? J'attends avec impatience. Merci
17.03.2020 - 11:16
Joanna skrifaði:
Looking forward to knitting this to go with my favorite jeans!
13.03.2020 - 15:49
Misha skrifaði:
Look so nice, would love to knit it
15.02.2020 - 19:15
Christina Zweigberg skrifaði:
En favorit. Hoppas att beskrivningen kommer snart.
05.02.2020 - 09:55
Jutta skrifaði:
Looking forward to making this beautiful sweater. Classic stylish cut, relly nice.
03.02.2020 - 19:11
Irena skrifaði:
Proszę........ Już z niecierpliwością czekam na opis!!!!
03.02.2020 - 15:28
Tove skrifaði:
Så flott genser, når er oppskriften klar, mon tro?
21.01.2020 - 21:38
Set Sail#setsailsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Vegna mikilla útaukninga í hvorri hlið á ermi, eru útaukningar útskýrðar í umferð á hæðinni. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina þá kemur það til með að hafa áhrif á heildar lengdina á erminni. Athugið prjónfestuna! Ef prjónfestan passar ekki þá getur þú stillt bilið á milli útaukninga með því að deila fjölda útaukninga sem á að gera með óskaðri lengd á ermum í cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki, bakstykki og ermar er prjónað hvert fyrir sig, fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman í lokin. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-58-64-70-76-84 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2½-2½-3-3-3-3 cm millibili alls 7 sinnum í hvorri hlið = 66-72-78-84-90-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-4 sinnum og 1 lykkju 3-2-4-5-5-8 sinnum = 50-54-56-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 30-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram yfir 10-11-11-11-11-12 lykkjur á annarri öxlinni þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Fitjið upp 28-28-30-32-32-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-4-4 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 24-26-26-27-29-29 sinnum, í XS: Í 3. umferð (jafngildir ca 1,7 cm), í S, M og L: Til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð (jafngildir ca 1,5 cm), og í XL og XXL: Í annarri hverri umferð (jafngildir ca 1,2 cm) = 76-80-82-86-90-92 lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR. Eftir síðustu útaukningu er prjónað áfram þar til ermin mælist 44-44-43-43-43-41 cm. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 51-51-52-53-54-54 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 52-52-53-54-55-55 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 2 umferðir með fastalykkjum í kringum hálsmál með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund. Þ.e.a.s. byrjið mitt á annarri öxlinni, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan fastalykkjur í kringum hálsmál með ca 1 fastalykkju í hverja lykkju – passið uppá að kanturinn verði jafn og fallegur og ekki of stífur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Heklið næstu umferð alveg eins með 1 fastalykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #setsailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.