DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Meadowsweet

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-29
DROPS Design: Mynstur ee-691
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-650-700-750-850 g litur 30, ljós bleikur

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 8,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa prjónamerkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt af þeim prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 50-52-54-58-60-62 lykkjur á hringprjón 7 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-2-6-4-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 56-56-56-64-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. eftir stroff), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 15-15-15-17-17-17 lykkjur – veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 15-15-15-17-17-17 lykkjur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-19-20-22-23 sinnum = 176-192-208-224-240-248 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, byrjið á nýrri mynstureiningu á hæðina og gataumferðin sem nú þegar er byrjuð heldur áfram út að hvorri hlið. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka mælist stykkið ca 20-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Prjónið áfram (án frekari útaukninga fyrir laskalínu) þar til stykkið mælist 23-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Í stærð XS, S, L og XL skiptist stykkið við prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í stærð M og XXL á að prjóna 1-2 lykkjur í hvorri hlið á ermum inn á framstykki/bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 47-51-56-59-63-66 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 41-45-47-53-57-57 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 47-51-57-59-63-67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 41-45-47-53-57-57 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Í stærð M og XXL er síðasta lykkjan prjónuð í umferð (þ.e.a.s. þessar lykkjur tilheyra bakstykki = 47-51-57-59-63-67 lykkjur fyrir bakstykki). Klippið frá.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 104-112-124-132-140-148 lykkjur. Byrjið umferð eftir miðju af 5-5-5-7-7-7 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hliðinni. Prjónið sléttprjón yfir 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum. Yfir þær lykkjur sem eftir eru er haldið áfram með gatamynstur (A.1) eins og áður. Þ.e.a.s. þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, byrjið á nýrri mynstureiningu á hæðina og gataumferðin heldur áfram að færast út að hvorri hlið þar til eftir eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-20-20-20-20-20 cm, byrjið ekki á fleiri mynstureiningum A.1 á hæðina, en prjónið sléttprjón eins og áður og gataumferðin sem nú þegar er byrjuð, heldur áfram að færast út að hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 23-25-25-25-25-25 cm, aukið út 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 124-134-148-158-168-178 nýjar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

ERMI:
Setjið til baka 41-45-47-53-57-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-7 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum = 46-50-52-60-64-64 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 15-16-14-13-11-10 cm, aukið út um 8-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 54-60-62-72-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 19-20-18-17-15-14 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Meadowsweet

Lucie Kotlanová, Czech Republic

Meadowsweet

Agnieszka, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Paulina wrote:

Dzień dobry :) chciałabym trochę pozmieniać kolory i zrobić rękawy w innym kolorze, ale nie wiem ile motków wełny potrzebuję na 1 rękaw? Proszę o pomoc :)

28.09.2023 - 01:20

DROPS Design answered:

Witaj Paulino, na 1 rękaw potrzebujesz 2-3 motki włóczki. Pozdrawiamy!

28.09.2023 - 08:00

country flag Mariella wrote:

Salve ho rifatto il lavoro più volte seguendo alla lettere le indicazioni, ma appena arrivo al 3° ferro dello sprone mi restano delle maglie in più. Cosa sbaglio? Grazie per la risposta M.

26.07.2023 - 23:17

DROPS Design answered:

Buonasera Mariella, può spiegarci meglio dove trova le maglie in più? Buon lavoro!

31.07.2023 - 19:41

country flag Nathalie Clergeau wrote:

Bonjour c'est encore moi. Je suis de nouveau bloquée. J'ai bien fait les augmentations, mis les 4 marqueurs et tricoté le rang suivant à l'endroit. Mais pour la suite je ne comprends pas comment je dois continuer. Refait on exactement comme indiqué sous le titre empiècement ou bien tricote t'on tout en jersey et à quel moment fait on le diagramme A1 et combien de fois? En dehors des augmentations de chaque côté des marqueurs doit on tricoter tout à l'endroit ? Merci

25.02.2022 - 13:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Clergeau, vous continuez à tricoter comme avant avec A.1 et augmentez pour le raglan tous les 2 tours. En même temps, quand A.1 est terminé en hauteur, commencez un nouveau motif de A.1 au-dessus du A.1 précédent (pour créer un nouveau V ajouré au-dessus du V précédent) et continuez en même temps les jours en diagonales du A.1 précédent. Tous les jetés se tricotent à l'endroit: ceux des augmentations du raglan et ceux du point ajouré. Bon tricot!

25.02.2022 - 14:14

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, j'ai bien fait les côtes et démarré l'empiècement. Toute fois après avoir fait le 1er rang et respecté le diagramme, le second rang tout à l'endroit avec augmentation d'une maille d chaque côté des marqueurs je bloque au troi rang. En effet quand j'arrive à la fin du diagramme au bout des 15 mailles je suis censée faire 1 jeté et 1 maille endroit or il me reste encore deux mailles après ? Je suis perdue. Merci pour votre aide.

20.02.2022 - 12:11

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, pour l'empiècement, vous devez faire les jetés des raglans tous les 2 tours seulement; après le 1er tour décrit vous avez augmenté 8 mailles au total (= 1 de chaque côté de chacun des 4 fils marqueurs), au tour suivant, tricotez toutes les mailles à l'endroit, au tour suivant, tricotez le tour 3 de A.1 et augmentez de chaque côté des fils marqueurs comme avant pour le raglan. Bon tricot!

21.02.2022 - 10:49

country flag Ulrike Hartmannschott wrote:

Hallo, ich würde diesen Pullover gern mit V ausschnitt stricken. könnten sie mir da weiterhelfen? Vielen Dank im voraus. Mit freundlichen Grüßen U. Hartmannschott

18.04.2021 - 18:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hartmannschott, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, auch telefonisch oder per E-Mail, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

19.04.2021 - 08:36

country flag Kathy wrote:

How do I keep to the diagram which is consistent at 15 stitches when there are increases in each round for the raglan sleeves?

03.08.2020 - 18:03

DROPS Design answered:

Dear Kathy, raglan increases are worked on every other round, not on every round. Happy knitting!

04.08.2020 - 09:25

country flag Bebby wrote:

I would like to use this lovely pattern with the raglan design but no lace. Could you help me? Thank you, B

06.07.2020 - 23:25

DROPS Design answered:

Dear Bebby, you might simply work following the pattern but just work the stitches in A.1 in stocking stitch instead of following the diagram. Happy knitting!

07.07.2020 - 10:07

country flag Michèle wrote:

J'aime bien le graphisme, pull de printemps pourquoi pas !!

11.01.2020 - 18:08

country flag Corinne wrote:

Ce pull fait très jeune. Le modèle est séduisant et semble facile. Il me plaît beaucoup !

30.12.2019 - 20:37