Sandra skrifaði:
Hallo ich komme mit A2a nicht klar, in der Anleitung steht es wären 9 Maschen, aber nach der 2. Reihe sind es doch nur noch 8 Maschen weil man 1 Umschlag ja fallen lassen soll und das Muster geht nicht mehr auf oder habe ich einen Denkfehler :(
28.05.2020 - 19:51DROPS Design svaraði:
Liebe Sandra, ja genau so zeigt auch 2. Reihe in A.2A, bei der 3.Reihe brauchen Sie wieder 9 M (die 9. Masche ist dann die erste Masche von A.2B /nächsten A.2B). Viel Spaß beim stricken!
29.05.2020 - 07:59
Federica Bolognini skrifaði:
Buongiorno ho rifatto i calcoli e ricontrollato il lavoro decine di volte ma al primo ferro (sto facendo una taglia S) alla fine non restano le 13 maglie da lavorare a rasata, ma ne restano 21! Potete provare a lavorare anche voi il ferro 1 per avere un riscontro? Ho perso tutto il pomeriggio senza venirne a capo! Grazie.
12.04.2020 - 18:28DROPS Design svaraði:
Buonasera Federica, le istruzioni sono corrette, ci sono 194 maglie sul ferro: 13+21+9+14+6+21+13 = 97, da ripetere un'altra volta per arrivare a 194. Verifichi di lavorare correttamente i diagrammi A.2A, A.2B e A.2C. Buon lavoro!
12.04.2020 - 20:01
Lis Beck skrifaði:
Til garnqstudie. Jeg vil meget gerne strikke summers waltz, men kan jeg erstatte Drops Merino 1 tråd med enten Brush Alpaca Silk 2 tråde eller Kids Silk 2 tråde. Venlig hilsen Lis Beck
11.04.2020 - 16:52DROPS Design svaraði:
Hej Du kan ersätta DROPS Merino med ett annat garn i Garngrupp B, men dessvärre inte med dubbel tråd Kidsilk eller Brushed Alpaca Silk för det blir motsvarar andra garngrupper. Mvh DROPS Design
22.04.2020 - 09:34
Lorraine Bruce skrifaði:
I am unable to download the pattern for this garment. Is it still coming or do I have a different problem? It I a beautiful jumper, one I would really like to make.
14.03.2020 - 23:59
Eva skrifaði:
How about calling it meandering rivers?
26.01.2020 - 03:09
Juana skrifaði:
Muy bonito me lo puedo ver puesto
18.01.2020 - 11:28
Nonne skrifaði:
Bra modell. Snyggt arbetat mönster.
21.12.2019 - 14:37
Summer's Waltz#summerswaltzsweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-30 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermakúpu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við ermakúpu jafnframt því sem kaðlar eru gerðir þannig: KAÐALL TIL HÆGRI OG FÆKKIÐ JAFNFRAMT UM 2 LYKKJUR: Byrjið strax eftir 2 fyrstu lykkjur í umferð, setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). KAÐALL TIL VINSTRI OG FÆKKIÐ JAFNFRAMT UM 2 LYKKJUR: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 2 lykkjur færri) og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjón til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum og ermar eru saumaðar í áður en kantur í hálsmáli er prjónaður í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 196-212-228-248-272-296 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 194-210-226-246-270-294 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt án útaukninga. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21 lykkjur sem auknar eru út til 24 lykkjur), prjónið A.2A (= 9 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 14-14-14-28-28-28 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.2C (= 6 lykkjur), prjónið A.3 (= 21 lykkjur sem auknar eru út til 24 lykkjur), prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= í hlið á fram- og bakstykki) *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. Nú eru 206-222-238-258-282-306 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð alveg eins og mynsturteikning sýnir. A.1 og A.3 hefur nú verið prjónað til loka. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handveg. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 24 lykkjur), haldið áfram með A.2 eins og áður yfir næstu 29-29-29-43-43-43 lykkjur, prjónið A.5 (= 24 lykkjur), prjónið 13-17-21-19-25-31 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig: Fellið af 3 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Bakstykki og framstykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 97-105-113-123-135-147 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið jafnframt af fyrir handveg með því að fella af í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 3-6-6-7-8-8 sinnum í hvorri hlið = 83-85-89-97-97-99 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 25-26-27-31-30-31 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fellið af 3 lykkjur jafnt yfir lykkjur í kaðli (þetta er gert í umferð frá réttu) = 22-23-24-28-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykki mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: = 97-105-113-123-135-147 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið jafnframt af fyrir handveg með því að fella af í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 3-6-6-7-8-8 sinnum í hvorri hlið = 83-85-89-97-97-99 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm. Í næstu umferð eru miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 25-26-27-31-30-31 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 3 lykkjur jafnt yfir lykkjur með kaðli (þetta er gert í umferð frá réttu) = 22-23-24-28-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 9-6-9-6-9-6 cm, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 15-17-18-20-22-24 sinnum = 74-80-84-90-96-102 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-48-47-46-45-44 cm. Nú á að fella af fyrir ermakúpu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru = 68-74-78-84-90-96 lykkjur eftir. Klippið frá. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjón þannig: Byrjið frá röngu og prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem felldar voru af 3 lykkjur í byrjun á hvorri af þessum 2 umferðum = 62-68-72-78-84-90 lykkjur eftir. Prjónið 3 umferðir sléttprjón án úrtöku. * Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, kaðall til hægri og fækkið jafnframt um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, kaðall til vinstri og fækkið jafnframt um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1 og endið með 2 lykkjur sléttprjón. Prjónið 3 umferðir sléttprjón án úrtöku *, prjónið frá *-* alls 5-6-6-7-8-8 sinnum á hæðina, en síðasta endurtekningin endar þegar prjónuð hefur verið 1 umferð sléttprjón eftir umferð með snúningi fyrir köðlum og úrtöku. Prjónið 4 umferðir sléttprjón og fækkið um 3 lykkjur í byrjun á hverri einni af þessum 4 umferðum = 30-32-36-38-40-46 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 57-58-58-58-58-58 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 80 til 90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 88-92-96-100-104-108 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerswaltzsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.