Katarina Lans skrifaði:
I mönstret 204-19, så är det lite oklart hur man minskar på toppen av vantarna. Jag förstår ingenting! Går det att tydliggöra? T.ex. att man ska minska 3 maskor innnan markören, men det blir bara förvirrande när man ska kombinera beskrivningen och minskningstips 2. Vore enklare att läsa vad man ska göra sticka för sticka.
22.01.2024 - 20:44DROPS Design svaraði:
Hej Katarina. När du ska börja minska och har satt de 2 markörerna i arbetet så minskar du vid varje markör på följande sätt: Börja 3 maskor före markören, sticka 2 maskor räta tillsammans, sticka 2 rätmaskor (markören sitter mellan dessa 2 maskorna), lyft 1 maska som om den skulle stickas rät, sticka 1 rätmaska, drag den lyfta maskan över maskan som stickades (= 2 maskor minskade vid markören). Detta gör du vid varje markör och varje varv tills du har 4 maskor kvar. Då klipper du av tråden, drar den genom de sista 4 maskorna, drar åt och fäster tråden. Mvh DROPS Design
24.01.2024 - 15:05
Valerie skrifaði:
Bonjour Lorsque je commence les diminutions le dessin est décalé, dois je ajuster ou continuer selon le schéma ? Merci par avance pour votre aidaient cordialement Valerie
19.10.2023 - 18:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Valérie, au choix, vous pouvez simplement continuer en suivant le diagramme ou bien ajuster le motif pour que les plumetis soient toujours alignés. Bon tricot!
20.10.2023 - 08:08
Marian skrifaði:
When decreasing I find that the pattern is not staying as it should because there are less stitches. Is this correct, if not, how do I adjust? Thank you.
04.09.2023 - 15:33DROPS Design svaraði:
Dear Marian, continue working the pattern as before over as many stitches as possible - depending on the decrease rounds you might have some difference at the transition of rounds. Happy knitting!
05.09.2023 - 11:43
Nini Nielsen skrifaði:
Jeg mener at det er et dårligt design. vanten er alt for vid i den lille størrelse. desuden er karisma ikke egnet til p.3
27.02.2021 - 22:20
Jane skrifaði:
Not to worry I finally found the answer: MITTENS - SHORT OVERVIEW OF THE PIECE: Work piece in the round on double pointed needles, bottom up. Mittens have the same circumference in both sizes but different length. Circumference can be adjusted - read KNITTING TIP-2!
15.11.2019 - 14:33
Jane skrifaði:
The mitten pattern says it is for 2 sizes -s/m and m/l. As far as I can see you cast on 48 stitches for both sizes. I can’t see where you do increases, or make adjustments, to make the larger size, so the pattern is just for one size? How many extra stitches do I cast on for the m/l size? Thank you
15.11.2019 - 14:11DROPS Design svaraði:
Dear Jane, mittens have the same circumference in both size (only length is different) - to adust circumference see KNITTING TIP-2. Happy knitting!
15.11.2019 - 14:42
Candy Cane Lane Set#candycanelaneset |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð húfa og vettlingar með norrænu Fana mynstri úr DROPS Karisma.
DROPS 204-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um efst á húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettling): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki). ÚRTAKA-3 (á við um þumal): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2 (á við um vettlinga): Ef óskað er eftir því að gera vettling í stærra ummáli er hægt að prjóna vettlinginn með hálfu eða heilu númeri grófari prjónum. Ef prjónað er með hálfu númeri grófari prjónum þá verður 1 cm meira ummál og í heilu númeri grófari prjónum verðu ummálið 2 cm meira. LEIÐBEININGAR-3 (á við um vettlinga): Lengdin áður en opið fyrir þumal byrjar er hægt að stilla af með því að prjóna fleiri eða færri umferðir áður en merki fyrir þumal er prjónað. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 27-28 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 20 cm í báðum stærðum, en passið uppá að næsta umferð sé einlit umferð strax á undan eða eftir umferð með «doppum». Setjið 6-7 prjónamerki í stykkið með 18-16 lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 = 6-7 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4 sinnum = 54-42 lykkjur eftir. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með lit í síðustu rönd þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í öllum þremur umferðum = 7-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-26 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Gerið einn dúsk með litnum vínrauður og natur ca 6 cm í þvermáli og festið efst á húfuna. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Vettlingarnir hafa sama ummál í báðum stærðum, en misjafna lengd. Ummálinu er hægt að breyta – sjá LEIÐBEININGAR-2! VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fyrir fald. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Stykkið er nú mælt frá uppábroti! Prjónið 8 umferðir sléttprjón með litnum vínrauður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.1 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 11 cm frá uppábroti (stillið af að næsta umferð sé einlit umferð með litnum vínrauður), prjónið að prjónamerki fyrir op fyrir þumal þannig – sjá LEIÐBEININGAR-3: Prjónið 14 lykkjur sléttprjón með litnum vínrauður, prjónið 8 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit sem skilur sig frá afgangi af stykki, prjónið síðan 26 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum vínrauður. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 21-23 cm frá uppábroti. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd – ATH: Endið eftir heila rönd með litnum natur og prjónið e.t.v. með litnum vínrauður (án «doppa») til loka. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og1 prjónamerki eftir 24 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11 sinnum í báðum stærðum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að uppábroti. ÞUMALL VINSTRI VETTLINGUR: Dragið út þráðinn sem prjónaður var yfir 8 lykkjur fyrir opi fyrir þumal. Prjónið upp 8 lykkjur hvoru megin við op fyrir þumal með litnum vínrauður = 16 lykkjur. Skiptið þessum 16 lykkjum á sokkaprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. Þegar þumallinn mælist ca 5-5½ cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á þumli. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli á þumli, mátið e.t.v. vettlingana og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-3 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 3 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 6-6½ cm ofan frá og niður. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fyrir fald. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið 8 umferðir sléttprjón með litnum vínrauður. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.2 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 11 cm frá uppábroti (stillið lengd af eftir vinstra vettlingi), prjónið að prjónamerki fyrir op fyrir þumal þannig: Prjónið 26 lykkjur sléttprjón með litnum vínrauður, prjónið 8 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit, prjónið síðan 14 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum vínrauður. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 21-23 cm frá uppábroti (stillið lengdina af eftir vinstri vettlingi). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og1 prjónamerki eftir 24 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11 sinnum í báðum stærðum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALL: Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri vettlingi. FRÁGANGUR: Brjótið uppá fald fyrir saum að röngu og saumið niður með smáu fallegu spori. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candycanelaneset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.