Carmen skrifaði:
Perdón, entendí mal el dibujo del marcador. Mil disculpas.
13.02.2020 - 09:40
Carmen skrifaði:
Buenos días. Creo que hay un error en A1, en la foto se ven 3 agujeros a cada lado y no 2 (raglán). Falta una vuelta con: 1 hebra entre dos puntos, 7 puntos, 1 hebra entre dos puntos. Con estas vueltas en A1 sí que salen las cuentas de los puntos aumentados. También hay un error en el canesú: ... 26-30-30-34-34-38 derechos y aumentar 0-0-0-8-8-6 puntos repartidos sobre 3 puntos (= delantero). Debería decir ....0-0-0-8-8-6 puntos repartidos sobre estos puntos (= delantero). Saludos
12.02.2020 - 08:08
Monique Debray skrifaði:
Bonjour, Je n'arrive pas à trouver sur votre site un tableau de mesures suivant les différentes tailles. Merci de m'indiquer où je peux le trouver. Merci d'avance.
07.02.2020 - 17:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Debray, il n'en existe pas car nos modèles remontent aux années 80, la mode évolue et de plus, les normes varient d'un pays à l'autre. Mesurez un vêtement que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celle du schéma, vous trouverez ainsi la taille idéale à suivre. plus d'infos ici. Bon tricot!
10.02.2020 - 07:32
Loredana skrifaði:
Buongiorno, sbaglio o era previsto anche ul cardigan di questo modello?
05.02.2020 - 08:32DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Purtroppo per il momento, non è prevista la pubblicazione del cardigan corrispondente. Buon lavoro!
06.02.2020 - 17:03
Annette skrifaði:
Hei Når blir oppskriften på denne tilgjengelig?
22.01.2020 - 12:42
Mila skrifaði:
Mi sarebbe piaciuto imparare a fare la linea di raglan di questo maglione
31.12.2019 - 00:07
Sharon MacPherson skrifaði:
Simple elegance in either a sweater or cardigan.
25.12.2019 - 12:07
Anna skrifaði:
J'aime beaucoup ce twin set
14.12.2019 - 00:01
Mint Tea Sweater#mintteasweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-19 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 16 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-92-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 12-12-16-16-16-20 lykkjur slétt og aukið út 0-2-0-4-4-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 (= hálft bakstykki), A.1 (= 3 lykkjur), 8 lykkjur slétt, A.1 yfir 3 lykkjur (= hægri ermi), 26-30-30-34-34-38 lykkjur slétt og aukið út 0-0-0-8-8-6 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), A.1 yfir 3 lykkjur, 8 lykkjur slétt, A.1 yfir 3 lykkjur (= vinstri ermi), 14-14-14-14-18-18 lykkjur slétt og aukið út 0-2-0-4-4-3 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 88-96-96-116-120-124 lykkjur. Prjónamerki í lykkjum í A.1 eiga að fylgja með í stykkinu til að einfaldara sé að endurtaka A.1 á hæðina. Í annarri hverri umferð eru auknar út alls 8 lykkjur í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1 endurtekið á hæðina, þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki merkja miðju á A.1, í hvert skipti sem endurtekið er á hæðina. Þegar A.1 hefur verið endurtekið alls 6-6-7-7-8-9 sinnum á hæðina eru 224-232-256-276-304-332 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur í hring þar til stykkið mælist 19-19-22-23-25-28 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 33-34-39-40-44-49 lykkjur slétt, setjið næstu 46-48-50-58-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 66-68-78-80-88-98 lykkjur slétt, setjið næstu 46-48-50-58-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi og endið með 33-34-39-40-44-49 lykkjur slétt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-148-168-172-188-208 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja í hvorri hlið á stykki (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 72-74-84-86-94-104 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5 sinnum = 164-168-188-192-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-22-21-22-22-21 cm, prjónið A.2 (= 4 lykkjur) yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 27-29-28-29-29-28 cm frá skiptingu – sjá AFFELLING! Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-48-50-58-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-64-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja undir ermi. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við prjónamerki. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-7-5-3-1½-1½ cm millibili alls 4-3-4-6-9-9 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-22-20-20-18-16 cm frá skiptingu, prjónið A.2 yfir allar lykkjurnar. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 29-29-27-27-25-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mintteasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.