DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6622.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

New Beginnings

Prjónaður, aðsniðinn toppur úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með klaufum í hliðum, stuttum ermum og hringlaga berustykki með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-38
DROPS Design: Mynstur cm-121
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-450-500 g litur 28, púður

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6622.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA-1 (á við hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 316 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 52,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 52. og 53. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Síðan eru 2 kantar á ermum prjónaðir í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, sem síðan er sett á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna til loka.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 88-96-104-116-128-140 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið bakstykki:

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-96-104-116-128-140 nýjar lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið framstykki og bakstykki á sama hringprjón 4 = 176-192-208-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 164-180-196-220-244-268 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 22 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= lykkjur fleiri). Aukið út svona með cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 176-192-208-232-256-280 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum, fellið af 6-8-8-10-10-12 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg, þ.e.a.s. fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin = 82-88-96-106-118-128 lykkjur í hvoru stykki. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum.

KANTUR Á ERMI:
Fitjið upp 60-66-70-78-86-90 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-4-4-5-5-6 lykkjur, prjónið 54-58-62-68-76-78 lykkjur sléttprjón og fellið af þær lykkjur sem eftir eru 3-4-4-5-5-6 lykkjur. Klippið frá.
Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið kanta á ermum á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru fellda af fyrir handveg = 272-292-316-348-388-412 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 2-2-2-2-4-4 umferðir sléttprjón og fækkið lykkjum jafnframt um 2-2-6-8-8-2 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð – sjá ÚRTAKA-2 = 270-290-310-340-380-410 lykkjur.
Prjónið A.1 hringinn (= 27-29-31-34-38-41 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 4-4-6-6-10-10 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 50-50-50-50-60-60 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 220-240-260-290-320-350 lykkjur.
Prjónið A.1 hringinn (= 22-24-26-29-32-35 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mismunandi stærðum að neðan – berustykki er nú mælt frá þessu prjónamerki:

S og M:
Þegar stykkið mælist 1-1 cm frá prjónamerki, fækkið um 44-48 lykkjur jafnt yfir = 176-192 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 3-4 cm frá prjónamerki, fækkið um 44-48 lykkjur jafnt yfir = 132-144 lykkjur. Fylgið síðan útskýringu undir ALLAR STÆRÐIR!

L, XL, XXL og XXXL:
Þegar stykkið mælist 1-1-1-1 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 223-243-267-292 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 3-4-4-5 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 186-196-214-234 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 5-7-7-9 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 149-149-161-176 lykkjur. Fylgið síðan útskýringu undir ALLAR STÆRÐIR!

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram hringinn með sléttprjóni þar til stykkið mælist 4-6-7-9-9-11 cm frá prjónamerki – þ.e.a.s. 18-20-22-24-26-28 cm frá þar sem fram- og bakstykki og kantar á ermum er sett saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-32-33-29-35-46 lykkjur jafnt yfir = 108-112-116-120-126-130 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = byrjun á umferð færist til um 1 lykkju til hægri
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Marielle wrote:

Je viens de comprendre le patron,

08.09.2022 - 03:51

country flag Marielle wrote:

Je termine les diminutions à 149 mailles quand je continue en tricotant et diminue encore 24 mailles. Donc 125 mailles mais vous parlez de 108 mailles, il y a une différence de 17 mailles. Expliquez-moi

08.09.2022 - 03:45

DROPS Design answered:

Bonjour Marielle, dans la partie TOUTES LES TAILLES, 24 est le chiffre a diminuer dans la taille S. Dans la taille L il faut diminuer 33 mailles: 149-33=116. Bon tricot!

08.09.2022 - 09:06

country flag Marielle wrote:

Depuis le rang de montage , est-ce au tout début. Dos et devant

04.05.2022 - 06:16

DROPS Design answered:

Bonjour Marielle, tout à fait, le rang de montage correspond au tout début de l'ouvrage, lorsque vous avez monté vos mailles. Bon tricot!

04.05.2022 - 08:01

country flag Vivi Busch-Christensen wrote:

Hej Kan den strikkes med lange ærmer? Kan den strikkes med kun det øverste hulmønster på bul og samtidig begge på det korte ærme? Vh Vivi Busch-Christensen

30.04.2022 - 06:35

DROPS Design answered:

Hei Vivi. Du kan strikke denne med lange ermer, men må du selv regne ut hvordan du vil felle under ermet og hvor langt erme du ønsker. Om du ønsker mønster, må du huske å ha riktig maskeantall slik at mønstret går opp. mvh DROPS Design

02.05.2022 - 13:13

country flag Busra wrote:

Hi! Thank you for the pattern! How do I skip a stitch? Just by slipping it from the left needle to the right? My question is about the black square. Thank you!

03.04.2021 - 15:31

DROPS Design answered:

Dear Busra, these black squares in the diagrams are usualy on the place of stitches that were decreased (without a corresponding increase) in the pattern, and in the row you have one (or more) stitch less than in the row/ round before. Happy Knitting!

04.04.2021 - 21:32

country flag Sonja Sarauw wrote:

Jeg syntes ikke det fremgår af opskriften hvor omgangen begynder når mønstret begynder. Kan jeg få hjælp?

17.09.2020 - 19:32

country flag Johanna wrote:

Ik heb inmiddels ontdekt, dat ik zelf ben verder gegaan met de beschrijving van maat XXL i.p.v. maat L. De beschrijving klopt wel degelijk!

13.09.2020 - 19:17

DROPS Design answered:

Dag Johanna,

Fijn dat je het hebt ontdekt. Bedankt voor de terugkoppeling en veel breiplezier!

15.09.2020 - 13:15

country flag Johanna wrote:

Ik ben bezig met dit patroon in maat L. Ik werk aan de pas en heb het A.1 patroon voor de tweede keer in hoogte gebreid (=260 st op de naald). Hierna ga ik volgens beschrijving voor maat L verder, waarbij ik na 1 cm. 53 st. moet minderen. Hierna zou ik 267 st. moeten hebben, maar aangezien ik "maar" 260 st. heb vóór de mindering denk ik dat hier een fout in de beschrijving staat? Hoe moet ik verder?

13.09.2020 - 19:09

country flag Brunhilde wrote:

Hallo! Ich habe das Modell nun fertig gestrickt und es gefällt mir sehr gut. Mich stört aber, dass sich der untere Rand hochrollt. Wie kann ich das künftig verhindern? Oder was kann ich mit dem fertig gestrickten Teil tun?

19.07.2020 - 19:54

DROPS Design answered:

Liebe Brunhilde, Sie können den Top mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß!

20.07.2020 - 10:04

country flag Margaret Sedgwick wrote:

Hello, can't cope with circular needles, would love to knit this on two needles, is this possible? Thank you.

11.06.2020 - 14:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sedgwick, you will find here how to adapt a pattern from circular needle to straight needles - should you need further assistance you are welcome to contact your DROPS store. Happy knitting!

11.06.2020 - 16:00