DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Flair

Prjónuð tunika úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með köðlum, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-1
DROPS Design: Mynstur nr z-763
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 g nr 7120, ljós grágrænn
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-175-200 g nr 06, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l x 20 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LASKALÍNA:
Á ermum er aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Aukið út þannig:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þannig:
Aukið út í hverri umf alls 0-2-4-0-0-0 sinnum.
Aukið út í annarri hverri umf 22-23-23-27-24-26 sinnum.
Aukið út í 4. hverri umf alls 0-0-0-0-2-2 sinnum (= alls 22-25-27-27-26-28 sinnum) = alls 48-54-60-60-62-66 l á hvorri ermi.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA-1:
Þegar prjónað er í hring er l fækkað þannig:
Fækkið l við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-5-6-6 l á undan prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2-2-2-6-8-8 l garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri).
Þegar prjónað er fram og til baka er l fækkað þannig:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Prjónið 3-3-3-3-4-4 l garðaprjón, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri), prjónið mynstur eins og áður þar til 5-5-5-5-6-6 l eru eftir, 2 l slétt saman (= 1 l færri), endið með 3-3-3-3-4-4 l garðaprjón.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri).

AFFELLING:
Ef affellingarkanturinn verður of stífur þá er hægt að fella af með ½-1 nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður.

TUNIKA:
Fitjið upp 80-84-86-92-96-102 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-18-20-22-26-28 l jafnt yfir = 102-102-106-114-122-130 l. Í næstu umf er prjónað mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1a yfir fyrstu 21-21-21-23-23-25 l, A.2a yfir næstu l, 1 l br, 1 l sl (= frá miðju að aftan), 1 l br, A.3a yfir næstu l, A.4a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 l (= bakstykki), setjið 1. prjónamerki, 4-4-6-6-10-10 l sl, setjið 2. prjónamerki (= ermi), A.1a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 l, A.2a yfir næstu l, 1 l br, 1 l sl (= miðja að framan), 1 l br, A.3a yfir næstu l, A.4a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 l (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 4-4-6-6-10-10 l sl, setjið 4. prjónamerki (= ermi). Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.4a hafa verið prjónuð 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1b og A.4b á hæðina.
Þegar A.2a og A.3a hafa verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 298-318-362-378-402-430 l í umf. Stykkið mælist ca 22-24-25-27-28-30 cm þar sem það er styst.

Næsta umf er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.1b yfir fyrstu 22-22-22-24-24-26 l eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, sláið uppá prjóninn, 1 l br, 1 l sl (= miðja að aftan), 1 l br, sláið uppá prjóninn, A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 l, setjið næstu 48-54-60-60-62-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (= hliðarmerki), A.1b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, sláið uppá prjóninn, 1 l br, 1 l sl (= miðja að framan), 1 l br, sláið uppá prjóninn, A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 l, setjið næstu 48-54-60-60-62-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (= hliðarmerki) = 218-226-258-282-306-326 l.

Prjónið 1 umf mynstur, uppslátturinn við miðju að framan og við miðju að aftan er prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt.

Næsta umf er prjónuð þannig: Haldið áfram með * A.1b yfir fyrstu 22-22-22-24-24-26 l eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.5a yfir næstu l (aukið út um 1 l í A.5a), 1 l br, 1 l sl (= miðja að aftan/framan), 1 l br, A.6a yfir næstu l (aukið út um 1 l í A.6a), A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 l eins og áður, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2-2-2-6-8-8 l garðaprjón, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Í þessari umf er aukið út um 2 l við miðju að framan og við miðju að aftan og fækkið um 2 l á hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Prjónið síðan í hring þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 1 umf með mynstri eins og áður (= 1 umf án þess að slá uppá prjóninn í mynstri).
UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og fækkið um 1 l hvoru megin við hvert hliðarmerki – LESIÐ ÚRTAKA-1. Í þessari umf er aukið út um 2 l við miðju að framan og við miðju að aftan og fækkið um 2 l í hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami.
UMFERÐ 3: Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 7: Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 8: Prjónið mynstur eins og áður. Í þessari umf er aukið út um 2 l fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan = alls 4 l fleiri. Ekki er l fækkað á undan og á eftir hliðarmerkingum.

Endurtakið umf 1 til 8 til loka. Þegar A.5a og A.6a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.5b og A.6a á hæðina. Nú er prjónað A.7 eftir A.5b og A.8 á undan A.6a við miðju að framan og fyrir miðju að aftan til loka, þ.e.a.s. útauknar lykkjur við miðju að framan/aftan eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 18 cm frá prjónamerki undir ermi, stillið af að síðasta umf sé 1 umf með uppslætti, skiptið stykkinu upp við hliðarmerkin, framstykki og bakstykki eru nú prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
(Byrjið við vinstra hliðarmerki. Fyrsta umf = frá röngu). Prjónið mynstur og endurtakið umf 1 til 8 eins og áður, en þær 3-3-3-3-4-4 síðustu l á hvorri hlið á stykki eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 30 cm frá prjónamerki undir ermi, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l yfir hvern kaðal. Fellið af – LESIÐ AFFELLING.

BAKSTYKKI:
Prjónið eins og framstykki.

ERMI:
= 48-54-60-60-62-66 l. Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5,5 og fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi = 54-60-66-70-74-78 l. Prjónið sléttprjón hringinn og setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 3-3-3-5-6-6 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2! Fækkið l svona með ca 3½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 9-12-14-15-16-17 sinnum = 36-36-38-40-42-44 l. Þegar ermin mælist 43-42-42-41-41-40 cm (ATH:
Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermi.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, uppslátturinn er prjónaður snúinn í mynstri, það eiga EKKI að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = byrjið á þessari umferð - sjá ör fyrir rétta stærð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Flair

Anne, United Kingdom

Winter Flair

Nejlin, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag Wendy wrote:

Hi, I am confused about how to work A.1a and A.4a (size medium). I can see that every second row I am doing. K2tog in A.1a and a sl/k1/psso in A.4a. this reduces the number of stitches in that section by one, but on the diagram it shows the same number of stitches to be worked in the next row, as if it hasn't reduced - and the pattern says there should still be 21. Am I supposed to pick up this stitch somewhere else, or is the whole pattern shifting over by one stitch each time

10.04.2024 - 11:36

DROPS Design answered:

Dear Wendy, the lace pattern in a.3a and A.4a is worked with 1 yarn over, this means in A.1a work the 16th + the 17th st together and make 1 yarn over (number of sts remains the same); in A.4a Knit 5, then make 1 YO and slip 1, k1, psso and continue diagram = the number of sts remains the same too. Happy knitting!

10.04.2024 - 13:53

country flag Hannah Hagen wrote:

Jeg glemte å øke til raglan

16.11.2023 - 21:49

country flag Hannah Hagen wrote:

Jeg er ferdig med A2a og A3a en gang. Det står i oppskriften at det sa skal være 318 m på pinne, men jeg har 218 m. Er dette en skrivefeil?

15.11.2023 - 11:29

DROPS Design answered:

Hej Hannah, har du taget 54m ud på hvert ærme og 29 udtagninger 4 gange ifølge diagrammet?

16.11.2023 - 14:31

country flag Sandra wrote:

Hallo, gibt es ein Video wie ich einen Umschlag links verschränkt stricke ? Habe leider keins gefunden. Danke

21.02.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, in diesem Video sehen Sie nach 01:13, wie man einen Umschlag links verschränkt strickt. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2023 - 18:18

country flag Ruth Norman wrote:

Can drops fabel be used for this pattern

12.01.2023 - 19:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Norman, sure, you can replace either Alpaca or Kid-Silk with Fabel but note you still need to work with 2 strands (either Fabel + another yarn group A such as Kid-Silk or Alpaca; or 2 strands Fabel). Use the yarn converter to check the new amount of yarn you will require. Happy knitting!

13.01.2023 - 08:31

country flag Imke wrote:

Guten Tag Auf dem Bild für mich nicht zu erkennen: ist das Modell tailliert oder eher gerade geschnitten? Beste Grüße Imke

13.11.2022 - 10:27

DROPS Design answered:

Liebe Imke, siehe die Maßskizze: der Pullover hat eher ein A-Form. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2022 - 09:41

country flag Jane Talboys wrote:

Rows while front and back are 2 in 3 .... I love your patterns but they do challenge even my abilities and I consider myself pretty expert as mostly I work my own patterns

08.09.2022 - 02:48

country flag Aly wrote:

Hoewel dit al een wat ouder patroon is vind ik het nog steeds mooi. ik gebruik wat dunner garen en het patroon laat zich makkelijk aanpassen. gewoon een maatje groter en elke 2e of 3e naald meerderen ,geen enkel probleem. wil dan geen punten onderop maar dat komt ook wel goed. echt tijdloos en flatterend***

14.08.2022 - 19:55

country flag Nina wrote:

Man braucht sehr viel Konzentration, aber der Ergebnis lohnt sich.

01.10.2021 - 08:58

country flag Sandra wrote:

Hallo, ich stricke den Poncho in der Größe XXL und habe jetzt die Maschen für die Ärmel stillgelegt und mit Muster A5b und A6b angefangen. Wenn ich die Abnahme an der Seite nach Abnahmetip 1 mache und die Seitenmaschen laut Anleitung kraus rechts stricke kann ich Muster A4b aber nicht komplett beenden bzw. A1b beginnen. Ist das korrekt? Da ja in den letzten bzw. Ersten Maschen des Musters abgenommen wird. Oder? Vielen Dank.

17.03.2021 - 14:28

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, wenn Sie bei der 8. Reihe/Runde abnehmen, soll die Maschen von A.1b/A.4b abnehmen, dh es sind immer die gleichen Anzahl von der Maschen kraus rechts unter beiden Ärmel. dh nach und nach werden immer weniger Maschen vor/nach diesen Krausrechts Maschen in A.1b/A.4b gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

17.03.2021 - 16:07