Spring Fuzz Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR-1 (á við um fyrri kanti í hálsi sem er prjónaður, þ.e.a.s. hægri kantur í hálsi): Byrjið frá réttu og prjónið þannig: * Prjónið fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið fram og til baka eins og áður yfir allar 7 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. STUTTAR UMFERÐIR-2 (á við um seinni kant í hálsmáli sem er prjónaður, þ.e.a.s. vinstri kantur í hálsi): Byrjið frá röngu og prjónið þannig: * prjónið fram og til baka yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið fram og til baka yfir allar 7 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið síðan 1 umferð til baka frá röngu yfir allar 7 lykkjur. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR: Til að kantar að framan verði fallegir og jafnir er mikilvægt að herða aðeins á þræði þegar prjónað er yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið. V-HÁLSMÁL: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 7 kantlykkjur að framan + 1 lykkju slétt (= 8 lykkjur). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 8 fyrstu lykkjur í byrjun á umferð og á undan 8 lykkjum í lok umferðar. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við þær lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á fram- og bakstykki. Fellið síðan af fyrir 3 næstu með ca 8-8½-8½-8½-8½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsmáli. Þeir eru settir inn á hringprjón þegar fitjaðar hafa verið upp lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hálsi eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka). Prjónið síðan allt stykkið ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, jafnframt er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Hægri kantur í hálsmáli: Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 6 með Melody og prjónið A.1 (= 7 lykkjur) fram og til baka (1. umferð = rétta). Þegar kantur í hálsi mælist ca 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið áfram með A.1 yfir allar lykkjur þar til kantur í hálsi mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm yst á kanti í hálsmáli (þ.e.a.s. á lengstu hliðinni) – stillið af að endað sé eftir 1 umferð frá röngu. Klippið frá og leggið kantinn til hliðar. Vinstri kantur í hálsmáli: Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 6 með Melody og prjónið A.2 (= 7 lykkjur) fram og til baka, þegar kantur í hálsi mælist ca 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið áfram með A.2 yfir allar lykkjur þar til kanturinn mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm yst í kanti í hálsi (þ.e.a.s. á lengstu hliðinni) – stillið af að endað sé eftir 1 umferð frá röngu. Prjónið nú áfram þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Ekki klippa þráðinn frá, heldur prjónið vinstri kant í hálsmáli (frá réttu), fitjið upp 40-42-43-44-45-46 lykkjur á sama hringprjón strax eftir kant í hálsi og prjónið síðan eins og áður frá réttu yfir 7 lykkjur á hægri kanti í hálsmáli = 54-56-57-58-59-60 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). UMFERÐ 3: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður) þar sem aukið er út um 4-8-10-10-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 58-64-67-68-70-73 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Setjið eitt prjónamerki innan við 7. lykkju frá kanti í A.1. Stykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið eitt prjónamerki 10 lykkjum inn frá hvorri hlið (= í skiptinguna á milli erma og framstykkja), setjið næstu 2 prjónamerki 10 lykkjur inn frá fyrsta prjónamerki í hvorri hlið (= í skiptinguna á milli erma og bakstykkis. Nú eru 18-24-27-28-30-33 lykkjur fyrir bakstykki á milli 2 síðustu prjónamerkja sem sett voru í stykkið. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – sjá LEIÐBEININGAR. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir V-HÁLSMÁL og LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-14-15-16-18-20 sinnum og aukið út fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 1-3-2-3-3-1 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 5-4-5-5-6-8 sinnum og eftir það í 6. hverri umferð 1 sinni í öllum stærðum. Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu og v-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 184-192-203-214-234-253 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Skipting á milli fram- og bakstykkis og erma færist til þannig að 2-1-1-1-1-1 lykkjur hvoru megin við ermar koma á framstykki og bakstykki. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 33-33-34-36-39-41 lykkjur eins og áður, setjið næstu 34-36-38-40-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 50-54-59-62-68-75 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 34-36-38-40-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 33-33-34-36-39-41 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-136-143-154-166-177 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1/A.2 yfir 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 24-26-26-26-26-25 cm frá skiptingu, aukið út 19-19-20-23-25-26 lykkjur jafnt yfir = 151-155-163-177-191-203 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: A.2 eins og áður yfir fyrstu 7 lykkjur, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, A.1 yfir síðustu 7 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 34-36-38-40-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 42-44-46-50-54-58 lykkjur. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS, S og M: Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 43-43-42 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Stærð L, XL og XXL: Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 10-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar ermin mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 12 cm = 46-50-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 40-39-36 cm. Haldið áfram eins og útskýrt er að neðan. Allar stærðir: Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32-32-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist 50-50-49-47-46-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kanti í hálsmáli og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Hanny wrote:
De overgangen tussen het lijf en de mouwen worden verplaatst, zodat de 2-1-1-1-1-1 steken aan elke kant van beide mouwen nu op de voor- en achterpanden gebreid worden. Ik begrijp niet wat hier mee wordt bedoeld. Mag ik a.u.b een nadere uitleg. Hartelijk dank!
15.02.2021 - 19:41DROPS Design answered:
Dag Hanny,
Je verplaatst de markeerdraden worden 2-1-1-1-1-1 steken richting de mouw verplaatst, zodat er 2-1-1-1-1-1 steek naar het pand gaat aan beide kanten en 2-1-1-1-1-1 steek van de mouw af aan beide kanten van de mouw.
16.02.2021 - 14:24Annie wrote:
Je ne comprends pas l'explication du début pour l'empiècement, il y est fait référence à une astuce tricot, pouvez-vous m'indiquer où je peux trouver cette astuce tricot?
04.02.2021 - 11:25DROPS Design answered:
Bonjour Annie, vous trouverez cette ASTUCE TRICOT listée sous les TECHNIQUES EMPLOYÉES, après les explications du point fantaisie, des rangs raccourcis et des augmentations/diminutions, et juste au-dessus du début des explications elles-mêmes. bon tricot!
04.02.2021 - 13:09Oliva wrote:
Sto ultimando il modello e mi sono purtroppo resa conto che le indicazioni per lo sprone sono errate. Ho sperato di sbagliare io ma ora finito è ovvio che la misura indicata di 14 per lato non riesce in alcun modo a congiungersi dietro il collo e completare così anche la parte dietro. Arriva tendendola un pò alle spalle.Sbaglio io qualcosa? credo che rimedierò con una striscia di sprone da congiungere ai due pezzi.per il resto sempre tutto chiaro.Grazie e a presto
01.12.2020 - 15:33DROPS Design answered:
Buongiorno Olga, probabilmente è dovuto a un problema di tensione, comunque inoltreremo la sua segnalazione al settore design. Buon lavoro!
02.12.2020 - 09:13Marion wrote:
Goedemorgen, 2 oktober heb ik een vraag gesteld maar nog geen antwoord gekregen. Ik zou echt heel graag deze vest breien zonder rondbreinaald maar met gewone breinaalden. Kunt u me vertellen hoe ik dat aanpak? Want nu wordt het van boven naar beneden gebreid. Dus ik weet niet hoe ik het moet doen dan. Ik hoop echt antwoord te krijgen. Super bedankt alvast.
10.10.2020 - 11:19Marion wrote:
Goedemiddag, ik wil graag deze vest met naalden breien ipv rondbreinaald. Kan dat? Hoe moet ik dat dan doen als het kan? Hopelijk heeft u voor mij een antwoord. Alvast bedankt. Groetjes,Marion
02.10.2020 - 15:51DROPS Design answered:
Dag Marion,
We hebben een instructie op de website staan, waarin uitgelegd is hoe je een patroon aan kunt passen om met rechte naalden te breien. Dit patroon is wel wat lastiger ivm de raglan, maar kijk maar even of je er wat aan hebt. Hier vind je de instructie.
10.10.2020 - 11:26Kristina wrote:
Jag har samma problem som Annette- halskanten är för kort för att nå till mitt bak i nacken. Kan bero på stickfastheten, svårt att få den rätt när man enligt instruktionen ska sticka kanten tightare än resten. Jag kommer att få sticka på en bit till på halskragen eller sy fast den med ”rynk” i bakstycket. Eller bara sy fast kragen så långt den räcker... Eftersom det verkar vara fler som har samma problem kanske mönstret kan förbättras genom tips kring denna detalj.
09.09.2020 - 15:42Emma Lindahl wrote:
Med vilka stickor mäter jag stickfastheten? 8 eller 6?
24.06.2020 - 19:14DROPS Design answered:
Hej Emma. Det är sticka 8 som används till slätstickningen och det är i slätstickning stickfastheten mäts. Om du inte får det antal maskor som uppges så får du prova att gå upp eller ner i storlek på stickorna. Mvh DROPS Design
25.06.2020 - 08:15Sofia Moraes wrote:
In first short row when it says work as before , does that mean you need to do A1 whilst doing the short rows
12.06.2020 - 12:50DROPS Design answered:
Dear Mrs Moraes, you work the short rows working A.1 /A.2 at the same time, so just continue following diagram. Happy knitting!
12.06.2020 - 15:18Annette wrote:
Hej Förstår inte hur jag ska sy ihop halskanten. Dom är för korta mot själva tröjan. Hur ska dom räcka hela vägen till bak i nacken?
31.05.2020 - 20:33DROPS Design answered:
Hei Anette. Har du overholdt strikkefastheten? Sjekk også video ang halskanten til denne jakken her: God Fornøyelse!
03.06.2020 - 15:07Dumet wrote:
Bonjour, pouvez vous svp me donner plus d'explications sur ceci: Décaler les transitions entre le dos/les devants et les manches pour que les 2-1-1-1-1-1 mailles de chaque côté de chacune des manches soient maintenant sur les devants et sur le dos. Merci beaucoup
28.05.2020 - 09:56DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dumet, en tricotant le rang suivant pour diviser l'ouvrage, 2 ou 1 maille du début de la manche sera tricotée pour le devant, 2 ou 1 m de la fin de la manche sera tricotée pour le dos, idem pour la 2ème manche: le dos se termine par les 2-1 premières m de la manche et le devant commence par les 2-1 dernières m de la manche. Bon tricot!
28.05.2020 - 14:13