Betina Kauer skrifaði:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:50
Maria Carr skrifaði:
Beautiful delicate pattern
14.12.2019 - 21:02
Marleen skrifaði:
Lieflijk patroontje. Heerlijk voor koele zomerdagen. Ook in de zomer draag ik lange mouwen, want ik ben een koukleum.
11.12.2019 - 21:54
Ursula skrifaði:
Sehr hübsch, den möchte ich gerne stricken :)
11.12.2019 - 18:16
Elena skrifaði:
Très joli motif
11.12.2019 - 01:33
Spinning Ribbons#spinningribbonssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ÚTAUKNING-1 (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Við fyrstu útaukningu, aukið út á eftir fyrstu brugðnu lykkjunni í hverri brugðinni einingu. Í annarri útaukningu, aukið út á undan síðustu brugðnu lykkjunni í hverri brugðinni einingu. Í þriðju útaukningu, aukið út á eftir fyrstu brugðnu lykkjunni í hverri brugðinni einingu o.s.frv. ÚTAUKNING-2: Aukið út í hverri sléttri einingu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þær 4 lykkjur sem eftir eru slétt = 6 lykkjur. ÚRTAKA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hin prjónamerkin. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Síðan eru ermar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki áður en berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-154-176-198 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroffprjón (= 5 lykkjur brugðið, 6 lykkjur slétt) hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið mynstur þannig: * 5 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 6 lykkjur *, prjónið frá *-* hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-29-28-31 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í A.1. Næsta umferð (þ.e.a.s. síðasta umferð í A.1) er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= 5 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt), prjónið næstu 59-70-81-92 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 7 lykkjur (= 1 lykkja slétt, 5 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt), prjónið næstu 59-70-81-92 lykkjur (= bakstykki), fellið af síðustu lykkjuna (= 1 lykkja slétt). Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 45-45-54-54 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroffprjón (= 4 lykkjur brugðið, 5 lykkjur slétt) hringinn í 3 cm. Prjónið nú A.2 yfir 5 sléttar lykkjur og haldið áfram með brugðið yfir brugðnar lykkjur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað og aukið út þannig: Þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur í brugðnu einingunni brugðið saman = 40-40-48-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12 cm, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 síðustu lykkjur í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 35-35-42-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-18-17-16 cm, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 40-40-48-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-23-22 cm, aukið allar 3 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið = 45-45-54-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-28-27 cm – stillið af að það sé heil mynstureining A.2 sem hefur verið prjónuð til loka á hæðina, aukið út allar 5 lykkjur slétt til 6 lykkjur slétt – sjá ÚTAUKNING-2 = 50-50-60-60 lykkjur. Prjónið síðan A.1 yfir hverja einingu A.2. Þegar stykkið mælist 35-35-33-33 cm, aukið út allar 4 lykkjur brugðið til 5 lykkjur brugðið = 55-55-66-66 lykkjur. Haldið áfram hringinn með A.1 og 5 lykkjur brugðið í hverri brugðinni einingu þar til ermin mælist 39-41-38-38 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í A.1. Næsta umferð (þ.e.a.s. síðasta umferð í A.1) er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur (= 5 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt), prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, fellið síðan af síðustu lykkjuna (= 1 lykkja slétt) = 48-48-59-59 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg í hvorri hlið = 214-236-280-302 lykkjur. Í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma eru nú 10 lykkjur slétt. Byrjið umferð eftir 10 lykkjur slétt, þ.e.a.s. eftir 5 lykkjur slétt eftir skiptinguna á milli hægri ermi og bakstykkis. Prjónið mynstur A.3 yfir A.1, A.4 yfir 5 lykkjur brugðið og A.5 yfir 10 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina (hafa verið prjónaðar 8 umferðir á berustykki) hefur fækkað um 4 lykkjur í hverri einingu A.5 (= 16 lykkjur færri) = 198-220-264-286 lykkjur. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS og S/M: Haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður yfir 6 lykkjur í A.5 er prjónað A.3 (passið uppá að byrjað sé í sömu umferð í öllum mynstureiningum í umferð). Þegar mynstureining hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 72-80 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið síðan áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 52-54 cm frá öxl og niður. Stærð L/XL, XXL: Endurtakið fyrstu 8 umferðir í A.3 og A.4 og yfir A.5 er prjónað A.3 (passið uppá að byrjað sé í sömu umferð í öllum mynstureiningum í umferð). Þegar 8 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar alls 2-2 sinnum á hæðina (þ.e.a.s. prjónaðar hafa verið alls 16 umferðir í berustykki), prjónið þær umferðir sem eftir eru í mynsturteikningu. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 96-104 lykkjur í umferð. Setjið nú eitt prjónamerki mitt á milli 2 lykkja slétt mitt ofan á öxl í hvorri hlið. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og hvoru megin við prjónamerki á hvorri öxl er fækkað um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA = 88-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 57-60 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spinningribbonssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.