REINE MARIE skrifaði:
BONSOIR VOILA POUR RENFORCER UN TALON POUR CE MODELE ES CE QU IL FAUT TRAVAILLER 2FILS ENSEMBLENT JE COMPREND PAS .MERCI DE VOTRE REPONSE( CES CHAUSSETTES PLAISENT BEAUCOUP A MON PETIT FILS ALORS JE VAIS ESSAYER.MERCI
11.10.2019 - 20:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Reine Marie, cette vidéo montre comment tricoter un talon renforcé avec 2 fils en même temps, mais en ne tricotant qu'une maille sur deux avec chacun des fils. Bon tricot!
14.10.2019 - 09:00
Birgitta Svaneblom skrifaði:
Hej det är inte rätt mönster till sockan
01.10.2019 - 13:51DROPS Design svaraði:
Hej. Nu finns alla diagram med på mönstret. Lycka till!
03.10.2019 - 10:50
Venche Aanes skrifaði:
Nydelige sokker midt i blinken for meg
29.08.2019 - 14:10
Birgitta Svanelom skrifaði:
Hej Jag väntar fortfsrande på detta mönster . är jättesnyggt
16.08.2019 - 18:21
Birgitta Svaneblom skrifaði:
Väntar på detta mönster
06.08.2019 - 09:47
Barbara skrifaði:
Wow auch diese Socken möchte ich mir stricken 🧦 🧶 ich warte gespannt auf die Anleitung liebe Grüsse Barbara
20.06.2019 - 23:20
Fabled Cottage#fabledcottagesocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 203-25 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 15. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 14. og 15. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir hálft númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtöku með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-13-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið næstu umferð þannig: 35/37: Prjónið A.2 hringinn (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum). 38/40 og 41/43: Prjónið A.1 (= 2-4 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 56 lykkjur (= 4 mynstureiningar á breidd með 14 lykkjum) og endið með A.3 (= 2-7 lykkjur). ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör í A.2 er fækkað um 6-10-4 lykkjur jafnt yfir = 50-50-60 lykkjur. Prjónið A.4 hringinn (= 5-5-6 mynstureiningar á breidd með 10 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 14 cm í öllum stærðum – mælt frá uppfitjunarkanti. Nú er hællinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Haldið eftir fyrstu 13-13-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 25-25-30 lykkjur á þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-12-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 25-25-30 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum bensínblár í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið á að nota síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA með litnum bensínblár – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð með litnum bensínblár þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 13-13-14 hællykkjur, prjónið upp 11-12-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 25-25-30 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 11-12-13 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 60-62-70 lykkjur í umferð. Prjónið að miðju undir hæl, umferðin byrjar nú hér. Prjónið A.5 hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-2-0 lykkjur jafnt yfir þannig að það verða 60-60-70 lykkjur í umferð og pláss fyrir 6-6-7 mynstureiningar á breidd með 10 lykkjum. A.5 er endurtekið á hæðina, en í annað skipti sem mynstureiningin er prjónuð á hæðina, er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í umferð merktri með ör í A.5 = 50-50-60 lykkjur. Endurtakið úrtöku í 35/37 og 41/43 í næsta skipti A.5 er prjónað á hæðina = 40-50-50 lykkjur eftir. Haldið áfram með A.5 án úrtöku þar til stykkið mælist ca 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl, en stillið mynstrið af þannig að endað sé eftir heilan mynsturbekk, prjónið síðan með litnum bensínblár að réttu máli (þegar stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki, nú eru eftir ca 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokk þannig að það verða 20-25-25 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum bensínblár og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum hvoru megin við bæði prjónamerkin í annarri hverri umferð alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-5-5 sinnum = 8-10-10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fabledcottagesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.