Reidun Dale Haugestad skrifaði:
Hei! Jeg ser at det nederst på bolen skal legges UT masker før vrangborden , det er jo helt ulogisk å ha større vrangbord enn bol. Her er ikke fletting, så er dette feil? Kan ikke se at andre har spurt om dette før.. er oppskriften her oppdatert med rettinger dom er gjort?
11.12.2023 - 13:04DROPS Design svaraði:
Hei Reidun. For å få en pen overgang mellom bol og vrangbord, byttes det til mindre pinne str. og det økes masker. Da slipper man å få den trange vrangborden man gjerne hadde på -80-tallet. Om man ønsker vrangborden smalere, kan man fint droppe økningen. Bare husk å ha et maskeantall som vrangborden (2 rett/2 vrang) går opp i. mvh DROPS Design
11.12.2023 - 13:36
Boulart Jocelyne skrifaði:
Bonjour, Comment faites vous pour calculer le nombre de pelotes pour un pull jacquard ? en 2 couleurs Je vous remercie
21.03.2023 - 14:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Boulart, si vous voulez réaliser ce modèle en 2 couleurs, il vous faudra additionner les 2 couleurs du jacquard - il vous en faudra probablement un peu moins, mais nous n'avons d'expérience qu'avec 3 couleurs - votre magasin pourra vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
21.03.2023 - 14:42
Bente Virenfeldt skrifaði:
Bærestykket... På runder hvor der skal laves udtagning og der startes med hvid, fx 5. række i A2a, er denne udtagning /nye maske så hvid eller grå??? Vh Bente
20.01.2023 - 23:11DROPS Design svaraði:
Hei Bente. På neste omgang skal den økte masken strikkes med mørk grå, ville ha laget kastet med samme farge, altså mørk grå. mvh DROPS Design
23.01.2023 - 11:06
Niamh skrifaði:
I am working on the elevation in size L. I am confused about the instruction regarding moving the marker thread. I have \'knit 48 stitches back.\' When I turn the piece and purl 15 stitches, this does not pass the marker thread. There are 24 stitches on either side if the marker thread.
21.12.2022 - 02:14DROPS Design svaraði:
Dear Niamh, the elevation started on mid back, but after the elevation is done, you will have to start yoke and yoke doesn't start on mid back but 15 sts after the marker mid-back (seen from the wrong size) in your size and you are now ready to work all stitches on back piece. Happy knitting!
21.12.2022 - 08:20
Marie skrifaði:
I beskrivningen till OKet står det: "Diagram A.2b stickas 4 gånger mer på bredden för varje gång de 24 varven upprepas på höjden". Ska jag alltså sticka A.2b 3 gånger (18 maskor) alla dom första 24 varven och sen 12 gånger (72 maskor) alla nästkommande 24 varv?
03.11.2022 - 08:50DROPS Design svaraði:
Hej Marie, du skal fortsætte mønsteret fra ryg & forstykke og ærmerne ud mod raglanovergangen efterhånden som du tager ud :)
04.11.2022 - 09:35
Joan Bengtson skrifaði:
Når man har strikket diagrammet 1gang=192 m, fortsætter man så med udtagninger på hver 6 omg,på ryg og forstykke?
14.09.2022 - 13:22DROPS Design svaraði:
Hej Joan, du har taget ud på hver 2.omgang og det fortsætter du med :)
16.09.2022 - 07:34
Amanda skrifaði:
Vilken storlek har modellen på bilden?
29.01.2022 - 17:34DROPS Design svaraði:
Hei Amanda. Modellen har på seg str S eller M. For å finne riktig str til deg, kan du ta en titt på cm målene på målskissen nederst på siden. mvh DROPS Design
31.01.2022 - 13:55
Annica Holmström skrifaði:
Jag vill byta till garnet DROPS BRUSHED Alpaca Silk. storlek XL dam. Hur många nystan behöver jag för detta
06.04.2021 - 14:03DROPS Design svaraði:
Hej Annica, prøv vores garn konverterare. Vælg DROPS Nepal, vælg 1 tråd og vælg antal gram i din størrelse, så får du antal gram i DROPS Brushed Alpaca Silk - husk at tröjan vil få et helt andet udtryk i denne kvalitet :)
06.04.2021 - 14:43
Caroline skrifaði:
Si je veux réaliser ce projet, j'ai besoin de combien de pelote de laines?
10.03.2021 - 22:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, vous trouverez la quantité pour chaque taille, au poids, sous l'en-tête, autrement dit, il vous faut en taille S par exemple: 300 g DROPS Nepal/50g la pelote = 6 pelotes gris foncé + 2 pelotes Nepal naturel + 2 pelotes beige (100 g de chacune de ces 2 couleurs). Bon tricot!
11.03.2021 - 08:12
Maiken skrifaði:
Det er feil i mønsteret når man skal sette av masker til armene. Er 2 masker for lite på hver av størrelsene.
16.01.2021 - 12:06
Akranes#akranessweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu íslensku mynstri með laskalínu úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynstur A.1 og A.6 er prjónað í stroffprjóni. Mynstur A.2 til A.5 er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Byrjið frá röngu með litnum dökk grár og prjónið brugðið þar til prjónaðar hafa verið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá prjónamerki í byrjun á umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-24-27-27-27 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-32-32-36-36-36 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40-40-40-45-45-45 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-48-54-54-54 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið til baka þar til prjónaðar hafa verið 15-15-15-18-18-18 lykkjur fram hjá prjónamerki í byrjun á umferð. Færið prjónamerkið hingað. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum dökk grár (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með litnum dökk grár, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli með uppábroti, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-80-88-88-92 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum natur. Skiptið yfir í litinn dökk grár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, prjónið síðan A.1 í stroffprjóni – ATHUGIÐ VEL útskýringu á táknum. Prjónið 1 umferð slétt með litnum dökk grár þar sem aukið er út um 12-8-8-12-12-12-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 88-88-88-100-100-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan, eða fara beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.2a (= 8 lykkjur), A.2b yfir næstu 12-12-12-18-18-18 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum) og A.2c (= 9 lykkjur) (= bakstykki), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið A.4 (= 11 lykkjur, ermi), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið A.2a (= 8 lykkjur), A.2b yfir næstu 12-12-12-18-18-18 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum) og A.2c (= 9 lykkjur) (= framstykki), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið A.4 (= 11 lykkjur, ermi), prjónið A.3 (= 2 lykkjur, laskalína). Nú eru 96-96-96-108-108-108 lykkjur í umferð (= fyrsta laskalínu útaukning er nú lokið). Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 og A.4 eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 192-192-192-204-204-204 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur á sama hátt, þ.e.a.s. mynstrið endurtekið sig eins og útskýrt er í A.2/A.4. Mynsturteikning A.2b er prjónuð 4 sinnum oftar á breiddina í hvert skipti sem 24 umferðirnar eru endurteknar á hæðina. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 19-22-25-25-28-31 sinnum hvoru megin við A.2/A.4. Þegar síðasta útaukningin hefur verið gerð eru 240-264-288-300-324-348 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-22-25-25-28-31 cm frá kanti í hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður, nema án útaukninga. Þegar stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá kanti í hálsmáli – stillið af að næsta umferð sé prjónuð án mynsturs, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 70-76-82-88-94-103 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 72-78-84-90-96-108 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 2-2-2-2-2-5 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-180-192-216-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hliðina mitt í 6-6-6-6-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið merkir byrjun á umferð. Prjónið A.5 hringinn (= 26-28-30-32-36-40 mynstureiningar með 6 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið endurtaki sig eins og áður á breiddina og á hæðina. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu – stillið af eftir 2. eða 7. umferð í A.5. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt með dökk grár þar sem aukið er út um 28-32-36-36-40-48 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-228-256-288 lykkjur. Prjónið A.6 í stroffprjóni (= 2 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 48-54-60-60-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-66-66-78-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota prjónamerkið aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki. Prjónið A.5 hringinn (= 9-10-11-11-13-13 mynstureiningar með 6 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið endurtakið sig eins og áður á breiddina og á hæðina, en fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er alltaf prjónuð í litnum dökk grár (þetta er gert til að fá fallega úrtöku undir ermi). Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-2-1-1-3-2 sinnum = 52-56-64-64-72-74 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum með 3-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 8-9-12-12-14-15 sinnum = 36-38-40-40-44-44 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-33-33-31-29-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir 2. eða 7. umferð í A.5. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt með litnum dökk grár þar sem aukið er út um 8-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið A.6 í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá hálsmálið inn að röngu. Saumið við uppfitjunarkantinn með litnum natur – saumið með smáu, fallegu spori innan á peysunni (passið uppá að saumurinn sjáist ekki á framhlið og að saumurinn verði ekki of stífur). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #akranessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.