New Beginnings Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með stuttum ermum, hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-37 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 231 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan t.d. 10 lykkjur (= 221) og deilið þeim (= 221) lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægra framstykki í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 8½-8-10-9-8-7 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykki eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan upp að handveg. Það eru prjónaðir 2 kantar á ermum á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, sem settir eru inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 49-53-57-63-69-75 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 49-53-57-63-69-75 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið. Prjónið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-96-104-116-128-140 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið framstykki og bakstykki á sama hringprjón 4 = 186-202-218-242-266-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 174-190-206-230-254-278 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 186-202-218-242-266-290 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 34 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum. Fellið nú af fyrir handveg, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 46-49-53-58-64-69 lykkjurnar (= hægra framstykki), fellið af næstu 6-8-8-10-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið yfir næstu 82-88-96-106-118-128 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 6-8-8-10-10-12 lykkjur fyrir handveg og prjónið yfir síðustu 46-49-53-58-64-69 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Fitjið upp 60-66-70-78-86-90 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-4-4-5-5-6 lykkjurnar, prjónið 54-58-62-68-76-78 lykkjur sléttprjón og fellið af þær 3-4-4-5-5-6 lykkjur sem eftir eru. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið kanta á ermum á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 282-302-326-358-398-422 lykkjur í umferð (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið frá röngu og prjónið 3-3-3-3-5-5 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og fækkið jafnframt um 1-1-5-7-7-1 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu – sjá ÚRTAKA-2 = 281-301-321-351-391-421 lykkjur. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= 1 sinni á breidd) – ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, prjónið mynsturteikningu A.2 þar til 16 lykkjur eru eftir (= 25-27-29-32-36-39 mynstureiningar með 10 lykkjum). Prjónið A.3 yfir næstu 11 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 4-4-6-6-10-10 umferðir sléttprjón með kantlykkjum að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 50-50-50-50-60-60 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu = 231-251-271-301-331-361 lykkjur. Prjónið áfram með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= 1 sinni á breidd), prjónið A.2 þar til 16 lykkjur eru eftir (= 20-22-24-27-30-33 mynstureiningar með 10 lykkjum). Prjónið A.3 yfir næstu 11 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki í stykkið – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón með kantlykkjum að framan eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan mismunandi eftir stærðum: STÆRÐ S og M: Þegar stykkið mælist 1-1 cm frá prjónamerki, fækkið um 44-48 lykkjur jafnt yfir = 187-203 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-4 cm frá prjónamerki, fækkið um 44-48 lykkjur jafnt yfir = 143-155 lykkjur. Fylgið síðan útskýringu undir ALLAR STÆRÐIR! STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 1-1-1-1 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 234-254-278-303 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-4-4-5 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 197-207-225-245 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5-7-7-9 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 160-160-172-187 lykkjur. Fylgið síðan útskýringu undir ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR: = 143-155-160-160-172-187 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá þar sem fram- og bakstykki og kantar á ermum er sett saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 25-33-34-30-36-47 lykkjur jafnt yfir = 118-122-126-130-136-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Lucille Pineault wrote:
J’aimerais faire ce chandail mais ma laine donne comme échantillon 26 à 32 mailles Que dois-je faire.? Merci
09.06.2023 - 16:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pineault, il vous faudra alors recalculer entièrement les explications sur la base de votre échantillon (à la fois en largeur et en hauteur) et des mesures souhaitées (cf schéma). Vous pouvez aussi vous inspirer d'un autre modèle de tension similaire à la vôtre. Bon tricot!
09.06.2023 - 16:37Erzsebet wrote:
Oda teszi ez a darab a hangsúlyt ahová kell. Kiváló!
10.02.2021 - 11:45