Barbara Beltrami skrifaði:
E' possibile fare lo stesso modello senza il collo alto?
19.09.2019 - 11:10DROPS Design svaraði:
Buongiorno Barbara. Per non avere il collo alto, è sufficiente ridurre i giri lavorati a coste 2 m dir/2 m rovescio all’inizio del lavoro. Buon lavoro!
19.09.2019 - 11:33
Fijona skrifaði:
Wow!
14.09.2019 - 11:48
Yvonne Oost skrifaði:
Kan ik dit breipatroon op gewone breipennen breien?
08.09.2019 - 11:11DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
Helaas is dit patroon niet geschikt om met naalden met knop te breien, omdat de pas in de rondte wordt gebreid.
08.09.2019 - 12:58
Heike skrifaði:
Ein wunderschöner Pullover. Das wird meine nächstes Projekt.
19.08.2019 - 18:25
Heike skrifaði:
Ein wunderschöner Pullover. Das wird meine nächstes Projekt.
19.08.2019 - 18:23
Charron skrifaði:
Modele tres adapté pour femme active
05.08.2019 - 21:08
Isabelle Lievin skrifaði:
Peut on le tricoter avec des aiguilles droites ( non circulaires)? Merci pour la réponse.
31.07.2019 - 11:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle! Dans ce cas cela peut etre difficile, particulierement l'empiecement. J'opte pour les aiguilles circulaires. Lisez aussi la lecon: ICI. Bon tricot!
31.07.2019 - 16:21
Liesl Strick skrifaði:
Dieses Modell wird sicher ein Projekt für meine kommende Stricksaison😊🧶
31.07.2019 - 07:34
Lara skrifaði:
Buonasera, il campione potreste dirmi con che misura di ferri deve essere fatto? Grazie!
23.07.2019 - 18:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Lara, deve lavorare il campione con i ferri n° 6 mm. Buon lavoro!
23.07.2019 - 19:10
Nicole GUTH skrifaði:
Bonjour J'aimerais donner des noms à vos pulls de la nouvelle collection. Mais je ne peux pas, on me dit toujours "Votre nom contient un lien ou un mot interdit. Comment puis-je remédier à cela? Merci pour votre réponse. Nicole Guth
23.07.2019 - 18:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole! Je viens de verifier cela et tout marche bien. Quel est le nom que vous proposez pour notre modele?
23.07.2019 - 18:44
Northern Exposure#northernexposuresweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð poncho peysa með laskalínu úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 88 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út alls 8 lykkjur í umferð. Aukið út á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki (= 1 lykkja fleiri hvoru megin á ermi). Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út á fram- og bakstykki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í sléttprjón. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KRAGI: Fitjið upp 88-92-96-96-100-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 76-80-84-84-88-92 lykkjur. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 6. Prjónið nú mynstur þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 3-4-5-5-6-7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 20 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-5-5-6-7 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 3-4-5-5-6-7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-5-5-6-7 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur í umferð fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 27-29-31-33-35-37 sinnum = 292-312-332-348-368-388 lykkjur. Haldið nú áfram með mynstur eins og áður, jafnframt heldur útaukning áfram hvoru megin við A.1 á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) 5 sinnum til viðbótar = 312-332-352-368-388-408 lykkjur. Stykkið mælist ca 34-36-38-40-42-44 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 90-96-102-106-112-118 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 90-96-102-106-112-118 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar áfram hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-208-224-232-248-260 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermum (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og mynstri A.1 eins og áður, JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram hvoru megin við A.1 (= 4 lykkjur fleiri í umferð) í annarri hverri umferð 17 sinnum og þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3 cm millibili alls 5 sinnum = 244-256-272-280-296-308 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 18 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 48-52-56-60-64-68 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 292-308-328-340-360-376 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 61-63-65-67-69-71 cm frá öxl og niður meðfram hlið. ERMI: Setjið til baka 66-70-74-78-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 74-78-84-88-94-98 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm byrjar úrtaka undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum, síðan með 5-4½-2½-1½-1½-1 cm millibili 4-4-6-7-8-8 sinnum = 54-58-60-62-66-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-26-25-23-22-20 cm aukið út um 10-14-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 64-72-72-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 33-31-30-28-27-25 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernexposuresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.