Ruth Gunnvor Molvær skrifaði:
Jeg strikket i str.12/18 mnd, og felte av etter vrangborden 12 m slik mønsteret sier. Etter å ha strikket et godt stykke på bolen, målte jeg bredden. Den skulle være 29, men var 26cm. Min strikkefasthet er normal. Gikk til butikken hvor garnet ble kjøpt med strikketøyet. Hun målte, så på min strikkefasthet, og sa at her burde jeg enten bytte til pinne 4 1/2 eller la vær å felle etter vrangborden for å få rette mål. Jeg valgte det siste. Håper dere kan rette opp dette.
25.07.2022 - 16:25
Lena skrifaði:
Ohjeen mukaan raglan kavennuksia on 15 kertaa, jolloin 15 x4 =60 vähenee silmukat jää 72 silmukkaa. Eikö tässä ole virhe???? Mulla on vielä 132 silmukkaa!!
14.02.2022 - 23:37DROPS Design svaraði:
Raglankavennusten kavennuskerroksella kavennetaan aina 8 silmukkaa (= yhteensä 120 silmukkaa). Eli työhön jää 72 silmukkaa.
04.05.2022 - 17:10
Connie Stausgaard skrifaði:
Kommentar til garnmængden: Jeg strikker str. 12/18 måneder, og skal bruge 150 g. natur og 100 g. grå. Jeg holder alle mål og masketal. Trøjen er bare rigtig flot😍.
09.02.2022 - 17:07
Anne Lise Norderhaug Svensen skrifaði:
Hei, finnes det mønster i str 8 år?
27.11.2021 - 14:29DROPS Design svaraði:
Hei Anne Lise, Mønster me-061-bn er samme genser i barnestørrelsene. God fornøyelse!
29.11.2021 - 07:09
Sanna Andersson skrifaði:
Hej. En rättelse ang garnmängden. Jag har nu skickat storlek 3/4 år (98-104) och det krävdes ganska exakt 200 g respektive 100 g garn för att slutföra plagget. Jag stickade i drops merino extra fine, och det är samma längd som det ursprungliga karisma enligt mösterbeskrivning. Tack för ett fint mönster. Sanna
07.04.2021 - 11:49
Lise-Lotte skrifaði:
Jag har samma fråga som Nina: När jag stickar mönstret EFTER ökningarna på ärmarna så förskjuts mönstret en maska till höger. Vad gör jag för fel? Mvh L-L
21.03.2021 - 21:23DROPS Design svaraði:
Hej Lise-Lotte, mønsteret kommer ikke til at gå op hele vejen rundt. Det er derfor vigtigt at du sørger for at det går op i forhold til mønsteret du allerede har strikket, det vil sige at du slår en ny maske op i den farve du er kommet til i diagrammet. God fornøjelse!
23.03.2021 - 13:33
Gitte Fagerberg skrifaði:
Hej Jeg strikker størrelse 2 år. Efter samling af arbejdet, har jeg 216 m og skal tage ind til raglan på hver 2. P Jeg har alt for mange masker Når jeg på 17 omgange reducerer med 4 m (=68m), Så har jeg 146 m ig ikke 80 som der står i opskriften Har jeg misforstået noget? Hilsen Gitte
23.02.2021 - 11:49DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, du tager 8 masker ind til raglan på hver indtagningsomgang :)
23.02.2021 - 14:44
Lena Ella Frederiksen skrifaði:
Er trøjen ens forfra og bagfra? Altså ikke forskel på forstykke og bagstykke, når man har lukket af til halskant?
10.01.2021 - 21:49DROPS Design svaraði:
Hej Lena, nej der er ikke forskel på for og bagstykke :)
11.01.2021 - 12:48
Els skrifaði:
Een rondbreinaald van 60 cm is te kort voor de trui in de grootste maten. Ik heb de eerste acht cm van de pas met een combinatie van de 4 breinaalden zonder knop en de rondbreinaald gebreid
21.06.2020 - 22:04
Nina skrifaði:
Hej. Jag har kommit till ärmarna och undrar över hur jag ska få in mönstret rätt vid ökningarna. Stickar storlek 2 år så efter sju cm ska jag öka två maskor mitt under ärmen. Med vilken färg ska jag göra omslaget? När jag sen stickar mönstret förskjuts hela mönstret en maska åt höger efter varje ökning. Hur ska jag tänka för att det inte ska bli så?
25.01.2020 - 22:08DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Mønstret vil ikke stemme 100% under ermet før man har økt nok masker til å strikke en hel rapport. Øk med den fargen slik at det blir likt på begge sidene av merketråden. God Fornøyelse!
10.02.2020 - 13:06
Reykjavik Kids#reykjaviksweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og laskalínu. Stærð 6 mánaða – 4 ára.
DROPS Children 34-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (á við þegar prjónað er neðan frá og upp/ofan frá og niður): Þetta stykki er prjónað neðan frá og upp. Ef þú vilt prjóna stykkið ofan frá og niður þá getur þú gert það, en þú verður að aðlaga uppskriftina sjálf/ur. Þetta gerir þú með því að byrja neðst niðri í uppskrift með því að fitja upp lykkjur fyrir kant í hálsmáli. Síðan er úrtaka í uppskriftinni gerð að útaukningu og útaukning gerð að úrtöku. Með því að prjóna flíkina ofan frá og niður, er hægt að stilla af lengd á fram- og bakstykki og ermum auðveldlega að réttu máli. STROFF-1 (á við um neðst niðri á fram- og bakstykki og ermar): Stroffið er prjónað í 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið þannig: 3 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur. STROFF-2 (á við um kant í hálsmáli): Stroffið er prjónað í 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið þannig: 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 11,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur með A.1 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin sem sett voru í hverja skiptingu á milli framstykkist/bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í úrtöku umferð). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn verðu áfram stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (þessi uppsláttur er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram í hring á hringprjón/sokkaprjóna til loka – sjá LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 118-132 (146-158) lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem fækkað er um 10-12 (14-14) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 108-120 (132-144) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 54-60 (66-72) lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 18-20 (22-24) mynsturteikningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í mynsturteikningu, þannig að það sé lykkja með litnum dökk grár frá A.1 mitt í hvorri hlið á fram- og bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18 (20-23) cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið í byrjun á umferð, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 48-54 (60-66) lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 48-54 (60-66) lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki) og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 32-34 (36-36) lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur þar sem aukið er út um 4-2 (6-6) lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-36 (42-42) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6 (7-7) mynstureiningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í mynsturteikningu, þannig að það sé lykkja með litnum dökk grár frá A.1 mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-6 (7-7) cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-2 (2½-3) cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 48-48 (54-54) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 16-18 (22-26) cm, en stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri og á fram- og bakstykki áður en lykkjur eru felldar af fyrir handveg – þetta er mikilvægt til að mynstrið passi þegar fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-42 (48-48) lykkjur mynstur eins og áður og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina alveg eins. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 180-192 (216-228) lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið umferð á bakstykki í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis og haldið áfram með A.1 hringinn eins og áður, en 1 lykkjan hvoru megin við 4 prjónamerkin er alltaf prjónuð með litnum natur. Þegar prjónaðar hafa verið 2-4 (2-4) umferðir eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett saman, fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-15 (17-18) sinnum á hæðina. Eftir síðustu úrtöku eru 68-72 (80-84) lykkjur eftir í umferð (20-24 (26-30) lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki og 14-12 (14-12) lykkjur á milli prjónamerkja á ermum). Stykkið mælist ca 11-12 (13-14) cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur og fækkið um 2-2 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 66-70 (74-78) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 eða stuttan hringprjón 3. Prjónið STROFF-2 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með litnum dökk grár, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur/brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #reykjaviksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.