DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Melody yarn
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1032.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4128.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Spring Fuzz Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 213-27

#springfuzzjacket

DROPS Design: Mynstur ml-049
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-250-250-300-300 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, Eik NR 501: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1032.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4128.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR-1 (á við um fyrri kanti í hálsi sem er prjónaður, þ.e.a.s. hægri kantur í hálsi):
Byrjið frá réttu og prjónið þannig: * Prjónið fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið fram og til baka eins og áður yfir allar 7 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
STUTTAR UMFERÐIR-2 (á við um seinni kant í hálsmáli sem er prjónaður, þ.e.a.s. vinstri kantur í hálsi):
Byrjið frá röngu og prjónið þannig: * prjónið fram og til baka yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið fram og til baka yfir allar 7 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið síðan 1 umferð til baka frá röngu yfir allar 7 lykkjur.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman.

LEIÐBEININGAR:
Til að kantar að framan verði fallegir og jafnir er mikilvægt að herða aðeins á þræði þegar prjónað er yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið.

V-HÁLSMÁL:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 7 kantlykkjur að framan + 1 lykkju slétt (= 8 lykkjur). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 8 fyrstu lykkjur í byrjun á umferð og á undan 8 lykkjum í lok umferðar.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við þær lykkjur sem eftir eru.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á fram- og bakstykki. Fellið síðan af fyrir 3 næstu með ca 8-8½-8½-8½-8½-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsmáli. Þeir eru settir inn á hringprjón þegar fitjaðar hafa verið upp lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hálsi eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka).
Prjónið síðan allt stykkið ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, jafnframt er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Hægri kantur í hálsmáli:
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 6 með Melody og prjónið A.1 (= 7 lykkjur) fram og til baka (1. umferð = rétta). Þegar kantur í hálsi mælist ca 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið áfram með A.1 yfir allar lykkjur þar til kantur í hálsi mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm yst á kanti í hálsmáli (þ.e.a.s. á lengstu hliðinni) – stillið af að endað sé eftir 1 umferð frá röngu. Klippið frá og leggið kantinn til hliðar.
Vinstri kantur í hálsmáli:
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 6 með Melody og prjónið A.2 (= 7 lykkjur) fram og til baka, þegar kantur í hálsi mælist ca 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið áfram með A.2 yfir allar lykkjur þar til kanturinn mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm yst í kanti í hálsi (þ.e.a.s. á lengstu hliðinni) – stillið af að endað sé eftir 1 umferð frá röngu.
Prjónið nú áfram þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Ekki klippa þráðinn frá, heldur prjónið vinstri kant í hálsmáli (frá réttu), fitjið upp 40-42-43-44-45-46 lykkjur á sama hringprjón strax eftir kant í hálsi og prjónið síðan eins og áður frá réttu yfir 7 lykkjur á hægri kanti í hálsmáli = 54-56-57-58-59-60 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður).
UMFERÐ 3: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður) þar sem aukið er út um 4-8-10-10-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 58-64-67-68-70-73 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður).
Setjið eitt prjónamerki innan við 7. lykkju frá kanti í A.1. Stykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Setjið eitt prjónamerki 10 lykkjum inn frá hvorri hlið (= í skiptinguna á milli erma og framstykkja), setjið næstu 2 prjónamerki 10 lykkjur inn frá fyrsta prjónamerki í hvorri hlið (= í skiptinguna á milli erma og bakstykkis. Nú eru 18-24-27-28-30-33 lykkjur fyrir bakstykki á milli 2 síðustu prjónamerkja sem sett voru í stykkið.
Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – sjá LEIÐBEININGAR. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir V-HÁLSMÁL og LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-14-15-16-18-20 sinnum og aukið út fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 1-3-2-3-3-1 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 5-4-5-5-6-8 sinnum og eftir það í 6. hverri umferð 1 sinni í öllum stærðum. Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu og v-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 184-192-203-214-234-253 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Skipting á milli fram- og bakstykkis og erma færist til þannig að 2-1-1-1-1-1 lykkjur hvoru megin við ermar koma á framstykki og bakstykki. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 33-33-34-36-39-41 lykkjur eins og áður, setjið næstu 34-36-38-40-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 50-54-59-62-68-75 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 34-36-38-40-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 33-33-34-36-39-41 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 132-136-143-154-166-177 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1/A.2 yfir 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 24-26-26-26-26-25 cm frá skiptingu, aukið út 19-19-20-23-25-26 lykkjur jafnt yfir = 151-155-163-177-191-203 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: A.2 eins og áður yfir fyrstu 7 lykkjur, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, A.1 yfir síðustu 7 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 34-36-38-40-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-44-46-50-54-58 lykkjur.
Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð XS, S og M:
Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 43-43-42 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

Stærð L, XL og XXL:
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 10-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar ermin mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 12 cm = 46-50-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 40-39-36 cm. Haldið áfram eins og útskýrt er að neðan.

Allar stærðir:
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32-32-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 7 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist 50-50-49-47-46-43 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kanti í hálsmáli og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
BERUSTYKKI:..Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-14-15-16-18-20 sinnum og aukið út fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 1-3-2-3-3-1 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 5-4-5-5-6-8 sinnum og eftir það í 6. hverri umferð 1 sinni í öllum stærðum.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Diagram for DROPS 213-27

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Esther Haller skrifaði:

Raglan Aufnehmen Anleitung: In jeder zweiten Reihe 14x arbeiten Heisst das: In jeder Hinreihe, oder in jeder zweiten Hinreihe? Also in jeder 4. Reihe oder in jeder 2. Reihe? Vielen Dank für eine Erklärung.

15.06.2025 - 12:00

country flag Kristin Vågene skrifaði:

Det er feil i oppskriftene til Spring Fuzz Jacket. Har dere en revidert utgave?

22.05.2025 - 16:43

DROPS Design svaraði:

Hej Kristin, ja bærestykket blev opdateret online den 7/3-2022 :)

23.05.2025 - 07:20

country flag Molly Dalessandro skrifaði:

I have done the v-neck and raglan increases and am now at the step where I continue in stockinette stitch until piece measures 20 cm from the marker. My question is this: I used stitch markers instead of marker threads. Should I measure 20 cm from where I began increases or 20 cm from end of raglan/v-neck increases (when 184 stitches on row)?

18.05.2025 - 13:40

DROPS Design svaraði:

Dear Molly, you need to measure the piece from the marker inserted before starting the raglan increases (in the instructions, the marker inserted right before the YOKE section. Happy knitting!

18.05.2025 - 16:45

country flag Karin Kossen skrifaði:

Hai, ik kom na t meerderen van de pas een tekort aan steken. Hoe ik t ook doe ik blijf tekort komen. Of lees ik t verkeerd? 14x raglan, 3, 4 ,1 vhals

29.04.2025 - 23:57

DROPS Design svaraði:

Dag Karin,

Voor de hals meerder je iedere 2e naald 3 keer, dan iedere 4e naald 4 keer en dan iedere 6e naald 1 keer in alle maten. Voor de raglan inderdaad 14 keer. Heb je na het meerderen minder steken op de naald dan aangegeven in het patroon?

04.05.2025 - 10:08

country flag Beth Toomey skrifaði:

I’m currently knitting the yoke. I’m slightly confused how the first parts of A1 and A2 connect to the overall shape of the piece since they jutt out from the main yoke and seemingly the neckline

07.04.2025 - 15:37

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Toomey, in this video we show how to work these both diagrams A.1 andA.2 and then how to work the short rows and finally how to cast on the new stitches for neck in between, this might help you. Happy knitting!

08.04.2025 - 08:52

country flag Christiane Zeidler skrifaði:

Das mit der Halsblende peil ich nicht. Wird die nur bis zur Schulter angenäht? Auf dem Diagramm schaut es so aus als ob sie kpl. über den gesamten Nacken läuft. Aber dafür reichen die angegebenen 12cm nicht

25.03.2025 - 14:46

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Zeidler, könnte Ihnen vielleicht dieses Video helfen? Wir zeigen, wir man die Diagramme für die Halsblende strickt, und wie die Maschen dazwischen angeschlagen werden. Viel Spaß beim Stricken!

25.03.2025 - 15:50

country flag Anna Langkilde skrifaði:

Der mangler en forklaring på:Overgangen mellem ryg & forstykke og ærmer bliver forskudt så 2-1-1-1-1-1 masker i hver side af ærmerne kommer på forstykket og bagstykket. Næste pind fra vrangen strikkes således: Jeg er i tvivl - skal man først strikke en gang ret og så lave den nævnte udtagning når man strikker retur med vrang? Og så kan jeg ikke gennemskue hvordan det med 1 forskudt skal forståes. Jeg kan ikke finde nogen forklaringer

10.11.2024 - 22:11

DROPS Design svaraði:

Hej Anna, nej det er bare en forklaring. Du skal bare følge opskriften og strikke næste pind fra vrangen som beskrevet :)

19.11.2024 - 10:16

country flag Jorunn skrifaði:

V-hals: jeg forstår ikke "øk 1 maske på innsiden av 7 stolpemasker", hvor skal jeg plassere/øke den ene masken? Vil det ikke bare bli flere og flere stolpemasker? Min første strikkejakke:)

28.09.2024 - 21:02

DROPS Design svaraði:

Hei Jorunn, De økte maskene er etter den første stolpen og før den siste stolpen. Disse nye maskene er strikket inn i mønsteret fortløpende, slik at stolpene er alltid 7 masker i bredden. God fornøyelse!

30.09.2024 - 06:48

country flag Torhill skrifaði:

Halskanten som skal sys sammen i nakken og festes til halskanten er altfor kort dersom den skal festes rundt hele kanten. Hvordan løses dette? Ser den skal strekkes men ikke mulig å strekke den så mye.

30.08.2024 - 22:52

DROPS Design svaraði:

Hei Torhild. Man skal greie å strekke den slik at den passer, om man ikke har strikket for stramt. Men du kan da evnt. strikke halskanten lengre om du ønsker det (plukk opp masker ved oppleggskanten på halskanten og strikk til ønsket lengde). Bare husk at den skal stramme litt, slik at man får en "bueform" mot halsen / legger seg penere mot halsen. mvh DROPS Design

02.09.2024 - 11:35

country flag DANGUY DES DESERTS skrifaði:

Bonjour tout le monde! S\'il vous plaît, aidez-moi\r\nje désire faire le modèle \"Spring Fuzz jacket\", taille XL. Mais ma laine est différente de celle du modèle. La mienne est la drops air, et celle du modèle est la drops Mélody, et je ne comprends rien à la conversion des mailles...la Drops Air se tricote en 5\r\nMerci metci merci à la personne qui me répondra!!!\r\nFrançoise D

05.12.2023 - 12:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Françoise D, en fait, Air appartient au groupe de fils C alors que Melody appartient au groupe de fils D, votre échantillon sera alors complètement différent, il vaudrait mieux choisir un modèle similaire du groupe de fils C pour vous éviter d'avoir à tout recalculer. Retrouvez ici tous nos gilets et vestes que vous pouvez tricoter en Air, et là, le convertisseur fonctionnera. Bon tricot!

05.12.2023 - 16:06