DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Mountain Moss

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 210-20
DROPS Design: Mynstur db-117
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-500-500-500-600 g litur 20, regnskógur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (mynsturteikning A.3 til A.5 á við um stærð XL, XXL og XXXL).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 19.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 19. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 18. og 19. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-76-80-84-88-92 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Delight.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-8-8-12-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 76-80-88-92-100-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir stroff mitt að aftan, það á að mæla berustykkið frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu og aukið út þannig:
ÚTAUKNING 1: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) alls 19-20-22-23-25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 114-120-132-138-150-162 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 115-120-135-140-150-165 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L, XL, XXXL eru auknar út 1-3-2-3 lykkjur og í stærð M og XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-9-10 cm aukið út þannig:
ÚTAUKNING 2: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 23-24-27-28-30-33 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 161-168-189-196-210-231 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 160-170-190-198-210-234 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 1 lykkju, í stærð M, L, XL og XXXL er aukið út um 2-1-2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út).
Haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15-15-15-17 cm, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M og L:
Prjónið mynstur og aukið út þannig:
ÚTAUKNING 3: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 32-34-38 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 224-238-266 lykkjur í umferð.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið mynstur og aukið út þannig:
ÚTAUKNING 3: Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) alls 33-35-39 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 264-280-312 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 266-280-315 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð XL og XXXL eru auknar út 2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út).
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-21-24 cm, prjónið þannig:
ÚTAUKNING 4: Prjónið * 3-2-3 mynstureiningar A.5, prjónið 1 mynstureiningu A.4 *, prjónið *-* 9-13-11 sinnum, síðan endar umferðin mismunandi eftir stærðum eins og útskýrt er að neðan:
Stærð XL: Endið umferð með A.5 yfir síðustu 14 lykkjur (= 2 mynstureiningar).
Stærð XXL: Endið umferð með A.4 yfir síðustu 7 lykkjur (= 1 mynstureining).
Stærð XXXL: Endið umferð með 5 lykkjur slétt og prjónið síðustu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka eru 284-308-336 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 32-34-38-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-69-76-83-90-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 32-35-38-42-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 140-154-168-182-196-216 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-28-30-32-32 lykkjur jafnt yfir = 160-176-196-112-228-248 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-50-57-59-64-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-65-67-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi (= 3-4-4-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 7-8-11-11-13-16 sinnum = 40-42-43-45-46-48 lykkjur. Prjónið með sléttprjóni þar til ermin mælist 30-29-28-26-24-23 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-5-3-6-4 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 33-32-31-29-27-26 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.03.2021
FRAM-OG BAKSTYKKI: (leiðrétting, stóð A.4, en á að vera A.1): ÚTAUKNING 1: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) alls 19-20-22-23-25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 114-120-132-138-150-162 lykkjur í umferð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Ieva Lagzdina wrote:

Hei! Er det mulig til å kjøpe de 2 siste garnnøster hvis det er nødvendig 4 nøster til en prosjekt? Jeg vil gjærne kjøpe Drops Big Delight 2 nøster av farge som heter SOLOPGANG. Eg har 2 nøster allerede, men mangler bare to til. Denne fargen selges ikke meire noen annen sted. Mvh, IEVA

13.11.2023 - 19:40

DROPS Design answered:

Hej, DROPS Big Merino er desværre udgået, du kan prøve at skrive i DROPS Workshop på Facebook, her er det størst chance at få fat i 2 nøgler :)

15.11.2023 - 07:50

country flag Claudia wrote:

Das Originalgarn "Big Delight" ist nicht mehr verfügbar und ich finde es nicht in der Suche nach Alternativgarnen. Gibt es noch Informationen wie etwa die Lauflänge von Big Delight?

10.08.2023 - 00:19

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, hier finden Sie alle unsere Auslaufqualitäten, dort können Sie dan lesen, daß Big Delight ca 190 m / 100 g war - gerne können Sie unseren Garnumrechner um die Garnmenge in einigen Alternative für die gewünschte Größe kalkulieren lassen. Viel Spaß beim stricken!

10.08.2023 - 09:35

country flag COMELET Sylvie wrote:

Bonjour, pour feutrer un pull, quelle taille faut-il prendre ?? 1 ou 2 taille au dessus ??? Merci pour votre retour.

24.03.2022 - 21:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Comelet, le feutrage ne se passe pas forcément exactement de cette façon, tout va dépendre de votre échantillon, de votre machine, et donc de la différence avant/après. Retrouvez plus d'infos sur le feutrage ici - pensez à bien faire un échantillon mesuré avant et après feutrage (en largeur mais aussi en hauteur) pour recalculer votre modèle. Bon tricot!

25.03.2022 - 07:48

country flag Nina wrote:

Hei. Lurer på øking med mønster A 1 og A 2. Forstått øke hver 19 og 23 maske og hvordan. Men skal det økes hver omgang? Eller annenhver ? Håper på raskt svar

11.10.2021 - 16:27

country flag Lisbeth wrote:

Hei Skal strikke denne og lurer på om dette er en modell med litt kortere ermer. Jeg vil ha full lengde på ermene og spør slik at jeg får kjøpt nok garn.

12.04.2021 - 15:12

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth. Ut i fra bilde kan det se ut som om det er litt korte ermer, men sjekk målskissen og lengden og mål på deg selv. Da vil du finne den riktige lengden. mvh DROPS design

12.04.2021 - 15:16

country flag Ventu wrote:

Bonjour, Si je souhaite faire ce modèle en point mousse, puis-je utiliser le même nombre de mailles où dois-je apporter des modifications ?

16.10.2020 - 11:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ventu, si vous tricotez ce modèle au point mousse, il vous faudra modifier l'empiècement, si le nombre de mailles point mousse jersey en largeur est le même, le nombre de rangs sera différent et les explications devront être ajustées en conséquence (plus d'infos ici - Vous pourrez sinon retrouver tous nos modèles pour femme au point mousse ou avec du point mousse ici. Bon tricot!

16.10.2020 - 11:51

country flag Margrethe Jensen wrote:

Jeg har nu strikket den i str. M, men den er meget lille og strikkefastheden stemmer. Giver trøjen sig, når den bliver vasket?

19.07.2020 - 15:33

DROPS Design answered:

Hej Margrethe, Hvis du overholder strikkefastheden som passer til opskriften, så får du målene som står nederst i måleskitsen i den aktuelle størrelse. Nej den bliver nok ikke større... men man kan jo prøve at trække lidt i den når den er våd... Held og lykke!

28.07.2020 - 12:26

country flag Hanne Elena Rørbech wrote:

Hej med jer. Kan jeg få svar på den kommentar jeg har skrevet for et par dage siden øverst oppe i tråden ?hilsen Hanne Elena.

12.05.2020 - 11:31

DROPS Design answered:

Hej Hanne, vi skriver: Næste omgang strikkes således: 34m (= halv bagstykke), sæt 50m på en tråd, slå 8 nye masker op (= i siden under ærmet), strik 69m (= forstykke), sæt 50m på en tråd, slå 8 nye masker op (= i siden under ærmet), strik 35 masker (= halv bagstykke). (34+8+69+8+35=154m). Stemmer det ikke, eller misforstår vi dit spørgsmål?

15.05.2020 - 08:50

country flag Hanne Elena Rørbech wrote:

Fejl i forklaringen : Efter man har sat 50 masker af til hvert ærme, er man da nødt til at strikke de 2*8 masker med man har slået op for at få nok masker til kroppen. f. eks . 69 +69 + 8+8=154 masker i størrelse medium. Hilsen Hanne Elena

08.05.2020 - 12:10

country flag Frédérique PASCAL DE RAYKEER wrote:

Bonjour, je voudrais des explications sur les augmentations 4: comment se fait-il que l'on n'arrive qu'à 284 mailles après toutes ces augmentations? J'ai compté que l'on augmentait de ( 6 + 2) x 9. Cela fait donc beaucoup plus. Merci!

03.04.2020 - 11:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pascal de Raykeer, vous avez 266 m après A.3 et tricotez (3xA.5, 1xA.4) x 9 + (2xA.5) soit: (3x7 + 7)x9 + (2x7) = 266 m. Quand A.4 et A.5 ont été tricotés 1 fois en hauteur, vous avez augmenté 2 m dans chaque A.4, autrement dit 9 motifs de A.4 x 2 augmentations = 18 + 266= 284 m. Bon tricot!

03.04.2020 - 11:45