DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Favourite Catch

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og laskalínu. Stærð 5-14 ára.

DROPS Children 37-9
DROPS Design: Mynstur me-061-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára.
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-350 g litur 01, natur
150-150-150-150-150 g litur 04, milligrár

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-350 g litur 0100, natur
150-150-150-150-150 g litur 0519, dökk grár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3. Lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR (á við um neðan frá og upp/ofan frá og niður):
Þetta stykki er prjónað neðan frá og upp. Ef þú vilt prjóna stykkið ofan frá og niður þá getur þú gert það, en þú verður að aðlaga uppskriftina sjálf/ur. Þetta gerir þú með því að byrja neðst niðri í uppskrift með því að fitja upp lykkjur fyrir kant í hálsi. Síðan verða úrtökurnar í uppskriftinni gerðar að útaukningum og útaukningar eru gerða að úrtökum. Með því að prjóna flíkina ofan frá og niður, er hægt að stilla af lengd á fram- og bakstykki og ermum auðveldlega að réttu máli.

STROFF-1 (á við um neðst niðri á fram- og bakstykki og ermar):
Stroffið er prjónað annað hvort 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig:
3 umferðir milligrár/dökk grár,
2 umferðir natur,
2 umferðir milligrár/dökk grár,
2 umferðir natur,
2 umferðir milligrár/dökk grár,
2 umferðir natur.

STROFF-2 (á við um einfaldan kant í hálsi):
Stroffið er prjónað annað hvort í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig:
2 umferðir milligrár/dökk grár,
2 umferðir natur,
2 umferðir milligrár/dökk grár,
2 umferðir natur,
2 umferðir milligrár/dökk grár.

STROFF-3 (á við um tvöfaldan kant í hálsi):
Stroffið er prjónað annað hvort í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig:
2 umferðir milligrár/dökk grár,
4 umferðir natur,
2 umferðir milligrár/dökk grár,
12 umferðir natur.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 168 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 14.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 13. og 14. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur með A.1 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin sem sett voru í hverja skiptingu á milli framstykkist/bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með natur (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í úrtöku umferð).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn verðu áfram stífur er hægt að slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (þessi uppsláttur er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram í hring á hringprjón/sokkaprjóna til loka.
Allt stroffið er prjónað 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Kantur í hálsi er prjónaður annað hvort einfaldur eða tvöfaldur. Sjá LEIÐBEININGAR!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 168-172-176-184-200 lykkjur á hringprjón 3 með milligrár/dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan.
Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem fækkað er um 12-16-8-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá AFFELLING/ÚTAUKNING = 156-156-168-168-180 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 78-78-84-84-90 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki.
Prjónið síðan A.1 hringinn (= 26-26-28-28-30 mynsturteikningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að það sé lykkja með milligrár/dökk grár «ferningur» frá A.1 mitt í hvorri hlið á fram- og bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Byrjið í byrjun á umferð, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 72-72-78-78-84 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 72-72-78-78-84 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki) og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 36-36-40-40-44 lykkjur á sokkaprjón 3 með milligrár/dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan.
Eftir stroff er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-36-42-42-48 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6-7-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að það sé lykkja með milligrár/dökk grár «ferningur» frá A.1 mitt undir ermi).
Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-1½-1½-2-2 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum, síðan er aukið út með 2-2½-3-3-3½ cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 60-60-66-66-72 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist ca 28-32-36-39-43 cm, en stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri og á fram- og bakstykki áður en lykkjur eru felldar af fyrir handveg – þetta er mikilvægt til að mynstrið passi þegar fram- og bakstykki og ermar er sett saman.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 54-54-60-60-66 lykkjur mynstur eins og áður og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina alveg eins.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 252-252-276-276-300 lykkjur í umferð.
Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu.
Byrjið umferð á bakstykki í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis og haldið áfram með A.1 hringinn eins og áður, en 1 lykkjan hvoru megin við 4 prjónamerkin er alltaf prjónuð með natur.
Þegar prjónaðar hafa verið 2-4-4-6-2 umferðir eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett saman, fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-20-22-22-25 sinnum á hæðina.
Eftir síðustu úrtöku eru 92-92-100-100-100 lykkjur eftir í umferð (32-32-34-34-34 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki og 14-14-16-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum). Stykkið mælist ca 15-16-17-18-19 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Prjónið síðan kant í hálsi að eigin ósk eins og útskýrt er að neðan. Peysan mælist
Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan ca 44-47-50-53-56 cm frá öxl og niður.

EINFALDUR KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið 1 umferð slétt með natur og fækkið um 12-8-16-12-12 lykkjur jafnt yfir = 80-84-84-88-88 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3.
Prjónið STROFF-2 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með milligrár/dökk grár, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið 1 umferð slétt með natur og fækkið um 4-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 88-92-92-96-96 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3.
Prjónið STROFF-3 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með natur, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING og fellið af með uppslætti svo að kanturinn verði ekki stífur!
Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið fallega niður með smáu spori, en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.12.2020
Efnismagn í stærð 7/8 ára hefur verið uppfært.

Mynstur

symbols = natur
symbols = milligrár/dökk grár
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Kirsten wrote:

Hei! Kan det stemme at ein skal felle masker på bolen etter vrangborden slik det står i oppskrifta? «Etter vrangborden strikkes det 1 omgang rett med natur der det felles 12-16-8-16-20 masker jevnt fordelt – les FELLE-/ØKETIPS = 156-156-168-168-180 masker.» Det vanlige er jo å auke etter vrangborden.

17.01.2024 - 19:31

country flag Andrea Guillemette wrote:

Bonjour je voudrais savoir comment on tricoteles mailles pour les manches sans changer le patron de 6 mailles

09.05.2023 - 14:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guillemette, tricote A.1 en commençant le tour par la 1ère maille de A.1, ainsi, vous avez bien une maille tricotée alternativement en gris moyen/gris foncé au milieu sous la manche. Tricotez ensuite les augmentations en agrandissant le motif au début du tour et à la fin du tour. Bon tricot!

09.05.2023 - 16:36

country flag Bodil Bendixen wrote:

Super flot model og enkel at strikke.

04.04.2023 - 14:54

country flag Bodil Bendixen wrote:

Hej Jeg vil gerne strikke denne opskrift (37-9) i en størrelse 3 - 4 år - jeg ved ikke om opskriften findes Hvor mange masker skal jeg bruge til krop og ærme - Har du nogle gode råd? - Hvor meget garn? Er der evt en anden opskrift jeg kan tage udgangspunkt i? Mvh Bodil

04.04.2023 - 14:53

DROPS Design answered:

Hej Bodil, ja den hedder DROPS Children 34-30 - Reykjavik Kids :)

13.04.2023 - 12:11

country flag Marith wrote:

Hvorfor feller man etter ta man har strikket vrangborden på bolen?

22.02.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Hei Vrangbord er mer elastisk enn glattstrikk og trekker seg derfor mer sammen. Ved å felle masker etter vrangborden unngår man at det blir en markant viddeforskjell på vrangborden og resten av bolen. Mvh DROPS Design

23.02.2023 - 13:42

country flag Maj-Britt Hansson wrote:

Der står ragland 2ret sammen før merketråd 2vrid sammen etter det står det er 8 m felt i omgangen.jeg får det bare til 4

18.12.2022 - 23:16

DROPS Design answered:

Hei Maj-Britt, 2 rett sammen (1 maske felt) før merketråd og 2 vridd sammen (1 maske felt) etter. Da blir 2 masker felt ved hver merketråd. Du har 4 markertåder, så da blir det 8 masker felt på omgangen. God fornøyelse!

19.12.2022 - 07:01

country flag Yvonne wrote:

Stickar ärmarna de ökade maskorna går inte in i mönstret har stickat och repat upp flera gånger ringt garnaffären och dem fattar ingenting hur man gör. Snälla hjälp mig på en enkel förklaring

15.11.2021 - 10:40

DROPS Design answered:

Hej Yvonne. Du ökar ska ha en grå fyrkant mitt under ärmen så ökningarna kommer bli på varje sida av den. Se till att mönstret stämmer utifrån ärmen och in mot mitten. Mönstret kommer inte gå upp hela vägen runt förens du har gjort 3 ökningar (=6 ökade maskor, dvs ett helt A.1). (Tycker du det är svårt att få det bra så kan man alltid välja att bara sticka de ökade maskorna i bottenfärgen så att det blir som en vit rand mitt under ärmen istället.) Mvh DROPS Design

18.11.2021 - 08:28

country flag R C Andersson wrote:

Hej, jeg er lidt forvirret over følgende: Når arbejdet måler 26-28-30-32-34 cm, lukkes der af til ærmegab således: Start i begyndelsen af omgangen, tag 3 masker ind til ærmegab, strik 72-72-78-78-84 masker mønster som før (= forstykke), tag 6 masker ind til ærmegab (3 masker på hver side af mærketråden), strik 72-72-78-78-84 masker mønster som før (= bagstykke), og luk de resterende 3 masker af. Skal der tages masker ind eller lukkes masker af til ærmegabet? MVH

28.10.2021 - 17:06

DROPS Design answered:

Hej. Det ska lukkes af masker till ærmegabet. Tack för info, vi ska rätta det i opskriften. Mvh DROPS Design

29.10.2021 - 08:17

country flag Carina Richard wrote:

Har problem att sticka fram-bakstycke o ärmar tillsammans på rundstickan ? Hur gör man enklast ?

29.08.2021 - 16:41

DROPS Design answered:

Hei Carina. Når du setter sammen frem -og bakstykket og ermene er det 2-3 omganger det er litt vanskelig/trangt, men det er bare noen omganger så blir det lettere. Du kan evnt prøve å strikke med 2 rundpinner (magic loop). mvh DROPS design

30.08.2021 - 14:15

country flag Johanna Andersson wrote:

Hei, neulon kokoa 9/10 eikä lanka 300+150g tule riittämään. Ostin varuiksi lisäkerän, mutta se ei auta.

01.04.2021 - 19:12